Morgunblaðið - 18.02.2007, Síða 27
í sínum áherslum. Ég hef stutt og reynt að
leggja mitt af mörkum í allri róttækri kven-
frelsisbaráttu og ég tel mig eiga þó nokkuð í
því, þótt það sé hálfvandræðalegt að þurfa að
segja það sjálfur, að Vinstrihreyfingin -
grænt framboð er sá merkisberi róttækrar
kvenfrelsisbaráttu, sem flokkurinn er í dag.
Ég gekk í Femínistafélgið fyrir mörgum ár-
um og ég lít á mig sem róttækan femínista,
enda tel ég að það sé gríðarlega mikilvægt að
karlar leggi sitt af mörkum í þessari baráttu
og þess vegna vil ég sýna minn litla lit í
verki.“ - Hversu föst eru vinstri græn í þeirri
afstöðu að ekki verði um frekari stóriðju að
ræða á Íslandi? Ef þið eigið kost á aðild að
ríkisstjórn, sem myndi þýða, að um einhverja
frekari stóriðju yrði að ræða, mynduð þið
fallast á það, eða mynduð þið standa fast á
ykkar prinsipum og láta þar með tækifærið
til þess að komast til valda og áhrifa framhjá
ykkur fara? „Við yrðum mjög föst fyrir í
þessum efnum, vegna þess að það er ákaflega
miðlægur hluti af okkar baráttu að stöðva
þessa stefnu af og okkar víglína er einfald-
lega sú, að allt sem hægt er að stöðva og öll
áform sem eru ekki þegar óafturkræf, þau
verða stöðvuð.
Við höfum ekki rætt um þetta á þeim nót-
um, að það liggi fyrir af okkar hálfu, að þetta
yrði úrslitakostur, en ég lít þannig á, að það
væri meira og minna óaðgengilegt fyrir
Vinstrihreyfinguna - grænt framboð, að fara
inn í ríkisstjórn við aðrar aðstæður en þær,
að allt sem hægt væri að stöðva, yrði stöðv-
að.“ - Þú hefur fengið ýmsa ágjöfina úr þínu
eigin kjördæmi, vegna eindreginnar andstöðu
þinnar við nýtt álver við Húsavík, sem
myndi, hvað sem öðru líður, notast við vist-
væna orku, gufuafl. Ertu ekki í verulegum
vandræðum heima í héraði og hvaða raun-
hæfu lausnir í atvinnu- og byggðamálum
bjóðið þið vinstri græn upp á sem valkost við
nýtt álver sem myndi veita fleirihundruð
manns atvinnu og skapa mikil verðmæti?
„Nei, ég er ekki í neinum vandræðum með
mína afstöðu og hef rökstutt af krafti hvers-
vegna svo nauðsynlegt er að ná fram því
stóriðjustoppi sem við berjumst fyrir. Ég hef
nú orðið einhverja reynslu í þessum efnum
og það verður væntanlega ekki erfiðara að
bera höfuðið hátt með þessa afstöðu á Húsa-
vík og nágrenni núna, borið saman við það
sem var á Reyðarfirði og Austfjörðum fyrir
fjórum árum. Ekki bognuðum við Þuríður
Backmann mikið í hnjáliðunum þá, eða
Vinstrihreyfingin - grænt framboð í heild
sinni. Þegar upp er staðið, þá held ég að það
sé borin meiri virðing fyrir þeim stjórn-
málamönnum sem eru sjálf um sér sam-
kvæmir og aka ekki seglum eftir vindi, í þágu
einhverra meintra tímabundinna atkvæða-
hagsmuna í einstökum héruðum.“
- Er þetta ekki spursmál um um atvinnu-
og byggðahagsmuni þessa svæðis, sem þú ert
reiðubúinn til þess að fórna og býður upp á
ekkert í staðinn?
„Nei, enn hefur þú á röngu að standa. Við
hverfum að sjálfsögðu ekki frá okkar grund-
vallarstefnu, þótt sú krafa sé gerð til okkar, í
þágu þess að eitthvert tiltekið svæði í okkar
kjðrdæmi eigi meintra hagsmuna að gæta.
Það kemur aldrei til greina.
