Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 45

Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 45
amma okkur og gat komið okkur í gott skap. Við erum mjög þakklátir fyrir þann tíma sem við fengum með ömmu en við vildum óska þess að litli bróðir okkar, hann Daði Már hefði fengið þann tíma sem við feng- um njóta með ömmu. Við munum alltaf eiga góðar minningar um ömmu og hún á alltaf stað í hjarta okkar. Ólafur Alexander og Tómas Gauti. Eva frænka er farin til Guðs. Gamla góða frænka Eva, sögðu börnin mín. Það var Eva sjálf sem skeytti „gamla“ inn í viðkvæði Björgvins Franz sonar míns þegar hann var pínulítill að hrópa á síunga Evu frænku. Mamma og Eva voru systur. Fal- legu systurnar í Kleppsholtinu. Alla tíð svo samrýndar. Í raun hefur mér alltaf fundist ég eiga tvær mömmur. Ég var mikið hjá Evu og Óla þeg- ar ég var barn. Fyrstu vísuna sem ég lagði á minnið lærði ég af Evu frænku. Það var örstutt staka á ensku. Sagan af þeirri stöku var sú að Óli hennar Evu hafði boðið henni á hið glæsilega Pressuball. Það eina sem Eva átti í fataskápnum var flík sem hún kallaði kartöflupokann; dró hún því fram tækifæriskort, sem hún átti í fórum sínum og færði Óla. Myndin á kortinu var af allsberu, feitabollu-pari og undir stóð: „Adam, said Eve, when winter came/and all the trees were bare/Adam, said Eve, I cańt come out/́cause I haveńt a leaf to wear.“ Eva mætti auðvitað á pressuballið í nýjum kjól sem Óli keypti. Ég var afskaplega brussuleg sem barn, seinheppin sagði Eva. Glutraði hlutum niður, sullaði á fötin mín og felldi allt um koll. Viðbrögð ættingja voru ævinlega: Alveg eins og Eva frænka. Það þótti mér heiður. Eva hafði húmor fyrir sjálfri sér. Í brúðkaupsgjöf hafði eitthvert göfug- mennið fært Evu og Óla danskt postulínsstell, Bláa blómið. Lengi var til einn bolli til minningar um þessa dýru gjöf, þangað til við Eva þeyttum honum saman út úr skápn- um í einhverjum jólabakstrinum. Við hlógum saman ofan í postulíns- brotin. Ég var einkabarn en gerði mér sí- fellt vonir um að eignast systkini. Það var Eva frænka sem færði mér yndislegan lítinn „bróður“. Svart- hærðan dimmraddaðan hlunk. Og vinir og vandamenn sem höfðu mikl- ar áhyggjur af barnleysi Evu og Óla, fylltust slíku þakklæti og gjafmildi að gríðarmiklir gjafapakkar fylltu litlu íbúðina í Nóatúninu. Eva lét ekki þar við sitja, því litlu síðar færði hún mér líka yndislega litla „syst- ur“. Og enn sendu ættingjarnir stóra sængurgjafaböggla. Og í kjöl- farið færði Eva mér með stuttu millibili tvær yndislegar „systur“ til viðbótar. Þegar allt var talið hafði Eva eign- ast fimm börn á stuttum tíma og þegar hið fimmta kom í heiminn, hafði dregið svo úr sængurgjafagleði ættingja, að það eina sem barst voru einblöðungar um getnaðarvarnir, sagði Eva. Eva var alla tíð mín fyrirmynd og það var síst út í bláinn að ég afréð að frumburður minn skyldi heita Eva. Áður en söknuðurinn nær að yf- irbuga mig og tárin taka að hellast yfir blekið, læt ég staðar numið, minnug orða Evu sjálfrar, sem var þeirrar skoðunar að minningar- greinar skyldu vera stuttar skemmtisögur af hinum látna, ekki harmagrátur. Vel gefnir og hjartahlýir húmor- istar eru ekki á hverju strái í þessum táradal. Það er því síst nein ráðgáta í mínum augum af hverju almættinu lá svona á að fá Evu til liðs við sig; það hefur einfaldlega vantað fleiri húmorista á efri hæðina. Við biðjum algóðan Guð fyrir Evu og biðjum