Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur bab@mbl.is Áhugi og afstaða kristinnasafnaða til kynhneigðarmeðlima sinna er út affyrir sig verðugt um- hugsunarefni. Samkynhneigð er óumdeilanlega eitt fyrirferðar- mesta umræðu-/deiluefnið af sið- ferðilegum toga sem kristnir söfn- uðir hér í Bandaríkjunum, og þó víðar væri leitað, eiga í, a.m.k. á opinberum vettvangi. Aftur á móti liggur ekki jafnljóst fyrir hvernig þetta stóra „siðferðismál“ snertir, segjum, almenna velferð fólks, nú eða kjarna kristinnar trúar ef út í það er farið. En þrátt fyrir að forkólfar krist- inna bókstafstrúarsafnaða láti enn eins og samkynhneigð sé synd og sjúkdómur, fá slík viðhorf lítið ef nokkurt pláss núorðið í þeim bandarísku fjölmiðlum sem vilja láta taka sig alvarlega. Þvert á móti hafa þær raddir sem predika þau verið dregnar sundur og sam- an í háði og spotti í hérlendum fjöl- miðlum að undanförnu, og það að gefnu tilefni. Í síðustu viku bárust nefnilega þau tíðindi að Ted Hagg- ard – prestur í Colorado Springs og fyrrum formaður landssamtaka bandarískra hvítasunnusafnaða – hefði lokið þriggja vikna meðferð og væri þar með ekki lengur sam- kynhneigður. En áður en lengra er haldið skulum við bakka aðeins og líta á forsögu málsins. Með tengsl við Hvíta húsið Ted Haggard er prestur af þeirri sort sem við þekkjum úr sjónvarpinu og kvikmyndum; sí- brosandi, hlýlegur náungi, gæddur sannfæringarkrafti og persónutöfr- um. Söfnuðurinn sem hann stofn- aði og stýrði þar til fyrir skömmu, „The New Life Church“ telst til svokallaðra risa-kirkna eða „mega- churches þar sem þúsundir manna koma saman í einu til guðsþjón- ustu og lofgjörðar. Haggard þótti sýna mikinn kraft við uppbyggingu safnaðarins sem óx hratt á fyrstu árum sínum og varð fljótt og áber- andi meðal bandarískra hvíta- sunnusafnaða. Eiginkona hans, Gayle, stendur þétt við hlið manns- ins síns í uppbyggingarstarfinu og ber safnaðarmeðlimum saman um að hún eigi stóran þátt í velgengni hans. Árið 2003 varð Haggard formað- ur landssamtaka hvítasunnusafn- aða í Bandaríkjunum, en alls til- heyra um 30 milljónir Bandaríkjamanna þeim söfnuðum sem heyra undir samtökin. Hagg- ard er líka áberandi persóna innan þess sem kallast „the religious right“, sem er óformleg en áhrifa- mikil hreyfing meðal kristinna bókstafstrúarmanna innan Repú- blíkanaflokksins. Þeir sem tilheyra þessum hópi hafa mikið um skoð- anir og stefnu flokksins í siðferð- ismálum að segja, stefnu sem er í einu orði sagt íhaldssöm. Og eðli málsins samkvæmt eru fyrirbæri á borð við samkynhneigð ekki fallin til vinsælda þar, ekki frekar en fóstureyðingar, kynlíf utan hjóna- bands, nú eða getnaðarvarnir. Fyrir skömmu upplýsti dagblað- ið Rocky Mountain News í Colo- rado að Haggard hefði verið í sér- völdum hópi trúarleiðtoga sem halda vikulegan símafund með starfsfólki Hvíta hússins. Tengsl Haggards við Hvíta húsið komu einnig fram í samtali hans við dag- blaðið Wall Street Journal skömmu eftir síðustu forsetakosn- ingar, en þar sagðist Haggard hafa „beinan aðgang að [Hvíta húsinu]“ og að hann gæti komið því sem hann þyrfti að koma áleiðis til for- setans og fengið svar innan sólar- hrings. Við skrifstofu Haggards hanga svo tvær innrammaðar myndir af honum og George W. Bush. Starfsfólk Hvíta hússins hefur á undanförnum vikum reynt að gera lítið úr tengslum Haggards við rík- isstjórn Bush. Tony Fratto, einn af talsmönnum forsetans, sagði blaða- mönnum nýverið að Haggard hefði „verið með“ á fáeinum af áður- nefndum símafundum en hann hefði ekki verið „virkur þátttak- andi“ í þeim. Fratto bætti því við að Haggard hefði ekki heimsótt Hvíta húsið nema „einu sinni eða tvisvar“. Safnaðarmeðlimir grétu Sá sem hrinti af stað þeirri at- burðarrás sem varð til þess að Haggard féll af stalli sínum er vændiskarl að nafni Mike Jones. Snemma á síðasta ári sagði Jones frá því að Haggard hefði um nokk- urra ára skeið greitt sér fyrir kyn- mök og þar að auki keypt handa sér eiturlyfið met-amfetamín. Haggard neitaði þessu alfarið og sagðist aldrei hafa hitt Jones. Smám saman hrönnuðust upp sannanir fyrir því að þeir Jones hefðu átt í kynferðislegu sambandi og fljótlega komst málið í hámæli um allt land. Haggard tókst einstaklega klaufalega upp þegar hann reyndi að koma sér út úr þessum vand- ræðum og var