Við vinstri græn erum ekki með atvinnu-
stefnu sem byggir á þeirri hugsun að þróun
atvinnulífsins eigi að ráðast af miðstýrðum
stórákvörðunum um verksmiðjur, sem sé
skellt inn í atvinnulíf viðkomandi svæða. Við
viljum fjölbreytt, gróskumikið atvinnulíf, þar
sem vaxtarmöguleikar og tækifæri alls staðar
eru nýtt.“
Viss varnarbarátta
- Þetta er nú bara pólitískt bla, bla og
minnir helst á boðskap Kvennalistans sáluga
um prjónastofur og fjallagrasatínslu. Hvaða
raunhæfa valkosti ætla vinstri græn að bjóða
upp á?
„Við eigum að hlú að vaxtarmöguleikum í
atvinnulífinu á almennum forsendum og leyfa
fjölbreytni að blómstar. Við erum með ótal
kraftmiklar vaxtargreinar innan íslensks at-
vinnulífs, eins og ferðaþjónustu, ýmsar
tækni- og þekkingargreinar og sívaxandi hlut
þjónustustarfsemi í samfélaginu. Húsavík er
mjög gott dæmi um það, því það sem hefur
fleytt Húsavík í gegnum áföll á undanförnum
árum, er mikil opinber þjónusta; þar er Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga, framhaldsskóli á
Húsavík, sýslumaður og lögregla.“
- Steingrímur, þetta eru ekki frum-
atvinnugreinar, heldur þjónusta. Heldur þú
að það sé bara hægt að breyta Íslandi í eina
allsherjar þjónustumiðstöð, þar sem engin
verðmætasköpun og framleiðsla á sér stað?
„Eru þetta ekki störf, sem ég er að nefna?
Er ekki þjónustan að taka til sín sífellt
stærri hlut í þjóðfélaginu?“
- Hver á að standa undir kostnaðinum af
þjónustunni, þarf ekki framleiðni til þess að
fjármagna hana?
„Jú, heldur betur, enda er mikil framleiðni
í samfélagi eins og Húsavík, sem skilar sín-
um hlut í þjóðarbúið. Þar er sem betur fer
enn fiskvinnsla, þar er Norðlenska, sem vinn-
ur úr landbúnaðarafurðum í héraðinu og þar
eru mörg ný sem rótgróin, lítil og meðalstór
matvæla- og iðnfyrirtæki.
Ég viðurkenni fúslega að víða á lands-
byggðinni hefur verið háð erfið varnarbarátta
í atvinnumálum, en þau vandamál verða ekki
leyst með eintómum álverum.“
- Steingrímur segir að vinstri græn séu í
grundvallaratriðum andvíg framkvæmdum á
miðhálendinu og í óbyggðum, en fjarri lagi
sé, að alhæfa á þann veg að vinstri græn
munu ávallt og alfarið leggjast gegn öllum
framkvæmdum. „Við viljum knýja í gegn
gjörbreytt viðhorf gagnvart umgengni um
landið og náttúruna. Við byggjum alla okkar
pólitík á grundvallarreglum sjálfbærrar þró-
unar. Þær eru okkar mikilvægasta leiðsögn.
Við munum engar þær framkvæmdir sam-
þykkja, sem stangast á við þær reglur og
umhverfisréttinn eins og hann er séður í því
ljósi. Af því leiðir að við höfnum algjörlega
ósjálfbærum fjárfestingum og framkvæmdum
á sviði atvinnu- og orkumála.“
Engin áform um þjóðnýtingu
- Munuð þið beita ykkur fyrir auknum rík-
isafskiptum, ef þið komist í ríkisstjórn?
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum
beita okkur fyrir einhverri ríkisvæðingu á
nýjan leik. Við höfum þó heitið því að færa
þjóðinni aftur Ríkisútvarpið og um það sam-
mæltist stjórnarandstaðan. En við erum ekki
með nein áform um þjóðnýtingu í samfélag-
inu.