hann að sefa harm fjöl- skyldunnar. Edda Björgvinsdóttir. Trú, von og kærleikur eru orð sem koma fyrst upp í hugann, þegar hugsað er til Evu Kristinsdóttur. Sem barn var ég heimagangur á heimili Evu og Óla frænda og átti þar ógleymanlegar samverustundir með þeim og börnum þeirra, sér- staklega Margréti Lind og Magnúsi Sverri. Reyndar finnst mér flestar minningar mínar í frumbernsku tengdar Melabrautinni, þar sem þau bjuggu. Eru þær í einu og öllu ánægjulegar, enda var þar mikið líf og fjör. Hvort sem um var að ræða hátíð- isdaga eða hina almennu hversdaga gátu allir dagar breyst í ævintýri. Upplifunin gat verið bátsferð, tom- bóla, hljómsveitaræfing í bílskúrn- um eða skotferð út á flugvöll í „Rúg- brauðinu“ með öllum krakka- skaranum, því Óli þurfti að taka myndir af fréttnæmum atburðum fyrir Morgunblaðið, man til dæmis þegar Karl Bretaprins millilenti óvænt á Íslandi. Eva var mjög trúuð kona. Það kom vel fram í framkomu hennar. Hún var samkvæm sjálfri sér, ákveðin og mikill dugnaðarforkur. Evu var gefin rík umhyggja og frá- bær kímnigáfa, sem ég og fjölskylda mín höfum notið. Litið var á björtu hliðarnar, hið jákvæða og skondna í lífinu. Það er með miklum söknuði, að Eva er kvödd í dag, en ég og fjöl- skylda mín þökkum Evu fyrir allt og allt og vottum börnum hennar og fjölskyldum þeirra dýpstu samúð. Jóhann Gísli Jóhannsson. Það var mkill gleðidagur þegar Ólafur K. Magnússon kynnti Evu Kristinsdóttur fyrir okkur í Sólvalla- götufjölskyldunni. Konuna sem átti eftir að eiga með honum fimm mannvænleg börn og hvetja hann til dáða öll árin sem þau áttu saman. Eva og niðjar þeirra áttu líka eftir að verða uppáhaldsmyndefni hans um ævina og nutu ættingjar mynda- tökuhæfileika þessa frumkvöðuls með þeim. Eva kom úr tápmiklum systkina- hópi frá Hóli í Kleppsholtinu og var fallegt að sjá þann kærleika sem ríkti á milli þeirra systkinanna. Eva fór í Kvennaskólann og að loknu námi ferðaðist hún um heiminn og dvaldi m.a. lengi í Bretlandi. Hún var sannur heimsborgari. Er heim kom vann hún í nokkur ár sem ritari hjá Olíufélaginu þar til hún festi ráð sitt. Það var mál manna að þarna hafði vel tekist til þegar svo glæsi- legt par felldi hugi saman. Þau reistu sér Sigvalda-hús á Melabraut- inni á Seltjarnarnesi og þar varð þeirra glæsilega félagslynda fjöl- skylda til. Allar frístundir voru notaðar til útiveru og ferðalaga, en bæði unnu þau hjón hörðum höndum til að geta skapað börnunum notalegt heimili. Börnin hafa líka staðið sig afburða vel og látið til sín taka, hvert á sínu sviði, enda vel menntuð og harðdug- leg. Það var ómetanlegt fyrir fjöl- skylduna okkar í Tómasarhaga að geta gengið að opnu húsi á Mela- brautinni og vera ætíð tekið með opnum örmum. Þegar Eva og Óli voru á miðjum aldri rættist langþráður draumur að eignast bát. Þau fóru til Bandaríkj- anna, fundu bátinn og höfðu hann um hríð við Mexíkóflóann og sigldu honum þar um slóðir. Síðan fluttu þau bátinn til Norðurlanda og héldu uppteknum hætti um árabil. Eva fór í nám á miðjum aldri og gerðist sjúkraliði. Hún vann þau störf ýmist á stofnunum eða í heimahjúkrun þar til s.l. mars að hún veiktist. Eva var vakin og sofin yfir velferð skjólstæð- inga sinna og lét einnig til sín taka í réttindamálum starfsgreinar sinnar. Í takmörkuðum frítíma sinnti hún trú sinni og vinum sínum. Eva var glaðsinna, hafði góða nærveru, afar vel lesin, hláturmild og frábær kímnigáfa var alltaf til