Morgunblaðið - 10.02.2007, Page 53

Morgunblaðið - 10.02.2007, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 53 FRÉTTIR Nova Scotia, Canada, oceanfront luxury cottage rentals www.heronshoal.com Hjólhýsi Vantar hjólhýsi!. Vantar minni gerð af hjólhýsi, 5-6 metra langt. Upplýsingar í síma 554 3036. Þjónustuauglýsingar 5691100 Ferðalög Smáauglýsingar Morgunblaðið/G.Rúnar Bókagjöf Sendiherra Bandaríkjanna, Carol van Voorst, afhendir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra ríflega 4.500 barnabækur á ensku í menntamálaráðuneytinu. Bækurnar eru gefnar út af bandaríska útgáfufyrirtækinu Scholastic, sem er stærsti útgefandi barnabóka í heim- inum. Afhendingin fór fram nú í vikunni. Bókaafhending sendi- herra Bandaríkjanna FJÁRÖFLUNARDAGUR var hald- inn í Snyrti-Akademíunni laugar- daginn fyrir skömmu til styrktar góðu málefni. Nemendur Snyrti- Akademíunnar buðu fjölbreytta snyrtiþjónustu, andlitsböð, hand- snyrtingu, fótsnyrtingu, förðun, nag- laásetningu o.fl. gegn vægu gjaldi. Gestir og gangandi gátu því „notið þess“ að láta gott af sér leiða og kom- ust færri að en vildu, segir í frétta- tilkynningu. Heildverslunin Hjölur lagði til efnin sem til þurfti og nem- endur og kennarar Snyrti-Akademí- unnar gáfu vinnu sína þennan dag. Afrakstur dagsins var 290 þúsund krónur, sem renna munu í söfnun til styrktar skóla sem rekinn er í einu af mörgum fátækrahverfum í nágrenni Nairóbí í Kenía og kallast „Little Bees“ skólinn, en íslenskir stuðn- ingsforeldrar barna, sem stunda þennan skóla, hafa efnt til söfnunar með það að markmiði að bæta húsa- kost hans. Skv. upplýsingum frá að- standendum söfnunarinnar er með þessari söfnun Snyrti-Akademíunn- ar fyrsta áfanga söfnunarinnar náð, þ.e. búið er að safna fyrir byggingu einnar kennslustofu auk landskika. Söfnunin er ennþá í gangi því loka- takmark hennar er 1,5 milljónir króna. Þeim sem leggja vilja málefn- inu lið er bent á að upplýsingar um verkefnið er að finna á byflugur- .blog.is. Fjáröflun Brynhildur Jónsdóttir í félaginu Vinir Kenía tekur við söfn- unarfénu úr hendi Ingu Kolbrúnar Hjartardóttur skólastjóra Snyrtiskólans. „Skóli hjálpar skóla“ NÁTTÚRUVAKTIN hefur sent Jónínu Bjartmarz umhverfisráð- herra áskorun og vill með því vekja athygli „á því skeytingarleysi sem stjórnvöld víða um land eru að sýna svæðum á Náttúruminjaskrá“. Bréf Náttúruvaktarinnar fer hér á eftir: „Náttúruvaktin tekur nú þátt í að reyna að verja þrjú svæði á nátt- úruminjaskrá fyrir óhóflegri fram- kvæmdagleði ráðamanna og verk- takafyrirtækja. Í fyrsta lagi er í Álafosskvos hafin vegalagning við árbakka Varmár sem er á Nátt- úruminjaskrá frá upptökum til ósa. Í öðru lagi vill Orkuveita Reykja- víkur leggja metangaslögn um fjörur í Blikastaðakró/Leiruvog í Reykjavík, sem eru á Nátt- úruminjaskrá, á Náttúruvernd- aráætlun og eru viðurkenndar sem alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði. Bæði Varmá og Blikastaðakró hafa vaxandi verndargildi ekki hvað síst vegna nálægðar við byggð og mik- ilvægis fyrir útivist, fræðslu og vel- líðan íbúa höfuðborgarsvæðisins. Í þriðja lagi er um að ræða lagn- ingu Vestfjarðavegar um Gufudals- sveit þar sem náttúruverndarsam- tökin hafa öll mælt með því vegur- inn verði lagður í jarðgöng öllum til hagsbóta í stað þess að fara um fágætan skóg og ógna friðuðum arnarhreiðrum. Öll þessi svæði eru á nátt- úruminjaskrá og njóta því sér- stakrar verndar samkvæmt 37. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd. Þessi lögverndun virðist léttvæg þegar framkvæmdagleðin grípur um sig og skiptir þá litlu hvað verð- ur undan að láta, eða hvaða gildi það hefur fyrir komandi kynslóðir. Náttúruvaktin skorar á umhverf- isráðherra að breyta stefnu sinni og veita engar undanþágur til framkvæmda á friðlýstum svæðum eða á náttúruminjaskrá nema stað- fest sé að brýnir almennahags- munir liggi til grundvallar fram- kvæmd og að allar aðrar leiðir hafi fyrst verið kannaðar.