Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 21

Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 21 Fundarstjóri Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs DAGSKRÁ Léttur morgunverður Fundarsetning Ávarp Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Tónlist og viðskipti Barði Jóhannsson, Bang Gang Hönnun, ímynd og viðskipti Sigurður Þorsteinsson, Design Group Italia Tónlistaratriði Hundur í óskilum Nýsköpunarverðlaunin fyrir árið 2007 afhent Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Þingslit Vinsamlega tilkynnið þátttöku Rannís, sími 515 5800, rannis@rannis.is Útflutningsráð, sími 511 4000, utflutningsrad@utflutningsrad.is 2007 Nýsköpunarþing Rannís og Útflutningsráðs verður haldið fimmtudaginn 22. febrúar nk. kl. 8.00-10.00 á Grand Hótel Reykjavík. Kastljósinu verður beint að virðisaukanum frá sköpun til markaðar. Á þinginu verða veitt Nýsköpunarverðlaun fyrir árið 2007. VIRÐISAUKI SKÖPUNAR Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Pssst! Taktu þátt. Og láttu skilaboðin ganga. Fyrirtæki ársins er árleg könnun VR á aðbúnaði og ánægju starfsfólks íslenskra fyrirtækja. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt, því þannig fæst skýrari mynd af stöðu vinnustaðar þíns í samanburði við aðra. Skilafrestur er til 20. febrúar næstkomandi. »En dómari verður að ráðasínu þinghaldi. Sigurður Tómas Magnússon, settur rík- issaksóknari í Baugsmálinu, um þá ákvörð- un dómsformanns að stöðva skýrslutöku Sigurðar Tómasar af Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni. Sigurður Tómas kvað ákvörðun dómsformannsins, Arngríms Ísberg, hafa komið sér á óvart. » Síðan þeir fóru að vesenast útaf þessum vökva eru þeir hættir að taka af manni prjón- ana. Lilja Valdimarsdóttir, hornleikari í Sin- fóníuhljómsveit Íslands, eftir að tollverðir í Leifsstöð höfðu tekið vasilín og lúðraolíu af blásurum sveitarinnar í nafni öryggis. Lilja, sem fer nú prjónandi um þrjú Evr- ópulönd, upplýsir að hún noti prjóna númer tvö sem séu fínir og oddhvassir. »Ég varð að sprauta hanastrax svo hún myndi lifa á meðan ég hringdi. Egill Vagn Sigurðsson, átta ára, sem út- nefndur var skyndihjálparmaður ársins 2006. Móðir Egils Vagns er með bráðaof- næmi og féll fyrirvaralaust meðvitund- arlaus á stofugólfið á heimili þeirra á Sval- barðseyri í sumar. Egill Vagn brást hárrétt við, náði í adr- enalínpenna og sprautaði móður sína um leið og hann hringdi í Neyðarlínuna. » Suma daga förum við ekki útmeð börnin. Við bjóðum þeim ekki upp á þetta. Jónína Lárusdóttir, leikskólastjóri Fálka- borgar í Breiðholti, um svifryksmengun í nágrenni skólans. »Maður hefur aldrei séð neittþessu líkt. Magnús Flygenring, umsjónarmaður hest- húsahverfis Sörla, eftir að stórfelldar skemmdir höfðu verið unnar á bílum og húsum í Hafnarfirði. Tjónið skiptir millj- ónum króna og hafa þrír piltar á aldrinum 15 til 17 ára játað á sig verknaðinn. »Ég er þeirrar skoðunar aðengin sátt náist um þetta mál nema núverandi virkjunaráform- um sé slegið á frest. Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, í umræðu á Alþingi um frum- varp varðandi rannsóknir og nýtingu á auð- lindum í jörðu. »Loksins. Lárus H. Bjarnason, rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð, þegar íþróttahús skólans var vígt á miðvikudag. Skólinn hef- ur verið án íþróttaaðstöðu frá upphafi. »Könnunin er ekki rétt ogmaður sér á hinum marktæku stofnunum sem vinna eftir mark- vissum reglum, viðurkenndum á alþjóðavísu, eins og Gallup, að þar er Framsóknarflokkurinn í allt öðrum stærðum. Guðni Ágústsson, varaformaður Fram- sóknarflokksins, um fylgiskönnun Frétta- blaðsins um liðna helgi þar sem fylgi Fram- sóknarflokksins mældist 3,9% »Það er meiri hagnaður afóbreyttu náttúrufari, þjóðin verður að læra að virða landið og elska það. Finnbogi Jóhannsson bóndi sem var í hópi þeirra er andmæltu áformum Landsvirkj- unar um virkjun í neðanverðri Þjórsá á opnum fundi í Árnesi. Ummæli vikunnar Morgunblaðið/Sverrir Stöðvaður Sigurður Tómas Magnússon settur ríkissaksóknari í Baugsmál- inu, fer yfir gögnin í dómssal. Síðdegis á fimmtudag var hann stöðvaður í miðri spurningu við skýrslutöku af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, er dómsformaðurinn, Arngrímur Ísberg, kvað tímamörk þau sem hann hafði ákveðið liðin. asta árs viðurkenndi Haggard loks að Jones hefði sagt satt og lét í kjölfarið af störfum sínum. Hann skrifaði tilfinningaþrungið bréf sem var lesið upp fyrir söfnuðinn og það sama gerði Gayle kona hans, sem stendur þétt við hlið manns síns nú sem áður. Frétta- stofur sýndu frá því þegar lesið var upp úr bréfum þeirra hjóna á samkomu þar sem þúsundir safn- aðarmeðlima voru samankomnir og grétu margir þeirra hástöfum yfir óförum leiðtoga síns og konu hans. Ætla saman í sálfræðinám og vilja síðan lækna aðra Það kemur fátt á óvart í máls- vörn Haggards. Hann segist „breyskur eins og allir menn“ og að „hið illa“ hafi „náð tökum á sálu hans og þess vegna hafi hann gert þessa „viðurstyggilegu hluti“. Og nú, fáeinum vikum síðar, sendir hann frá sér tilkynningu þar sem hann segist vera orðinn „algjörlega gagnkynhneigður að lokinni þriggja vikna meðferð. Fjölmiðlar hafa verið duglegir við að benda á þær einkennilegu áherslur sem birtast í máli Haggards. Allt snýst um samkynhneigðina ógurlegu, og lítið er minnst á að hann skuli hafa svikið konu sína í tryggðum, fram- ið lögbrot og ítrekað sagt ósatt. Þá er ótalin hræsnin sem liggur í kjarna þessa máls og þykir vænd- iskarlinn Mike Jones hafa sýnt af sér hugrekki með því að leysa frá skjóðunni þegar honum fannst nóg um þessa hræsni, en það sem varð til þess að Jones kom fram var barátta Haggards gegn lagafrum- varpi um aukin réttindi samkyn- hneigðra. Það er svo að frétta af þeim hjónum Ted og Gayle Haggard, að þau ætla saman í mastersnám í sálfræði og vilja síðan helga líf sitt því að lækna fólk af samkynhneigð sinni. Slíkt tal fær þó lítinn hljóm- grunn í fjölmiðlum hér og síðast nú í vikunni áréttaði dagblaðið New York Times að það er í raun rangt að orða það sem svo að með- ferð af þessu tagi sé umdeild, því engar rannsóknir innan læknis- eða sálfræðinnar hafi sýnt að hægt sé að breyta kynhneigð fólks með þar til gerðri meðferð. Þannig þyk- ir umræðan um þessi mál meðal kristinna bókstafstrúarmanna vís- vitandi ruglandi og villandi og er henni líkt við tilraunir þeirra til að reyna að draga þróunarkenn- inguna í efa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.