staðar. Kær vinkona mín skilur eftir sáran söknuð hjá fjölskyldu minni en fallegar endurminningar geym- um við um ókomna tíð. Vilborg G. Kristjánsdóttir. Eva mín, hún Anna Lóa vinkona sagði að það hefði verið falleg stund þegar þú kvaddir þennan heim. Sorgin er sár en minningin um þig er mögnuð því þú varst einstök manneskja, heilsteypt, réttsýn og hlý. Okkar kynni spanna þrjátíu ár, frá því að ég flutti á Seltjarnarnesið og fyrsta manneskjan sem ég kynnt- ist var hún Anna Lóa þín. Hún tók mig upp á sína arma, alveg einstök. Að koma í fallega húsið á nesinu sem þið Óli reistuð saman var yndislegt, alltaf tókstu á móti mér brosandi og sýndir mér ávallt áhuga og hlýju, og svona varstu líka við börnin mín, alltaf góð og hlý en þannig varstu af Guðs náð. Eva mín, þú skilur eftir þig alveg einstakan hóp af börnum og barna- börnum, einstakt fólk. Þau hafa öll sem eitt erft þína hlýju gæsku, rétt- lætiskennd og visku. Það sem ég get gert núna er að vera til staðar fyrir hana Önnu Lóu vinkonu mína. En núna ertu komin til hans Óla, mundu bara að brosa þegar hann smellir af þér mynd, en eins og flest- ir vita var hann okkar fremsti ljós- myndari, alveg stórkostlegur á sínu sviði. En núna kveð ég þig að sinni og sendi kveðjur frá krökkunum mín- um þeim Hemma og Gígju. Þín Kolbrún Ólafsdóttir (Kolla). Það er skrýtið að sitja og skrifa minningargrein um hana Evu. Hún var nefnilega ein af þessum konum sem höfðu veruleg áhrif á líf okkar vinkvennanna. Þegar maður eldist fer maður nefnilega að hugsa meira um það hver hefur haft mest áhrif á líf manns. Við erum vissar um að flest allir geta nefnt nokkra einstaklinga sem virkilega hafa haft áhrif eða verið fyrirmyndir þeirra. Eva var einmitt ein af þessum fyrirmyndum Við kynntumst Evu fljótlega eftir að Kiddi elsti sonur hennar varð vin- ur okkar. Það var auðvitað Laufey vinkona okkar sem pressaði á að við tækjum Kidda og félaga inn í vina- hópinn. Hún sá víst eitthvað aðeins meira en við hinar. En það varð happdrættisvinningur fyrir okkur hin, því Kiddi átti yndislega fjöl- skyldu á Nesinu. Af öllum ólöstuðum stóð hún Eva þar upp úr. Hún opnaði heimili þeirra Óla og barnanna upp á gátt fyrir allan þennan vinahóp. Það var ekkert mjög fámennur eða hljóðlát- ur hópur en aldrei fundum við fyrir því að við værum óvelkomin. Við vit- um það að Eva á stóran þátt í því að nú u.þ.b. 30 árum síðar erum við enn öll bestu vinir! Minnisstæðastar eru nú minning- arnar um bílskúrinn sem þau Eva og Óli eftirlétu okkur á gamlárskvöld. En það voru eilíf vandræði að finna út úr því hvar við, þessi stóri vina- hópur, gætum verið á gamlárskvöld. Jú, við máttum leggja undir okkur bílskúrinn þeirra. Ófáum stundun- um eyddum við í að þrífa hann og skreyta svo allt yrði fínt og flott þessa fyrstu nótt ársins. Undir morgun mætti svo Eva gjarnan með smurt brauð og góðgæti handa öll- um hópnum! Bara yndisleg, þessi kona. Þess á milli sem ekki var gamlárs- kvöld stóð rússajeppinn hans Kidda inni í bílskúr. En þar fóru iðulega fram viðgerðir eftir síðustu jeppa- ferð. Þær voru ófáar ferðirnar sem við fórum, en því miður kom „Rúss- inn“ oft í einhverju ólagi til baka. En þá var bílskúrinn bara aðalsam- komustaðurinn og þar eyddum við mestöllum okkar frítíma. Fæstir kunnu að gera við en gáfu bara heil- ræði í staðinn og þannig styrktum við vináttubönd sem aldrei slitna. Laufey vissi sínu viti þegar hún náði í hann Kidda sinn, því hún