Morgunblaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 55
menning
Það þekkja allir sem afskiptihafa af börnum hve mik-ilvægt aðgengi að góðri af-
þreyingarmenningu er. Bækur,
sjónvarpsefni, leiksýningar, út-
varpsþættir og geislaplötur eru eðli-
legur og nauðsynlegur hluti af upp-
eldi og lífsstíl barna og þegar maður
dettur niður á hluti sem vit er í, mitt
í öllu framboðsflæðinu, er það gulls
ígildi.
Um daginn fann ég slíkan gull-mola í Þjóðleikhúsinu. Ég fór
með þriggja ára dóttur mína á fund
Skoppu og Skrítlu, tveggja al-
íslenskra fyrirbrigða, sem eiga að
baki nokkurra ára feril í sjónvarpi.
Sýningin í leikhúsinu fer fram á leik-
húsloftinu og er að sögn hugsuð sem
einskonar kynning á leikhúsinu fyrir
yngstu börnin, þar sem ljós, hljóð og
brellur ýmiss konar eru tíundaðar.
Það var þó ekki galdurinn við sýn-
inguna að mínu mati, heldur það hve
vel hún hentaði börnunum sem á
sýningunni voru. Þau fengu að sitja
á dýnu á gólfinu og taka virkan þátt
í framvindu sýningarinnar; lögð var
áhersla á að enginn þurfti að stressa
sig þótt gripið væri fram í eða þyrfti
á klósettið. Til að kóróna allt saman
virtust þær Skoppa og Skrítla, full-
komlega tilgerðarlaust, ná að tala
við hvert einasta barn á sýningunni
– sem þó skiptu tugum – annaðhvort
fyrir hana eða eftir.
Flest börnin voru á leikskólaaldri,
enda var sýningin skilgreind „fyrir
yngstu áhorfendurna“. Og það er
sjálfsagt lykillinn að því hve vel til
tókst – þarna er sjónum beint að ein-
um ákveðnum aldurshópi. Að mínu
mati er nefnilega alltof algengt að
markhópurinn sem leiksýningin/
bókin/sjónvarpsefnið og svo fram-
vegis ætti að höfða til sé illa skil-
greindur og reynt að höfða til of
margra ólíkra þarfa og aldurshópa í
einu.
Þó að vissulega séu börn misjöfn
eftir aldri, í andlegum þroska, mál-
þroska og áhugamálum, held ég að
ekki væri úr vegi að aðstandendur
barnaefnis skilgreindu nánar til
hvaða aldurshóps er reynt að höfða.
Það sem veldur átta ára gömlu barni
spennu og skemmtun, getur valdið
fjögurra ára barni hræðslu. Það sem
hinu fjögurra finnst hins vegar fynd-
ið, getur hinu átta ára fundist kjána-
legt. Best væri ef aðstandendur
barnaefnis settu eitthvert aldursbil –
sem hlýtur að vera mögulegt þeim
sem yfirleitt eru að fást við gerð
barnaefnis – og síðan mætti meta
hvert barn fyrir sig út frá þeim.
Til þessa varð mér enn og afturhugsað þegar ég sá Stundina
okkar um daginn, sem nú hefur
brugðið sér í nýjan (og miklum mun
betri) búning. Þar voru mörg atriði
sem hentuðu þriggja ára dóttur
minni einstaklega vel og hittu beint í
mark. Inn á milli komu hins vegar
atriði sem hún skildi ekkert í og var
jafnvel hrædd við, en ég er viss um
að eldri börnum hafa fundist bráð-
fyndin, og hin ef til vill kjánaleg.
Nú veit ég ekki til þess að Stundin
okkar sé sérstaklega ætluð einum
aldurshópi barna umfram annan, og
eitthvað segir mér að hann sé ein-
faldlega ætlaður „börnum“.
Mætti ekki auka framleiðslu áinnlendu barnaefni, og skipta
því betur niður eftir þörfum hvers
aldurshóps? Þannig þyrftu ekki öll
íslensk börn að horfa á sama ís-
lenska þáttinn, frá tveggja til tólf
ára, sem í raun er vitavonlaust að
framleiða. Það er afar fátt sem hent-
ar „börnum á öllum aldri“ – það vita
allir sem hafa með börn að gera.
ingamaria@mbl.is
Fyrir börn á öllum aldri …?
Morgunblaðið/Ásdís
Afmarkaður aldurshópur Skoppa og Skrítla eru dæmi um velheppnað barnaefni fyrir yngstu börnin.
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
» Best væri ef að-standendur barna-
efnis settu eitthvert ald-
ursbil og síðan mætti
meta hvert barn fyrir
sig út frá þeim.
