Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 57
dægradvöl
Staðan kom upp í fyrri hluta Flug-
félagsdeildar Íslandsmóts skákfélaga
sem fór fram fyrir skömmu í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Dagskrá Ís-
landsmóts skákfélaga er alltaf mjög
þétt og við slíkar aðstæður er algengt að
lúnir skákmenn leiki af sér skákinni í
einum leik. Sérstaklega er það óþægileg
tilfinning þegar sá sem tapar hefur haft
mun betur alla skákina. Snorri G.
Bergsson (2.334) lenti í slíkum hremm-
ingum með hvítu gegn Einari Hjalta
Jenssyni (2.225). Snorri gat leikið 40.
Ke3 og átt góða vinningsmöguleika en
þess í stað lék hann 40. Ke5?? sem var
svarað með 40. … Dxc3+ og nú er hvít-
ur lentur í svikamyllu. Annaðhvort þarf
að hann að gefa drottninguna eða verða
mát á f4 eins og í framhaldinu. 41. Kf5
Dxc2+ 42. Ke5 Dc3+ 43. Kf5 Dd3+ og
hvítur gafst upp þar sem hann verður
mát eftir 44. Ke5 Dd4+ 45. Kf5 Df4#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Salt í sárin.
Norður
♠K93
♥K7
♦85432
♣D98
Vestur Austur
♠DG82 ♠Á107654
♥G643 ♥ÁD52
♦D106 ♦KG9
♣63 ♣--
Suður
♠--
♥1098
♦Á7
♣ÁKG107542
Suður spilar 5♣ og fær út spaða-
drottningu. Suður stökk í fimm lauf við
spaðaopnun austurs og það dugði til að
kaupa samninginn. Tólf slagir fást í
spaðasamningi í hina áttina og suður
getur því vel við unað að fara einn nið-
ur á fimm laufum – sem hann gerir ef
hann treystir á hjartaásinn í vestur.
En ekkert liggur á. Kannski má nýta
tígulinn og það er best gert með því að
leggja spaðakóng á drottninguna og
henda tígli heima. Austur fær slaginn á
ásinn og spilar væntanlega spaða
áfram. Suður trompar, tekur tígulás,
fer tvisvar inn á blindan á tromp og
stingur tígul. Þegar hann fellur 3-3 er
blindum spilað inn á síðasta laufið og
tveimur hjörtum hent í frítígul. Ellefu
slagir og salt í opin sagnsár AV.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 traustur, 8 að
svo búnu, 9 endurtekið,
10 hrygning, 11 ber
brigður á, 13 kvendýrið,
15 dæma í fésekt, 18
slaga, 21 löður, 22 með
jöfnu yfirborði, 23 svar-
ar, 24 bernskan.
Lóðrétt | 2 sníkjudýrið, 3
klappi egg í ljá, 4 viljugt,
5 umfang, 6 guðir, 7 hug-
boð, 12 megna, 14 vætla,
15 vökvi, 16 oks, 17 að
baki, 18 kvenvargur, 19
ráða í, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lokka, 4 tepra, 7 tamar, 8 kúlan, 9 auk, 11 nýra,
13 saum, 14 fenna, 15 þjál, 17 tákn, 20 eða, 22 ölæði, 23
ljúft, 24 geisa, 25 nauti.
Lóðrétt: 1 lútan, 2 kamar, 3 aðra, 4 tekk, 5 pilta, 6 af-
nám, 10 unnið, 12 afl, 13 sat, 15 þröng, 16 áræði, 18
álútu, 19 nátti, 20 eira, 21 alin.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1Gerð var húsleit á heimili Gunn-ars Gunnarssonar í Fljótsdal
1945 til að kanna hvort Hitler væri fal-
inn þar, að því er fram kemur í nýrri
bók Halldórs Guðmundssonar,
Skáldalíf. Hvað kallast býlið sem
Gunnar færði síðan ríkinu að gjöf?
2 Ragnar Hermannsson er höf-undur lagsins Allt í himnalagi
sem nýtur mikilla vinsælda. Hver
syngur lagið?
3 Bandaríska alríkislögreglan rann-saka nú dularfullt hvarf mynd-
arinnar Börn í vagni eftir einn af
spænsku meisturunum. Hvern
þeirra?
4 Forstöðumaður Rannsóknarset-urs verslunarinnar kynnti spá um
jólaverslunina sem talin er aukast um
9% milli ára. Hvað heitir hann?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Þekkt fjármálafyrirtæki skilaði skýrslu
um íslensku bankana. Hvað heitir þetta
fjármálafyrirtæki? Svar: Meryll Lynch. 2.
Ein vinsælasta hljómsveit hérlendis ætlar
að blúsa jólalögin. Hvað hljómsveit er
þetta? Svar: Mannakorn. 3. Axel Gíslason
hefur ákveðið að hætta störfum. Hvar var
hann forstjóri áður? Svar: Hjá VÍS. 4. Knatt-
spyrnustjóra Charlton Iain Dowie hefur ver-
ið sagt upp störfum hjá félaginu. Hvað heit-
ir heimavöllur félagsins? Svar: The Valley.