fékk svo frábæra tengdamömmu í kaup- bæti! Margar okkar hafa átt mörg samtöl við Evu þar sem hún kom með ráðleggingar sem reynst hafa vel í lífsins ólgusjó. Það sem stendur upp úr er að hún var góð fyrirmynd fyrir okkur óharðnaða unglingana. Laus við for- dóma, mannleg, jákvæð og hvetj- andi. Hún hafði trú á okkur sem unglingum. Elsku Eva, takk fyrir að taka allt- af vel á móti okkur og aðstoða okkur þannig að komast til manns. Elsku Kiddi, Laufey og börn, Berglind, Anna Lóa, Margrét Lind, Magnús, makar og börn. Megi góður guð sem Eva trúði svo á gefa ykkur öllum styrk í sorginni. Við vitum að þið eigið öll frábærar minningar um yndislega mömmu, tengdamömmu og ömmu sem þið getið yljað ykkur við um ókomin ár. Fyrir hönd vinahópsins, Alda, Elsa, Hlín, Hulda, Ingibjörg, Kolbrún og Sigríður. „Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn vold- uga söng. Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“(Kahlil Gibran.) Eva verður ávallt einstök í huga okkar fyrir það hversu útgeislandi, uppörvandi, heilsteypt og hlý per- sóna hún var. Hún hafði líka frá- bæra kímnigáfu. Eitthvað segir okk- ur að hennar fallega orka lifi áfram og um ókomna tíð á þann hátt sem mannlegur hugur getur ekki skilið. Elsku Eva, við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að þekkja þig og starfa með þér. Þú varst alls staðar elskuð, hvort sem var af skjólstæð- ingum eða starfsfólki. Fjölskyldu Evu vottum við okkar dýpstu samúð. Fyrrverandi starfsfélagar úr Miðstöð heimahjúkrunar. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 45 ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ANNA FINNBOGADÓTTIR, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 14. nóvem- ber. Jarðarförin verður auglýst síðar. Finnbogi Á. Guðmarsson, Metta Kwanthong, Erna Guðmarsdóttir, Steinþór Sigurðsson, Örn Guðmarsson, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Elín Ágústsdóttir, José Ramos, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, sonur, tengdasonur, bróðir, mágur og frændi, KJARTAN ÁRNASON, Kópavogsbraut 99, lést mánudaginn 13. nóvember. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju miðvikudag- inn 22. nóvember kl. 13.00. Edda Ólafsdóttir, Marta Kjartansdóttir, María Erla Kjartansdóttir, Ólafur Sverrir Kjartansson, Soffía Adólfsdóttir, Saga Guðrún Ólafsdóttir, Árni Björgvinsson, Sigrún Stefánsdóttir, Drífa Garðarsdóttir, Helga Aðalbjörg Árnadóttir, Finnur Frímann, Árni Þór Finnsson, Guðrún Finnsdóttir, Kristjana Finnsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, sambýlismaður, sonur, bróðir og frændi, EGILL SIGURÐUR ÞORKELSSON, sem lést fimmtudaginn 9. nóvember, verður jarð- sunginn frá Grafarvogskirkju í dag, fimmtudaginn 16. nóvember, kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök sykursjúkra. Elinóra Inga Egilsdóttir, Pétur Laxdal Egilsson, Kristín Björg Pétursdóttir, Þorkell Snævar Árnason, Rakel Egilsdóttir, Georg Þorkelsson, Elísabet I. Einarsdóttir, Árni Þorkelsson, Sigurður Þorkelsson, Auður Rakel Georgsdóttir, Einar Þorri Georgsson, Agnes Rut Georgsdóttir og aðrir vandamenn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, PÉTUR ÞÓR MELSTEÐ hárskeri, Rauðarárstíg 3, Reykjavík, varð bráðkvaddur að kvöldi mánudagsins 13. nóvember. Ragnheiður Melsteð, Magnús Scheving, Grétar Melsteð, Cilje Alexandersen, Jónína Melsteð, Gunnar H. Gunnarsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.