ÞÓTT rúmur mán-
uður sé enn til jóla
og aðventan ekki
hafin eru greini-
lega margir farnir
að huga að þessari
hátíð ljóss og frið-
ar.
Safnplatan 100 ís-
lensk jólalög var
gefin út af Senu á
dögunum og er nú mest selda plata síðastlið-
innar viku.
Safnplatan samanstendur af fimm geisla-
diskum og er jólalögunum skipt niður í fjóra
flokka; Vinsæl jól, Gömlu góðu jólin, Barnajól
og Hátíðleg jól.
Allir ættu því að geta fundið jólalög við sitt hæfi
á plötunni góðu.
Jólalögin farin
að hljóma!
NOTALEGAR
ábreiður er trúlega
það sem mörgum
hugnast í kuld-
anum sem ein-
kennt hefur síð-
ustu daga.
Þeir Stefán Hilm-
arsson og Eyjólfur
Kristjánsson,
gjarnan nefndir
Stebbi og Eyvi, gáfu á dögunum út samnefnda
plötu, Notalegar ábreiður, þar sem þeir flytja
lög eftir sjálfa sig og aðra. Platan inniheldur ell-
efu lög og þar á meðal „Nínu“ sem þeir félagar
sungu fyrir Íslands hönd í Evróvision á Ítalíu hér
um árið. Trúlegt er að ófáir liggi undir notaleg-
um ábreiðum og hlusti á Notalegar ábreiður
þessa dagana.
Notalegar ábreið-
ur í vetur!
HVAÐ eiga þeir Friðrik
Ómar og Bubbi sameig-
inlegt? Allavega það að
þeir eru einu listamenn-
irnir sem eiga tvær plötur
á Tónlistanum þessa vik-
una.
Friðrik Ómar gaf nýverið
út sína fyrstu sólóplötu
sem ber heitið Annan
dag, þar sem hann syng-
ur bæði frumsamin lög
og eftir aðra.
Auk þess gaf hann nýverið út plötu í fé-
lagsskap Guðrúnar Gunnarsdóttur sem nefnist
Góða skemmtun.
Þar er á ferðinni sérstök útgáfa tveggja platna
Guðrúnar og Friðriks, Ég skemmti mér og Ég
skemmti mér í sumar, þar sem þau syngja
gömul og góð dægurlög. Platan heitir eftir
söngsýningu þeirra á Broadway.
Friðrik Ómar
sinnum tveir!
ALLT er fimmtugum fært,
allavega Bubba Mort-
hens.
Í tilefni fimmtugsafmælis
síns í sumar blés hann til
stórtónleika í Laug-
ardalshöllinni þar sem
hann söng fyrir troðfullu
húsi öll sín vinsælustu
lög auk þess að troða
upp með öllum þeim
hljómsveitum sem hann
hefur leikið með í gegnum tíðina.
Tónleikarnir voru gefnir út á plötu og mynddiski
og hefur platan selst eins og heitar lummur.
Annað upplag af plötunni, 06.06.06., er nærri
uppselt hjá útgefanda en búið að er að panta
þriðja upplag sem ætti að koma í verslanir á
næstu dögum.
Sívinsæll Bubbi
Morthens!
!" # # # #$ %&#' ( )'* #+,-&#.# / #'# #0 . &# #1 (&
#,!&# .2* &#-)#3#/ &#$#4/ 3&##!"#3#45(
&
*&
+&
'()*+ ,
-
. /0/,
6/
077#3#4
, 77
8.#9
-#0.
:#:3;
/#8<
9 #$= 3
6/
, .#0
' #9/
>>#?#@#4 <#?(3
,A
> #!/7
B ' A#B@ ' #9
8377#C/
D# * /# * /
1 #E
!3
6/
!"/ #8#4 3
, 77
83#0; 6/
,37#
>3 2#B 37
F
GG
>/ #-3 3
4 <<
#. #"*
3 #3 #)7 '
D#A( /#
-#0.# #-
$ #3H#1#/
I "J*#B #K" '
$L #.#M.# /#(L# #.
, # #MA# / #/'
N#
!2#83#3#4 <33
N( #.#4
5O:3 3
B"'# //
8 735
P :::
$ ((
$3M=#
83//#!3//#!3//
:*#/.
0#2# /Q#B # 3< #< <
D #) *
-3 #!/
N;
$ /#?3<3
,A
R <3
!2#P(#33
0
03 2/
0
0
,
?P#- <
C
0
0
0
0
C
B/
03O,-B
0
4-+
0
0
0
0
,)"
0
R
0
03O,-B
C
4-+
#"
R
03O,-B