Morgunblaðið - 17.12.2006, Page 56
56 SUNNUDAGUR 17. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
AXELMA JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn
18. desember kl. 15.00.
Fanney Júlíusdóttir, Erlendur Magnússon,
Júlíus Örn Júlíusson, Anna María Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
séra MAGNÚS GUÐMUNDSSON
fyrrverandi sóknarprestur,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudag-
inn 21. desember kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Grundar-
fjarðarkirkju, sími 438 6725.
Sigurbjörn Magnússon, Kristín Steinarsdóttir,
Magnús Sigurbjörnsson,
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
Nína Kristín Sigurbjörnsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir og sonur,
ÁSTMAR ÖRN ARNARSON
húsasmíðameistari,
Bröndukvísl 15,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi laugardaginn
9. desember, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 18. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð
líknardeildar LSH í Kópavogi, sími 543 1159.
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir,
Björn Ástmarsson,
Ingólfur Ástmarsson,
Sólbjört S. Gestsdóttir, Svavar F. Torfason.
✝
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
FRÍÐA (STELLA) GÍSLADÓTTIR,
Bakkagerði 19,
Reykjavík,
sem andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 4. desember verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 19. desember kl. 13:00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar
látnu, er bent á Minningarsjóð Grundar, sími 530 6100.
Benedikt Antonsson,
Gísli Benediktsson, Eva María Gunnarsdóttir,
Davíð Benedikt Gíslason, Brynhildur Þorgeirsdóttir,
María Gísladóttir, Einar Kristinn Hjaltested
og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri
GUÐBRANDUR STEFÁNSSON
bóndi,
Hólum, Dýrafirði,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 8. desember,
verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju þriðjudag-
inn 19. desember kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Stefánsdóttir,
Haraldur Stefánsson,
Friðbert Kristjánsson, Ásta Kristinsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐLAUG KLEMENSDÓTTIR,
Víðinesi,
áður Langagerði 44,
Reykjavík,
er andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðinesi laugardag-
inn 9. desember, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 19. desember kl. 15.00.
Kristján Gunnarsson, Áslaug Jóhanna Guðjónsdóttir,
Ólafur Rúnar Gunnarsson, Steingerður Steingrímsdóttir,
Guðlaugur Gunnarsson, Guðný Rósa Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, afi og langafi,
ÞORVARÐUR STEFÁN GUÐMUNDSSON,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði,
sem lést miðvikudaginn 6. desember, verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
19. desember kl. 13.00.
Guðmundur Kristján Þorvarðarson,
Eiríkur Rúnar Þorvarðarson, S. Ladda Þorvarðarson,
Sigurjón Rafn Gíslason,
Guðlaugur Gíslason, Guðbjörg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Ísafold Þor-steinsdóttir
fæddist á Akureyri
15. maí 1944. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 6. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Sigurlaug
Guðmundsdóttir, f.
2 ágúst 1913, d. 8.
október 1999 og
(Andrés) Þorsteinn
Sigvaldason, f. 19.
ágúst 1912, d. 7.
desember 1998. Systkini Ísafold-
ar eru Herdís, f. 1943, Þröstur, f.
1945, Guðmundur Brynjar, f.
1946, Edda Björk, f. 1947, d.
2002 og Grétar Breiðfjörð, f.
1950. Hálfsystkini Ísafoldar, sam-
feðra, eru Gylfi, f. 1935 og Jón-
ína Maggý, f. 1940.
Ísafold giftist hinn 8. sept-
ember 1962 Gesti Ámundasyni
frá Vatnsenda í Villingaholts-
hreppi, f. 19. mars
1940. Foreldrar
hans voru Ámundi
Guðmundsson, f.
1902, d. 1948 og
Kristín Guðmunds-
dóttir, f. 1910, d.
1963. Systkini Gests
eru Guðmundur, f.
1932, Sigrún, f.
1934, Ingibjörg, f.
1936 og Guðmar
Helgi, f. 1947. Börn
Ísafoldar og Gests
eru: 1) Kristín, f.
