Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 41 Trukkarnir M orgunblaðið hefur ítrekað fjallað um trukkana sem aka um þjóðvegina á verulegum hraða með þunga farma. Nú hafa yfirvöld brugðizt við og ákveðið að tvöfalda þjóðvega- kerfið út frá höfuðborginni á allra næstu árum. Þegar því verki verður lokið mun ástandið batna. En á meðan er sama hætta á ferðum vegna flutn- ingabílanna á þjóðvegunum. Þeir aka hratt, þeir hægja sjaldnast á sér þegar þeir mæta bíl og eng- inn veit hvort farmurinn er tryggilega bundinn niður eða hvort hann fellur á bílinn, sem mætir flutningabílnum. Enginn veit heldur hvort tengi- vagninn aftan í flutningabílnum sveiflast til með ófyrirsjáanlegum afleiðingum þegar bílarnir mæt- ast. Þótt ákvarðanir hafi verið teknar um að tvö- falda þjóðvegakerfið að hluta til verður hættu- ástandið óbreytt þar til því verki er lokið. Þess vegna er sá vandi sem er til staðar í dag óleystur. Hættuástandið úti á þjóðvegunum er það sama og áður og svo verður um skeið. Það er alveg sama hvernig á það er litið. Það ríkir óöld á vegum og götum í þéttbýli á Íslandi. Þar leika menn sér í rússneskri rúllettu dag hvern. Það er féleg iðja eða hitt þó heldur. Sennilega er ástandið í umferðinni eitt skýrasta dæmið um agaleysið sem hér ríkir. Íslendingar hafa tilhneigingu til að stæra sig af agaleysinu. Það er barnalegt. Kannski er þetta vísbending um að hin nýríka þjóð kann ekki enn að vera til. Hvað skal gera? Í Morgunblaðinu í dag, laugardag, er Sturla Böðvarsson samgönguráðherra spurður um það hvað gera skuli í tilefni af því að Rannsóknarnefnd umferðar- slysa hefur mælzt til þess að viðurlög verði endurskoðuð og hert. Samgönguráðherra segir: „Við erum búin að láta endurskoða allt viðurlaga- og sektarkerfið og stórhækka allar sektir nú nýverið og finnst nú ýmsum allmikið að gert í þeim efnum … Það sem ég tel mikilvægast í þessu samhengi er að flutn- ingafyrirtæki taki til í sínum ranni og að tekið verði á gæðaeftirliti í þeirri starfsemi svo ekki komi til þess að hver flutningabíllinn á fætur öðr- um sé illa búinn og farmur ófrágenginn og stór- hætta á ferðum … Ég er sannfærður um það eftir að hafa heyrt í forstjórum flutningafyrirtækja út af þessum málum að það er mikill vilji þar. Þeir átta sig á því að þessar hertu sektarreglur eru mjög alvarlegar gagnvart þeim.“ Átta þeir sig á því? Alla vega sýnist það ekki hafa átt við um eigendur þess bíls sem missti bæði gröfufleyg og pall á miðjum Vesturlands- vegi eða bílsins sem Morgunblaðið birti mynd af í gær, föstudag, með lausan farm að hluta. Duga sektir, jafnvel þótt þær hafi verið hækkaðar? Stundum þarf að grípa til mjög róttækra að- gerða til þess að hreinsa upp ósiði. Og sennilega þarf að grípa til miklu róttækari aðgerða í um- ferðinni hér en beitt hefur verið til þessa. Giuliani, fyrrverandi borgarstjóra New York- borgar, er þakkað að hafa hreinsað glæpi af göt- um stórborgarinnar. Líklega er það nú fullmikið sagt að honum hafi tekizt það en augljóst að hann náði miklum árangri í þeirri viðleitni. Er ekki kominn tími til að beita mjög róttæk- um aðgerðum til þess að stoppa óöldina í umferð- inni á Íslandi? Það er grundvallarmisskilningur að líta svo á að hér séu á ferðinni alvarleg umferðarlagabrot. Þetta eru ekki slík brot. Þessi brot snúast um mismunandi meðvitaða tilraun til manndráps. Ekki í þeim skilningi að lagt sé upp með slíkan ásetning heldur á þann veg að hver og einn sem hagar sér á þann veg í umferðinni sem hér er lýst á að vita að afleiðingarnar af framferði hans geta orðið dauði annars einstaklings. Um leið og horft er á óöldina í umferðinni frá þessu sjónarhorni breytist viðhorfið. Þá geta af- leiðingarnar orðið mun alvarlegri fyrir þá sem aka um á 190 km hraða eða leggja af stað með illa frágenginn farm á flutningabíl. Hér þarf pólitískur leiðtogi að stíga fram og taka til hendi. Viðbrögð Vilhjálms Þ. Vilhjálms- sonar borgarstjóra í spilakassamálinu voru til fyrirmyndar. Borgarstjóri hefur einnig brugðizt hart við fréttum um kaupstefnu fólks í klámiðnaði sem til stendur að halda hér á Íslandi. Er ekki tímabært að borgarstjórinn í Reykja- vík, sem sýnt hefur skemmtileg tilþrif með óvenjulegum hætti í öðrum málum, taki sér fyrir hendur að verða eins konar Giuliani í umferð- armálum á Íslandi og stöðvi óöldina í umferðinni á götum borgarinnar? Það er ljóst að einhver þynging sekta og ann- arra refsinga dugar ekki til. Það verður að taka svo hart á ofsaakstri ungra pilta, lífshættulegum hlössum á flutningabílum og ribbaldahætti trukkanna út á þjóðvegunum að enginn láti sér detta í hug það framferði sem nú viðgengst í um- ferðinni. Það er hægt að draga úr ökuhraða trukkanna úti á þjóðvegunum með þar til gerðum búnaði. Það er hægt að setja upp svo strangt eftirlitskerfi með flutningabílunum að enginn þeirra leggi af stað fyrr en gengið hefur verið úr skugga um það af þriðja aðila að þeir séu hæfir til aksturs í um- ferðinni. Vilja forstjórar flutningafyrirtækjanna það? Það er hægt að setja hraðatakmarkanir í alla bíla sem fluttir eru til Íslands. Vilja menn það? Silkihanskarnir duga ekki lengur – því miður. Nú er kominn tími til ákveðnari aðgerða. » Það er alveg sama hvernig á það er litið. Þaðríkir óöld á vegum og götum í þéttbýli á Íslandi. Þar leika menn sér í rússneskri rúllettu dag hvern. Það er féleg iðja eða hitt þó heldur. Sennilega er ástandið í umferðinni eitt skýrasta dæmið um aga- leysið sem hér ríkir. Íslendingar hafa tilhneigingu til að stæra sig af agaleysinu. Það er barnalegt. Kannski er þetta vísbending um að hin nýríka þjóð kann ekki enn að vera til. rbréf Morgunblaðið/Júlíus ungan mann sem ekki sinnti stöðvunarmerkjum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Maðurinn var með tvo farþega í bílnum og ók á allt að 190 km hraða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.