Morgunblaðið - 16.11.2006, Page 51
SALA er hafin á jólakortum
Styrktarfélags vangefinna. Í
ár prýðir myndin „Jóla-
sveinninn minn“ eftir Sig-
rúnu Huld Hrafnsdóttur
kortin.
Þau fást stök, bæði með og
án texta á kr. 85 stk. og einn-
ig sex í búnti á kr. 500. Allur
ágóði af sölu jólakortanna fer
til að bæta þjónustu við
þroskahefta.
Félagið hefur frá upphafi
nýtt sjálfsaflafé sitt til upp-
byggingar nýjunga í þjálfun,
atvinnu og búsetu þroska-
heftra og verið fumkvöðull á
flestum sviðum þjónustunn-
ar.
Félagið hefur nýlega sett á
laggirnar atvinnuverkefnið
„Allt að vinna!“ sem leggur
áherslu á að skapa atvinnu-
tækifæri fyrir fatlað fólk.
„Verkefninu er ætlað að
kynna fyrirtækjum kosti
þess að ráða til sín fatlaða
starfsmenn, bæði hvað varðar vinnu-
og samfélagsþátttöku þeirra. Eru
miklar vonir bundnar við þetta verk-
efni, sem nú þegar hefur stutt 5 ein-
staklinga út í störf á almennum
vinnumarkaði,“ segir í frétt frá fé-
laginu.
Kortin verða til sölu á skrifstofu
félagsins á 3. hæð í Skipholti 50c, í
Bjarkarási Stjörnugróf 9, Lækjarási
Stjörnugróf 7, Lyngási Safamýri 5,
Ási Brautarholti 6, Þroskahjálp
Háaleitisbraut 11–13, Öryrkja-
bandalagi Íslands Hátúni 10, Lyfjum
og heilsu Eiðistorgi 17, Efnalauginni
Björg Álfabakka 12 og Háaleitis-
braut 58–60, og Skipholtsapóteki
Skipholti 50 b.
Jólakort Styrktar-
félags vangefinna
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 51
FRÉTTIR
Listmunir
Málverk - Ásgrímur
Eitt af fallegustu vatnslitamálverkum Ásgríms
Jónssonar er til sölu ef viðunandi tilboð fæst.
Áhugasamir leggi inn nafn og síma á auglýs-
ingadeild Mbl. eða á box@mbl.is merkt:
,,ÁJ - 19272’’.
Félagslíf
Bæn og lofgjörð í dag kl. 20.
Umsjón: Elsabet Daníelsdóttir
og Björn Tómas Kjaran.
Allir velkomnir.
Fimmtudagur 16. nóv. 2006
Samkoma kl. 20.00 í Háborg,
félagsmiðstöð Samhjálpar í
Stangarhyl 3.
Vitnisburður og söngur.
Predikun Yngvi Rafn Yngvason.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
I.O.O.F. 11 18711168½ 9.0.*
XX
I.O.O.F. 5 18711168 *9.0
Landsst. 6006111619 VII
HELGAFELL 6006111619 VI
Erindi
HEIMDALLUR gagnrýnir aukin
ítök ríkisins á fjölmiðla- og prent-
markaði, segir í ályktun frá félag-
inu.
„Fram hefur komið að ríkisfyr-
irtækið Íslandspóstur hafi nýverið
fest kaup á prentþjónustufyrir-
tækinu Samskipti ehf. og stundi
þar af leiðandi samkeppni við aðr-
ar prentsmiðjur á markaði. Heim-
dallur sér enga ástæðu fyrir þess-
ari útþenslustefnu hins opinbera á
frjálsum markaði enda er það seg-
in saga að frjáls markaður og sam-
keppni dafna best þegar hið op-
inbera heldur sig fjarri.
Þá hvetur Heimdallur þingmenn
Sjálfstæðisflokksins til að falla frá
þeim hugmyndum sem fram koma
í svonefndu fjölmiðlafrumvarpi.