Spurt er …rit-
stjorn@mbl.is
GEORG Guðni Hauksson skipar sér-
stakan sess í íslenskri myndlist-
arsögu en margir eru sammála um
að hann hafi endurnýjað íslensku
landslagshefðina í málaralist. Hann
nýtir sér grundvallarþætti í hefð-
bundnum landslagsverkum, svo sem
skiptingu myndflatar í forgrunn,
miðhluta og bakgrunn, og samþættir
stílbrögðum sem rekja má til mód-
ernismans og vitundar um málverkið
sem tvívíðan flöt.
Skemmst er að minnast verka þar
sem hann málaði sig – eða óf sig öllu
heldur – inn í landslagið með aðferð-
um geómetríunnar og skapaði þann-
ig eins konar „köflótt“ landslag. Í
slíkum verkum sameinast rökræn og
skipulögð vinnubrögð og áhrif sem
kenna má við rómantík og hið háleita
– jafnvel þótt myndefnið felist í lág-
stemmdu landslagi fremur en hinu
ægifagra. Með einstöku næmi fyrir
möguleikum olíulitarins skapar
Georg Guðni dýpt og efniskennd í
verkum sínum. Þannig myndgerir
hann þoku og rigningarsudda og
gæðir verkin jafnframt því seið-
magnaða „andrúmslofti“ sem mestu
ræður um gildi verkanna og felur í
sér nútímalega nálgun eða sýn jafnt
á landið sem íslensku landslagshefð-
ina í myndlist.
Í nýjustu verkunum, sem hann
sýnir nú í Galleríi Turpentine í Ing-
ólfsstræti, gerir hann sjóndeild-
arhringinn að viðfangsefni; græn-
eða dökkleit jörð rennur mismikið
saman við móðukenndan himin þar
sem fjarlæg fjöll hverfa inn í þokuna
en jafnframt hvílir birtan á landinu.
Veður er stillt í verkunum og pens-
ilför tempruð, lárétt eða lóðrétt, en
listamaðurinn skapar hreyfingu á
myndfletinum með hægri stígandi í
birtumagni. Þá eru verkin stór og
sjónbaugur neðan við augnhæð sýn-
ingargesta sem eykur á „sogkraft“
myndanna, líkt og í nokkurs konar
aðflugi.
Í litlu rými innst í galleríinu vekur
athygli stórt verk sem þekur nánast
heilan vegg, frá gólfi og upp úr og er
jafnframt eina verkið í herberginu.
Málverkið hangir dálítið frá veggn-
um svo að skuggaspil myndast úti
við kantana sem gefur verkinu nýja
vídd jafnframt því að rýmið sjálft
verður veigameiri hluti af verkinu.
Tilfinningin fyrir hinu háleita magn-
ast upp í slíkri „innsetningu“.
Í samanburði við fyrri verk
Georgs Guðna má í mörgum verk-
anna sjá þróun í átt til meira
raunsæis í túlkun og vekur það
vangaveltur um vægi ljósmynda í
vinnslu verkanna. Sú aðferð að
„loka“ myndunum með dekkri lita-
tónum í efri hornum myndanna
minnir þó á að málverkið lýtur eigin
lögmálum og að þar er um tilbúinn
myndheim að ræða: huglæga end-
ursköpun listamannsins sem byggist
á veruleikaskynjun hans. Syrpa
skissukenndra teikninga, sem einnig
eru til sýnis og unnar hafa verið á
raunverulegum stöðum, veita innsýn
í fagurfræðilega og hugmyndalega
sýn listamannsins svo sem hvernig
hann skoðar landslag í mismunandi
veðri eða skyggni.
Í sumum verkanna má sjá laus-
beislaðri pensilskrift. Eitt verkanna
sker sig úr en þar hefur listamað-
urinn látið þunna málningu leka nið-
ur eftir yfirborðinu þannig að skynja
má skýfall á myndfletinum. Verkið
leiðir hugann að upphafi ferils
Georgs Guðna í byrjun 9. áratug-
arins þegar hið svonefnda „nýja mál-
verk“ blómstraði. Nú stendur yfir
sýning um málverkið eftir 1980 í
Listasafni Íslands þar sem Georg
Guðni birtist sem fulltrúi þeirra mál-
ara sem um skeið aðhylltust hráa og
villta tjáningu er síðar vék fyrir ag-
aðri vinnubrögðum, byggðum á hefð-
bundnum gildum olíumálverksins.
Örlar ef til vill, á sýningunni nú, á
löngun listamannsins til að hrista
upp í fáguðu yfirborðinu?
Birta á landi
MYNDLIST
Gallery Turpentine
Til 21. nóvember 2006
Opið þri.–fö. kl. 12–18, lau. kl. 12–16.
Aðgangur ókeypis.
Georg Guðni Hauksson
Anna Jóa
Morgunblaðið/Ásdís
Seiðmagnað andrúmsloft „Þá eru verkin stór og sjónbaugur neðan við
augnhæð sýningargesta sem eykur á „sogkraft“ myndanna, líkt og í nokk-
urs konar aðflugi.“