Morgunblaðið - 16.11.2006, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2006 63
Fólk folk@mbl.is
Bókaforlög hér á landi hafa tekið
upp á þeirri nýbreytni að birta bók-
arkafla á Netinu. Þannig hefur
bókaforlagið Veröld birt upphafs-
kafla bókar Yrsu Sigurðardóttur,
Sér grefur gröf, á vefsetri sínu. Bók-
in sjálf kemur hins vegar ekki út
fyrr en á föstudaginn, en menn geta
tekið forskot á sæluna með því að
lesa fyrsta kaflann á Netinu. Bóka-
forlagið Edda var fljótt að bregðast
við þessu og hefur nú birt kafla úr
bók Arnaldar Indriðasonar, Kon-
ungsbók, á heimasíðu sinni.
Þokkadísin Eva Longoria hefur
hafnað orðrómi þess efnis að hún og
r&b-söngkonan Beyonce Knowles
muni leika lesbískt par í kvikmynda-
útfærslu bókarinnar Tipping the vel-
vet eftir Sarah Waters, einhvers
konar kvenkynsútgáfu af Brokeback
Mountain í leikstjórn Sofiu Coppola.
„Hættið þessari geðveiki,“ er haft
eftir hinni 31 árs gömlu Longoriu á
slúðurveitunni Earhtime um málið.
„Trúið mér, ég myndi gjarnan vilja
vinna með Beyonce einhvern daginn.
Hún er svo hæfileikarík. En þetta er
út af kortinu.“
Talsmenn hinnar 25 ára gömlu
Beyonce hafa einnig slegið á slúðrið.
„Þetta er ekkert að gerast. Við höf-
um aldrei heyrt um þess mynd.“
Aðdáendur Elvis
Presley hér á
landi ættu ekki að
láta framhjá sér
fara kvöld helgað
kóngnum sem
haldið verður í
Gullöldinni í Graf-
arvogi í kvöld.
Hljómsveit
verður á staðnum og allavega sex
Elvis-eftirhermur munu troða upp og
syngja alla vinsælustu slagara Pres-
ley.
Fögnuðurinn er öllum opinn og
gefst almenningi kostur á að þenja
raddböndin með hljómsveitinni ef vill.
Húsið opnar klukkan 20 í kvöld.
Boog átta staðgóðar máltíðir á dag
og vögguvísu fyrir svefninn. Það
harðnar því aldeilis í ári hjá birn-
inum þegar Beth neyðist til að skila
honum aftur á vit náttúrunnar að
kröfu bæjaryfirvalda, m.a. vegna
innbrots bjarnarins í sælgæt-
isverslun. Með í för er hjörturinn
Eliott, sem kom Boog í vandræði
með því að lokka hann með sér í sæl-
gætisbúðina og er því fremur stirt á
milli þeirra félaga. Þeim Boog og
Eliott líst illa á aðstöðuna til þæg-
indalífs í skóginum og ákveða að
halda þegar í stað aftur til byggða.
Þangað verða þeir hins vegar að
komast áður en veiðitímabilið hefst
með illræmda veiðimanninum Shaw
Í TEIKNIMYNDINNI Skógarstríð
(Open Season) segir frá skógarbirn-
inum Boog sem er hið besta skinn,
enda notið atlætis frá því að hann
var húnn í bílskúrnum á heimili
þjóðgarðsvarðarins Beth. Í verðlaun
fyrir það að dansa og syngja á
skemmtunum fyrir bæjarbúa fær
fremstum í flokki, en það skellur á
eftir þrjá daga, og er hvorki ratvísi
þeirra félaga né veiðihæfileikar upp
á marga fiska. Með gerð Skógarlífs
er fjölmiðlarisinn Sony að stíga inn á
hinn stóra og arðvænlega markað
fjölskylduteiknimynda í samkeppni
við fyrirtæki á borð við Disney, Pix-
ar og Dreamworks. Útkoman er
ágætlega samkeppnishæf við það
besta í bransanum, vandlega unnin
teiknimynd með skemmtilegri sögu
og litskrúðugum persónum úr heimi
manna og skógardýra.
Í bóli bjarnar
Skógarlíf „...vandlega unnin teiknimynd með skemmtilegri sögu og lit-
skrúðugum persónum úr heimi manna og skógardýra.“
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó, Ragn-
boginn og Borgarbíó
Leikstjórn: Jill Culton og Roger Allers.
Uppr.l. leikraddir: Martin Lawrence, As-
hton Kutcher, Debra Messing og Gary
Sinise. Bandaríkin, 100 mín.
Skógarstríð (Open Season) Heiða Jóhannsdóttir
Bandarískur leik-
fangaframleiðandi
bauðst til að gefa
4.000 dúkkur af
Jesú Kristi til góð-
gerðarstarfs sem
helgað er börnum
en dúkkurnar voru
afþakkaðar. Dúkk-
an fer með vers úr
Biblíunni. Góð-
gerðarstarfið felst í
því að færa fátæk-
um og þurfandi
börnum jólagjafir.
Framleiðandi Jesú-dúkkunnar,
one2believe, býr til leikföng tengd
Biblíunni.
Góðgerðarsamtökunum leist ekki á
að hafa leikföngin svo trúarleg og
benda á að börnin sem fái þau geta til-
heyrt ólíkum trúfélögum. Samtökin
heyra undir ríkið og því ekki við hæfi
að hafa svo trúarlegar tilvísanir í gjöf-
um þess.
Jesús segir meðal annars ,,Elska
náunga þinn líkt og sjálfan þig“, en
dúkkan kostar 20 dollara út úr búð í
Bandaríkjunum.
Góðgerðarsamtökin dreifðu 18 millj-
ón gjöfum í fyrra, tuskudýrum, leikj-
um, leikfangabílum og fleiru sem ekki
telst trúarlegs eðlis.