21. febrúar 1963,
maki Paul John Evans, f. 18. apr-
íl 1968. Dætur þeirra eru Kate
Ísafold, f. 17. ágúst 2000 og Holly
Lilja, f. 14. mars 2002. Þau búa á
Englandi. 2) Þorsteinn, f. 28. des-
ember 1964, hann býr í Reykja-
vík.
Ísafold og Gestur hafa búið all-
an sinn búskap í Þorlákshöfn.
Ísafold var jarðsungin í kyrr-
þey að eigin ósk 16. desember.
Kveðja frá saumaklúbbnum
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Vinkona okkar hún Ísafold er dá-
in aðeins 62 ára að aldri. Hún
greindist með krabbamein fyrir 6
árum, í fyrstu gekk meðferðin vel
en síðastliðið vor tók meinið sig aft-
ur upp. Ísafold sýndi mikið æðru-
leysi í baráttu sinni við krabba-
meinið og hélt sínum styrk í
gegnum erfið veikindi. Eitt aðal-
einkenni hennar var létt skap og
glaður hlátur, sem við eigum eftir
að sakna mikið, en einnig hafði hún
ákveðnar skoðanir á málefnum líð-
andi stundar og málin oft rædd
hispurslaust. Ísafold var góður vin-
ur og dugleg að heimsækja fólk en
einnig var hún afskaplega gestrisin
og góð heim að sækja.
Erfitt er að kveðja svona góða
vinkonu, en við höfum haldið hóp-
inn bæði undir merkjum sauma-
klúbbsins okkar og sem miklar vin-
konur í yfir 40 ár. Við kynntumst á
árunum upp úr 1960 en þá var mik-
ill uppbygging í Þorlákshöfn. Meit-
illinn hf. rak frystihús þar sem tug-
ir kvenna unnu í sal við snyrtingu á
fiski. Það var verið að stækka höfn-
ina, það var mikil vinna og mikil
bjartsýni ríkjandi, mikið byggt af
íbúðarhúsum, en á þeim tíma voru
örfá hús í bæjarfélaginu okkar.
Við komum úr ýmsum áttum í at-
vinnuleit en áttum það sameigin-
legt að vera ung og ætla að byggja
okkur framtíð og búa okkur heimili
í Þorlákshöfn. Ísafold kynntist
manninum sínum, Gesti, og þau
fóru fljótlega að byggja húsið sitt á
Hjallabraut 6, þar sem þau bjuggu
í nær 40 ár. Saumaklúbburinn varð
til, vinahópur okkar, eiginmanna og
barna og margt skemmtilegt gert
saman sem gaman er að minnast.
Á fyrstu árum okkar í Þorláks-
höfn, þegar börnin voru lítil, var
ekki leikskóli eins og er í dag. Við
pössuðum því hver fyrir aðra ef á
þurfti að halda. Þá var svo gott að
biðja Ísafold og börnin í sjöunda
himni að fá að vera hjá henni og
ekki spillti Gestur fyrir með sinni
góðu nærveru. Á þeim tíma var
ekki skroppið til Reykjavíkur, held-
ur farið með rútu sem gekk á milli
og ferðalagið tók allan daginn.
Okkur vinkonunum, körlunum
okkar og börnunum, þótti öllum af-
ar vænt um Ísafold. Það voru ófáar
útilegurnar t.d. í Þórsmörk sem við
fórum sjö fjölskyldur saman og
undum okkur saman í söng, gleði
og leik. Þar sem Ísafold var þar
voru börnin, hún hafði gaman af
þeim og þeim leið vel í návist henn-
ar, hún var einstaklega barngóð
kona.
Ísafold vann utan heimilis við
verslun, á leikskóla og í fiski þar til
fyrir sex árum er hún varð að
hætta af heilsufarsástæðum. Hún
var mikil hannyrðakona, sama hvað
hún tók sér fyrir hendur, allt lék í
höndunum á henni og gott var að
leita til hennar. Gaman var að fá
ísaumuðu jólakortin frá henni. Eft-
ir að hún hætti að vinna, vann hún
mikið við hannyrðir og tók þátt í
félagsstarfi á Egilsbraut 9.