ítrekað staðinn að því að ljúga blákalt. Undir lok síð- Prestur tekinn í bólinu með vændiskarli en er nú „algjörlega gagnkynhneigður“ Vændiskarl Mike Jones leysti frá skjóðunni þegar honum ofbauð hræsnin. Ted Haggard barðist gegn lagafrumvarpi um aukin réttindi samkynhneigðra » Allt snýst um sam-kynhneigðina óg- urlegu, og lítið er minnst á að hann skuli hafa svikið konu sína í tryggðum, framið lög- brot og ítrekað sagt ósatt. Lofgjörð Ted Haggard syngur drottni lof og dýrð. Standa saman Ted og Gayle Haggard skrifuðu bæði tilfinningaþrungin bréf, sem lesin voru upp fyrir söfnuðinn. KYNHNEIGл Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Bandaríska Vogue gengur ítískuheiminum undirnafninu Biblían. Ritstjóritímaritsins heitir Anna Wintour og staðan hlýtur því að gera hana að einhvers konar guði. Að minnsta kosti toppar hún oft lista blaða og tímarita yfir áhrifa- mesta fólkið í tískuheiminum. En hver er þessi kona með stífu hár- greiðsluna og stóru sólgleraugun? Wintour fæddist í Englandi 3. nóvember 1949 en hún er bæði af enskum og bandarískum ættum. Hún ólst upp í London og fékk áhuga á tísku sem unglingur. Char- les faðir hennar var ritstjóri Even- ing Standard og ráðlagði hún hon- um strax í æsku hvernig hann ætti að höfða betur til ungdómsins í æskusveiflunni á sjöunda áratugn- um. Hún hætti í skóla 16 ára að aldri og fór heldur í þjálfun hjá stórversluninni Harrods. Hún byrj- aði í blaðamennsku árið 1970 og vann hjá misþekktum tímaritum í kjölfarið og náði stöðugum frama. Loks varð hún ristjóri breska Vogue árið 1986 og House & Gar- den ári síðar. Hún settist í ritstjóra- stólinn hjá móðurskipinu, Vogue í New York, árið 1988 og hefur ráðið ríkjum þar síðan með góðum ár- angri. Hún hefur einnig aukið veldi Vogue með stofnun Men’s Vogue, Teen Vogue og nú síðast Vogue Li- ving. Sama greiðslan frá 14 ára aldri Hún fylgist vel með straumum og stefnum en hefur sjálf haft sömu hárgreiðsluna frá 14 ára aldri. Sagt er að hún vakni fyrir sex á hverjum morgni, spili tennis, og láti svo greiða sér, og klippa ef þarf, áður en hún mætir til vinnu klukkan átta. Þó að hún sé vel þekkt innan tískuheimsins hefur kastljósið beinst enn frekar að henni fyrir til- stilli bókarinnar The Devil Wears Prada, eftir Lauren Weisberger, fyrrverandi aðstoðarkonu Wintour. Samnefnd mynd naut einnig mikilla vinsælda en þar var Meryl Streep í hlutverki harðsnúinnar ritstýru til- búna tímaritsins Runway, sem lagði sig fram um að gera aðstoðarkonu sinni lífið leitt en Anne Hathaway fór með hlutverk hennar. Í kjölfarið hefur Wintour tekið upp á því að brosa til myndavéla til að bræða frostímyndina sem fer af henni. Í veruleikanum er skrifstofa hennar þekkt fyrir nærri yfirnátt- úrlega skilvirkni. Kemur það fólki oft á óvart að erindi þess sé svarað án tafar. Hún reiðubúin að hjálpa mörgum og á móti kemur að fólk á erfitt með að segja nei við hana. Sýnir valdið á jákvæðan hátt Hún hefur vissulega notað vald sitt til góðs. Hún ræður miklu um örlög fatahönnuða og eiga hönnuðir allt frá John Galliano til Zac Posen henni mikið að þakka. Hún styður þau málefni sem hún hefur áhuga á af heilum hug. Hún hefur safnað um 1,8 milljörðum króna til styrktar Búningasafni Metropolitan-safnsins í New York. Ennfremur hefur hún safnað tæpum milljarði króna til ýmissa alnæmissamtaka. Wintour ræktar samband sitt við annað áhrifamikið fólk í tískubrans- anum. François-Henri Pinault, framkvæmdastjóri PPR, lúxussam- steypunnar sem á tískuhús á borð við Gucci, Yves Saint Laurent og Balenciaga, lýsti samskiptum sínum við Wintour í nýlegri grein Cathy Horyn hjá New York Times. Er þetta gott dæmi um hvernig hún hefur áhrif á tískuákvarðanir um allan heim: „Hún er ekki of ágeng. Hún sýnir vald sitt á mjög jákvæð- an hátt. Hún lætur þig vita að það sé ekki vandamál ef þú getur ekki gert það sem hún vill. En hún lætur þig skilja að ef þú gerðir það, myndi hún styðja við bakið á þér með tímariti sínu.“ Konan sem kynd- ir tískuofninn AP Í fremstu röð Goðsagnakenndur ritstjóri tískubiblíunnar, bandaríska Vogue, Anna Wintour, á sýningu Oscar de la Renta fyrr í mánuðinum. TÍSKA» »Hún ræður miklu um örlög fatahönn- uða og eiga hönnuðir allt frá John Galliano til Zac Posen henni mikið að þakka.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.