“ Áskorun til umhverfis- ráðherra DVALAR- og hjúkrunarheimilinu Grund barst um daginn kærkomin gjöf. Aðstandendur Guðbjörns Jónssonar, klæðskerameistara og íþróttaþjálfara, sem lést 2. janúar sl., færðu heimilinu tvo LazyBoy- hægindastóla að gjöf. Stólarnir eru þakklætisvottur fyrir þá aðhlynningu sem Guðbjörn hlaut á heimilinu og einnig fyrir hlýju og stuðning við aðstandendur hans. Stólarnir voru keyptir hjá Húsgagnahöllinni og kom verslunin til móts við þetta framtak og með hennar stuðningi urðu stólarnir tveir. Eiginkona Guðbjörns, Sigríð- ur María Sigmarsdóttir, afhenti gjöfina fyrir hönd fjölskyldunnar. Grund fær stóla að gjöf SENDINEFND EFTA-þingmanna fundaði á þriðjudag og miðvikudag um fríverslun með þingnefndum kanadíska þingsins sem fara með ut- anríkisviðskiptamál. Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður þingmanna- nefndar EFTA, fór fyrir sendinefnd- inni en í henni voru Jón Gunnarsson alþingismaður og þingmenn frá Nor- egi, Sviss og Liechtenstein. Þingmannanefnd EFTA hefur á undanförnum árum stutt dyggilega við gerð fríverslunarsamninga sam- takanna. Markmiðið fundanna í Ot- tawa með kanadísku þingnefndunum var að þrýsta á um jákvæða niður- stöðu í yfirstandandi fríverslunar- viðræðum EFTA og Kanada, og tryggja stuðning kanadískra þing- manna við slíkt samkomulag. Samn- ingaviðræður EFTA og Kanada hafa staðið í mörg ár en skriður hefur komist á viðræðurnar á síðustu mán- uðum og vonast þingmenn EFTA til þess að þeim ljúki sem fyrst. Á fund- unum var einnig rætt um stöðu Doha-samningalotu Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar og fríverslun almennt. Sendinefndin átti einnig fundi með Peter Milliken, forseta kanadíska þingsins, Marie-Lucie Morin, aðstoðarráðherra utanríkis- viðskipta, og David Plunkett, aðal- samningamanni Kanada í fríverslun- arviðræðunum við EFTA. Á fundunum lagði Guðlaugur Þór áherslu á nauðsyn þess að efla tví- hliða fríverslunarsamninga vegna óvissu um afdrif Doha-samningalot- unnar. Fríverslunarsamningur milli EFTA og Kanada mundi skapa ný og spennandi tækifæri í viðskiptum þjóðanna og verða þeim til mikilla hagsbóta. Guðlaugur Þór sagði það kappsmál fyrir Íslendinga að auka viðskiptaleg tengsl við Kanada, land sem Ísland hefur tengst sterkum sögulegum og menningarlegum böndum allt frá fólksflutningunum miklu vestur um haf og stofnun byggða Vestur-Íslendinga. EFTA-þingmenn funda um fríverslun við Kanada Fundur Guðlaugur Þór Þórðarson, form. þingmannanefndarinnar, og Hugh Segal, form. utanríkismálanefndar öldungadeildar Kanadaþings. STJÓRNVÖLD í Japan bjóða styrk til íslenskra framhalds- skólanema, sem eru á aldrinum 16 til 17 ára frá 25. júní til 30. júlí 2007. Markmiðið er að gefa íslenskum ungmennum kost á því að kynnast japanskri tungu, menningu og lífsháttum. Japönskukunnátta er ekki skilyrði en umsækjendur verður að hafa góða enskukunn- áttu. Styrkurinn hljóðar upp á greiðslu ferðakostnaðar, skóla- gjalda, húsnæðis og fæðis. Um- sóknareyðublöð liggja frammi í sendiráði Japans á Íslandi, Lauga- vegi 182, 6. hæð, eða á heimasíðu; http://www.no.emb-japan.go.jp. Frestur fyrir umsókn er til 28. febrúar 2007 og skal umsókn skil- að til sendiráðs Japans á Íslandi sem jafnframt veitir allar frekari upplýsingar. Kynningarfundur verður haldinn í sendiráðinu 16. febrúar kl. 15.30. Styrkur til námsdvalar í Japan DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur samkvæmt fjárlögum átta milljónir króna til ráðstöfunar til verkefna á sviði mannréttindamála. Ráðu- neytið hefur ákveðið að úthluta þessu fé á grundvelli umsókna. Því gefst nú félagasamtökum og stofnunum, sem hyggjast sinna verkefnum á þessu sviði, kostur á að sækja um styrk til ráðuneytisins og skal umsókn hafa borist fyrir 15. febrúar næstkomandi. Styrkveitingar síðasta árs má finna á vef dómsmálaráðuneytisins. Styrkir til verk- efna á sviði mannréttinda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.