Við drögum hins vegar mjög hreinar víg-
línur hvað það varðar, að við höfnum allri
einkavæðingu í velferðarþjónustunni. Við
munum slá út af borðinu allar hugmyndir
Sturlu Böðvarssonar og ríkisstjórnarinnar um
einkavæðingu í samgöngukerfinu og sömuleið-
is hugmyndir um einkavæðingu Landsvirkj-
unar. Við verðum alveg ófeimin við að beita
félagslegum úrræðum, eftir því sem við á, í
sambandi við jafnvægi í byggð landsins og
annað í þeim dúr.“
- Steingrímur segir að hækkun auðlinda-
gjalds í sjávarútvegi komi vissulega til greina
svo fremi sem afkoma greinarinnar leyfi það,
enda verði þar um samræmda gjaldtöku að
ræða. Skoða þurfi ráðstöfun gjaldsins til
sveitarfélaganna eða viðkomandi svæða í stað
ríkisins „Hugmyndin hefur jú verið að koma
samræmi á gjaldtöku fyrir afnot af sameig-
inlegum auðlindum þjóðarinnar á öðrum svið-
um. Þar er vert að nefna orkulindir í þjóð-
lendum.“
- Steingrímur segir sömuleiðis að vinstri
græn vilji beita sér fyrir því að lagaákvæðið
um að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar
verði stjórnarskrárbundið, sem og aðrar auð-
lindir þjóðarinnar af því tagi. Hann segir að
vinstri græn séu að ræða áherslur sínar í
sjávarútvegsmálum, í undirbúningi fyrir
landsfund Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs, sem haldinn verður um næstu
helgi, 23.-25. febrúar. Þar verði þær áherslur
kynntar. Hann geti þó sagt, að vinstri græn
vilji taka á kvótaleigu og kvótabraski strax.
„Auk þess teljum við nauðsynlegt að taka á
aðgengi innlendrar fiskvinnslu að hráefni. Það
er alltaf að takmarkast, vegna þess að það fer
æ minna magn yfir fiskmarkaði og æ meira
óunnið úr landi. Þar kemur til greina að grípa
inn í og setja því ákveðnar skorður, eða hrein-
lega að skylda tiltekinn hluta aflans, sem ekki
fer þá beint til vinnslu hjá sama aðila, að
hann gangi yfir fiskmarkað. Þetta erum við
að ræða sem fyrstu aðgerðir, sem vonandi
væri hægt að fá menn til að sameinast um og
í framhaldinu yrði síðan sest yfir grundvall-
arbreytingar til framtíðar,“ segir Steingrímur.
Líkur á ríkisstjórnarþátttöku
„Ég vænti mikils af landsfundi vinstri
grænna, sem er ákveðin samstillingar- og bar-
áttusamkoma þar sem frambjóðenda- og bar-
áttusveit okkar kemur saman. Við færðum
hann til, og höldum í aðdraganda kosninga,
rétt eins og flestir flokkar gera. Það er ekki
svo, að við séum eitthvað vanbúin stefnulega
séð. Við erum alveg tilbúin til þess að hefja
kosningabaráttuna og raunar betur tilbúin en
nokkru sinni fyrr.
Við vitum að þetta verður kraftmikill lands-
fundur, þar sem eindrægni, bjartsýni og bar-
áttugleði mun ráða för. Fundurinn verður sá
langstærsti sem við höfum haldið. Fulltrúar
verða líklega vel á sjötta hundraðið. Þarna
leggjum við lokahönd á það sem snýr að okk-
ar kosningaáherslum.
Við munum leggja sérstaka áherslu á heil-
brigðis- og landbúnaðarmál á þessum lands-
fundi. Atvinnumálin og nýsköpun munu einnig
skipa veglegan sess á landsfundi. Það er auð-
vitað okkar svar við hinni einhæfu þrengsla-
hugsun stóriðju og álvæðingarstefnunnar,
sem er forneskjuviðhorf í atvinnumálum, sem
við erum enn að glíma við, því miður.“
Sláum botninn í viðtalið Steingrímur, með
spurningunni: Verða vinstri græn í næstu rík-
isstjórn Íslands?
„Ég tel að það séu að minnsta kosti 75%
líkur á því að Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð verði í næstu ríkisstjórn Íslands.“
agnes@mbl.is
ur róttækur femínisti
Morgunblaðið/RAX
Bjartsýnn Steingrímur J. Sigfússon, formaður
vinstri grænna er bjartsýnn og segir 75% líkur
á því að VG verði í næstu ríkisstjórn Íslands.
» „Við höfnum allri einkavæð-
ingu í velferðarþjónustunni.
Við munum slá út af borðinu
allar hugmyndir Sturlu Böðv-
arssonar og ríkisstjórnarinnar
um einkavæðingu í samgöngu-
kerfinu og sömuleiðis um einka-
væðingu Landsvirkjunar.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 27