Ísafold og Gestur voru sérlega
samhent hjón og sýndu hvort öðru
ætið mikla virðingu. Þau eignuðust
tvö börn, Kristínu og Þorstein, og
nú seinni árin bættust í hópinn
tvær litlar dætur Kristínar. Þrátt
fyrir að Kristín, Poul og dætur
þeirra byggju í öðru landi voru
samskiptin mikil og Ísafold hafði
mjög gaman að því að prjóna á litlu
stelpurnar sínar, naut þess að fá
þær í heimsókn svo og að fara til
þeirra í heimsókn.
Við viljum þakka Ísafold allar
skemmtilegu stundirnar sem við
höfum átt saman í gegnum tíðina.
Klúbburinn okkar verður ekki sá
sami á eftir, nærvera hennar hafi
alltaf góð áhrif á hópinn.
Við og fjölskyldur okkar vottum
Gesti, Þorsteini, Kristínu og fjöl-
skyldu hennar, okkar dýpstu sam-
úð.
Blessuð sé minning Ísafoldar,
Alda, Guðfinna, Helga,
Jóna, Ragna og Sigríður.
Elsku hjartans vinkona, nú er
komið að kveðjustund. Ég á eftir
að sakna þín óendanlega mikið. Við
vorum alltaf bestu vinkonur og
aldrei féll skuggi á vináttuna okk-
ar. Við fórum í mörg ferðalög sam-
an, til Íbísa og fleiri staða. Einnig
voru veiðiferðirnar margar sem við
fórum í með mönnunum okkar
Gesti og Tolla.
Takk fyrir að leyfa mér að koma
með þér til Englands og passa
ömmustelpurnar þínar, þær Kate
Ísafold og Holly Lilju. Ég hafði
sérstaklega gaman af því að fá
tækifæri til þess að koma með þér í
þessa ferð þar sem börnin þín,
Kristín og Steini, hafa alltaf verið
mér einstaklega kær. Í þessari ferð
skemmtum við okkur mjög vel og
gerðum margt skemmtilegt með
stelpunum sem dýrkuðu ömmu
sína. Ömmu sem alltaf var svo hlý,
lífleg og tilbúin að sprella og leika
sér.
Ég man að á heimleið var líka
gaman hjá okkur þegar við sett-
umst niður á Heathrow-flugvelli
með hvítvín og skálduðum sögur
um fólk sem var í kringum okkur.
Við hlógum mikið og vorum í ess-
inu okkar með einkahúmorinn.
Þú varst einstaklega skipulögð
og flink í höndunum. Allir leirmun-
irnir sem þú gerðir, svo og lista-
verk, að ekki sé talað um alla fal-
legu handavinnuna þína. Jákvæðni
og dugnaður var alltaf einkennandi
fyrir þig. Þú gast líka verið ákveðin
og staðföst, jafnvel dálítið þrjósk.
Fyrir um fimm árum greindist
þú með brjóstakrabbamein. Þú
barðist hetjulega og ávallt með
æðruleysi og jákvæðnina í fyrir-
rúmi. Síðastliðið vor fórum við síð-
an saman til Reykjavíkur í lækn-
isskoðun. Allt kom vel út og við
héldum upp á það með því að fara á
kaffihús. Mánuði síðar seig á
ógæfuhliðina, krabbameinið hafði
tekið sig aftur upp. Takk fyrir að
vera ætíð til staðar fyrir mig og
mína fjölskyldu. Börnin mín og
barnabörn héldu öll svo mikið upp
á þig. Elsku Gestur, Steini, Kristín,
Paul, Kate og Hollý, við Tolli send-
um ykkur okkar innilegustu sam-
úðarkveðju. Minningin um frábæra
konu sem bar hag fjölskyldu sinnar
ætíð fyrir brjósti mun lifa með okk-
ur.
Þín vinkona,
Inga A. Pétursdóttir
og Þorleifur Björgvinsson.
Ísafold Þorsteinsdóttir