Reglur um hámarkseignarhlut-
deild eru til þess eins að gera fyr-
irtækjum á markaði erfitt fyrir. Þá
gagnrýnir félagið sérstaklega að
markaðshlutdeild fjölmiðlafyrir-
tækja, sem munu byggjast á les-
enda-, hlustenda- og áhorfskönn-
unum, eigi að ráða því hvernig
eignarhaldi fjölmiðlafyrirtækja er
háttað.
Besta leiðin til að tryggja fjöl-
breytni og frelsi á fjölmiðlamark-
aði er að leyfa samkeppni að ríkja.
Til marks um það má nefna að
ekki er langt síðan kynntar voru
niðurstöður úr könnun samtaka
fréttamanna, Reporters Without
Borders, á fjölmiðlafrelsi í heim-
inum og var Ísland þar í efsta sæti
ásamt þremur öðrum ríkjum.
Það sem helst stendur fjölmiðla-
markaði á Íslandi fyrir þrifum er
ríkisstofnunin Ríkisútvarpið sem
er rekið í krafti almannafjár og
skylduaðildar. Við minnum þing-
menn Sjálfstæðisflokksins á anda
þeirrar baráttu sem háð var fyrir
rúmum tveimur áratugum þegar
barist var fyrir frjálsu útvarpi
undir leiðarljósi þess að það væru
einstaklingarnir, en ekki stjórn-
völd, sem væru best til þess fallnir
að reka fjölmiðla,“ segir í ályktun
Heimdallar.
Gagnrýna útþenslu ríkisins á
fjölmiðla- og prentmarkaði
NEMENDUR úr Menntaskólanum í Kópavogi unnu
tvenn gullverðlaun í árlegri nemakeppni AEHT (Evr-
ópusamtök hótel- og ferðamálaskóla) sem haldin var í
Killarney á Írlandi 7.–12. nóvember sl.
Íris Jóhannsdóttir, nemi á ferðabraut MK, keppti í
ferðakynningum ásamt Danny van der Weel frá Hol-
landi. Þau fengu það verkefni að fjalla um neikvæð
og jákvæð áhrif ferðamennsku á umhverfið í Kill-
arney og koma með tillögur til úrbóta. Hlutu þau
gullverðlaun fyrir kynningu sína og silfurverðlaun
fyrir að vera eitt af þeim sex liðum sem sýndu besta
samvinnu og fagmennsku. Íris fékk einnig gull-
verðlaun fyrir að vera stigahæsti keppandinn frá sínu
landi.
Ragnar Th. Atlason, bakaranemi, keppti í köku-
gerð ásamt James Dunn frá Írlandi. Verkefni þeirra
var að útbúa fjórar tegundir af bakkelsi fyrir síðdeg-
iste, blanda heilsudrykk í tvö glös og svara nokkrum
fagtengdum spurningum. Fengu þeir gullverðlaun
fyrir sitt framlag, sem meðal annars var dæmt með
tilliti til bragðs og útlits, fagmennsku í vinnubrögðum
og samvinnu keppenda.
Morgunblaðið/Eyþór
Unnu til gullverðlauna
NÝ VERSLUN með safnaravörur
– Sérverslun safnarans – hefur
verið opnuð á Skólavörðustíg 21a
þar sem verslunin Frímerkjamið-
stöðin var til húsa um langt árabil.
Verslunin hefur á boðstólum
hefðbundna söfnunarmuni, m.a.
mikið úrval frímerkja, mynt, seðla
og póstkort, og auk þess úrval
leikfanga sem vinsæl eru til söfn-
unar, hernaðarmódel úr málmi,
minjagripi og gjafavöru. Þá kaup-
ir Sérverslun safnarans áhuga-
verða muni, sér í lagi gömul ís-
lensk frímerki, gömul frímerkt
umslög og póstkort sem og gamla
peningaseðla og mynt úr góð-
málmi.
Mikið úrval jólagjafa fyrir safn-
ara og áhugafólk um kvikmyndir
og teiknimyndir er á boðstólum nú
fyrir jólin, svo sem Star Wars,
Simpsons, Hringadróttinssögu,
Austin Powers, Pirates of the
Caribbean, South Park og fl.
Verslunin er opin virka daga
frá klukkan 11 til 18 og laug-
ardaga frá klukkan 11 til 16.
Eigandi verslunarinnar er
Steinar Friðþórsson.
Sérverslun safnarans
á Skólavörðustíg
BARNAHEILL – Save the Child-
ren á Íslandi, standa fyrir hátíðar-
og fjáröflunarkvöldverði, Hátíð
trjánna, föstudaginn 17. nóvember, í
Súlnasal Hótel Sögu. Ágóðinn mun
renna til verkefnis alþjóðasamtaka
Barnaheilla um menntun barna í
stríðshrjáðum löndum ,,Bætum
framtíð barna“. Þetta er í annað
sinn sem Barnaheill standa fyrir
fjáröflun af þessu tagi.
Á fjáröflunarsamkomunni verður
haldið uppboð á verkum þekktra
listamanna sem hafa hannað
,,jólatré“ úr þeim efniviði sem þeim
er hugleiknastur og endurspeglast
það í heiti viðburðarins. Listamenn-
irnir, sem hafa gengið til liðs við
Barnaheill að þessu sinni og gefa
stóran hluta vinnu sinnar, eru: Al-
istair Macintyre, Brian Pilkington,
Brynhildur Pálsdóttir, Finnbogi
Pétursson, Helgi Gíslason, Jónas
Bragi, Nicki McCubbing, Steinunn
Þórarinsdóttir, Svava Björnsdóttir,
Vignir Jóhannsson og Þórdís Alda
Sigurðardóttir. Verk þeirra eru nú
til sýnis í Verslun Sævars Karls við
Bankastræti. Listaverkin er einnig
hægt að sjá á vefnum www.barna-
heill.is „Dagskrá kvöldsins verður
vegleg með glæsilegum sjávarrétta-
matseðli og góðri skemmtidagskrá.
Gestir verða um 200 talsins, þ.e.
fulltrúar margra fyrirtækja, lista-
mennirnir og makar þeirra ásamt
stjórn, starfsfólki og velunnurum
Barnaheilla,“ segir í frétt frá sam-
tökunum.
Um 43 milljónir barna í stríðs-
hrjáðum löndum eru án skólagöngu
og hafa alþjóðasamtök Barnaheilla,
Save the Children-samtökin, sett
sér það markmið að veita átta millj-
ónum barna í þessum löndum góða
menntun á árunum 2006–2010.
Samtökin munu vinna að því að
byggja skóla, þjálfa kennara og út-
vega skólagögn og gott námsefni.
Samtökin skora einnig á alþjóða-
samfélagið að verja aukalega 5,8
milljörðum Bandaríkjadala til
menntunar barna í stríðshrjáðum
löndum og að menntun verði hluti
af neyðaraðstoð.
Fjáröflunarkvöld-
verður Barnaheilla
JÓLABASAR Iðjuþjálfunar
Hrafnistu í Reykjavík verður
haldinn laugardaginn 18. nóv-
ember kl. 13–17 og mánudaginn
20. nóvember kl. 9–15.30.
Mikið af fallegum hand-
gerðum munum verður á boð-
stólum og hægt er að gera góð
kaup fyrir jólin, segir í tilkynn-
ingu.
Stjórn Ættingjabandsins, sem
er félag aðstandenda heim-
ilisfólksins, mun selja nýbak-
aðar vöfflur og kaffi á laug-
ardaginn í samkomusalnum
Helgafelli C-4.
Jólabasar
Iðjuþjálfunar
Hrafnistu
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að umferðaróhappi
sem varð á Birkimel við gatnamót
Hringbrautar sl. mánudag um kl.
15.
Þar rákust á strætisvagn og
ljósbrún Volvo-bifreið og greinir
ökumenn á um aðdraganda
óhappsins.
Þeir sem geta veitt upplýsingar
um málið eru beðnir að hafa
samband við umferðardeild
lögreglunnar í Reykjavík í síma
444-1130.
Lýst eftir
vitnum