Morgunblaðið - 18.02.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 47
Í DAG SUNNUDAG KL. 14:00 - 15:00
Akurhvarf 1 - 203 Kóp
TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR STRAX
31.400.000 ALLT AÐ 90% FJÁRMÖGNUN
Eigum eftir 3 glæsilegar 126,4 - 127,3 fm
4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsi við Akur-
hvarf í Kópavogi. Íbúðirnar eru fullfrá-
gengnar með gólfefnum, vönduðum inn-
réttingum og flísalögðu baðherbergi.
Þvottahús innan íbúðar. Stæði í bíla-
geymslu fylgir. Glæsilegt útsýni!
Sölumaður Draumahúsa á staðnum.
Allt að 90% lán!
Fr
u
m
— SÖLUSÝNING —
SMÁRAFLÖT 36
SÖLUSÝNING Í DAG Á MILLI KL. 14-15
Eitt af þessum eftirsóttu og einstaklega vel staðsettu einbýlishúsum neðst á Flötunum í
Garðbæ. Húsið er einstaklega vel staðsett á mjög stórri lóð rétt við hraunið. Umhverfis húsið
er fallegur og skjólsæll garður í mikilli rækt með fjölbreyttum trjágróðri. Tvöfaldur bílskúr. Hiti
er í stéttum og innkeyrslu að bílskúr. Húsið og bílskúrinn eru samtals 243 fm að stærð. Lóð
hússins er mjög stór, 1.224 fm, og býður upp á mikla möguleika. Við einfalda skoðun virðist
húsið vera í góðu ytra ástandi en að innan er húsið að mestu upprunalegt.
Sölumenn Húsakaupa sýna húsið í dag á milli kl. 14-15.
Upplýsingar gefur Jópn Grétar Jónsson sölumaður í síma 840 4049.
Halldór Ingi Andrésson löggiltur fasteignasali
FYRIR nokkrum dögum tók ég
það upp á Alþingi við forsætisráð-
herra, þar sem menntamálaráð-
herra sá sér ekki fært að vera við
umræðuna, hvort ríkisstjórn Ís-
lands hefði með formlegum hætti
kynnt sér þá alvarlegu stöðu sem
upp er að koma í grunnskólum
landsins. Tekið utan um málið og
sýnt því pólitískan áhuga.
Alvarleg staða sem er nú uppi að
hluta vegna djúpstæðrar óánægju
kennara með kjör sín sem eru bein
afleiðing af lagasetningu rík-
isstjórnarinnar á verkfall kennara
fyrir tveimur árum. Því ber rík-
isstjórnin beina ábyrgð á ástand-
inu í grunnskólum landsins.
Fyrir nú utan að skaffa sveit-
arfélögunum tekjustofna til verk-
efnanna. Þar er vitlaust gefið og
þarfnast gagngerrar endurskoð-
unar.
Ríkisstjórnin rak kennarana
óánægða til starfa og nú blasa hóp-
uppsagnir við komi ekki til veru-
legar breytingar.
Geir forsætisráðherra sagði hins
vegar fátt. Reyndar ekki annað en
að honum kæmi þetta ekki við og
málið væri alfarið á forræði sveit-
arfélaganna.
Dæmalaust svar og fálæti hjá
forsætisráðherra þjóðarinnar þeg-
ar slíkt ástand er yfirvofandi í
grunnskólum landsins. Menntun
barnanna er undir ef stór hluti af
atgervi kennarastéttarinnar geng-
ur út úr skólum landsins vegna
óánægju með kjör sín. Samt skilar
Geir auðu, segir pass nú. Það var
annað uppi á teningnum þegar
hann og ríkisstjórnin settu lög á
kjaradeilu kennaranna fyrir tveim-
ur árum og sendi þá inn í skólana
fulla vonbrigða og gremju með
laun sín og kjör.
Nei, Geir kemur ekki það við þó
að skólastarfi sé teflt í óvissu og
uppnám út af aðgerðum ríkisvalds-
ins fyrir tveimur árum. Honum
kom málið við þegar ríkisstjórnin
setti lögin á kjaradeiluna. Ekki nú
þegar óþægileg og alvarleg staða
er uppi.
Mikill metnaður það hjá rík-
isvaldinu fyrir hönd íslenskra
skóla. En segir kannski allt sem
segja þarf um metnað hægri flokk-
anna í menntamálum.
Ríkisstjórnin
rak þá til starfa
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar.
Björgvin G. Sigurðsson
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn