Morgunblaðið - 18.02.2007, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Falleg 107 fm 5 herb. íbúð á 2.
hæð, merkt 0201, með sérinngangi
af svölum auk 17 fm geymslu og
bílastæði í kjallara. Íbúðin skiptist í
forstofu, hol, rúmgott eldhús með
hvítri innréttingu, bjarta stofu með
útgengi á vestursvalir, 4 rúmgóð
herbergi og endurnýjað baðher-
bergi með þvottaaðstöðu. Parket
og flísar á gólfum. Laus til afhend-
ingar strax. Verð 27,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Íbúð merkt 0201. Verið velkomin.
Skeljagrandi 6
Góð 5 herb. íbúð með sérinngangi
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Falleg 86 fm íbúð á 2. hæð, risi,
þ.m.t. 8,8 fm geymsla í kjallara.
Íbúðin skiptist í forstofu, bjartar
samliggjandi stofur, 2 herbergi,
eldhús með ljósum innréttingum og
baðherbergi. Þvottaaðstaða í íbúð
og þvottaherb./geymsla í kjallara.
Auðvelt er að breyta annarri stof-
unni í herbergi. Gott geymslupláss
undir súð. Góð staðsetning.
Göngufæri við Háskólann!!
Áhv. 14,0 millj. Verð 22,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
Brávallagata 24
Falleg 4ra herb. íbúð
Opið hús í dag frá kl. 14-16
OPIN HÚS Í DAG
Til sölu heil húseign 2361,5
fm ásamt ca 100 fm millilofti
(skrifstofur o.fl.). Stórar
innkeyrsluhurðir 3-6 metrar.
Auðvelt er að skipta húsinu
upp í minni einingar. Engar
súlur, húsið er límtréshús.
Húsið er á frábærum stað í
bænum. Lóðin er hornlóð,
ca 7500 fm, möguleiki að
byggja verslunar-/skrifstofuhúsnæði á lóðinni.
Upplýsingar gefur Helgi Jón sölufulltrúi, s. 893-2233. Verðtilboð.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Kaplahraun - Hf. - Heil húseign
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Sími 533 4040
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.Dan V.S. Wiium hdl.,
STÓRT OG GLÆSILEGT NÝLEGT
EINBÝLISHÚS Í KÓPAVOGI
Húsið er byggt árið 1999 og er það á tveimur hæðum með tvöföld-
um, innbyggðum bílskúr. Stærð alls 328,6 fm. Sérlega vandaðar
innréttingar og gólfefni. Frábær staðsetning innst í lokaðri götu.
Gott útsýn. Eign fyrir vandláta.
Upplýsingar gefa Dan V.S. Wiium í s. 896 4013
og Kristinn Wiium í s. 896 6913.
lögg. fasteignasali
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Sérlega vönduð og glæsileg 132,3 fm útsýnis-
íbúð í klæddu húsi. Þar af 18 fm bílskúr og 13,8
fm yfirbyggður sólskáli. Vandaðar innr. og nýtt
eldhús, kirsuberjaparket og flísar á gólfum.
Glæsileg stáltæki í eldh., Blomberg/Brandt.
Frábært útsýni. Stutt í alla þjónustu, verslanir og
leikskóli alveg við. Verð 29,8 millj.
LYNGMÓAR - 210 GBÆ
Upplýsingar gefur
Ingvar Ragnarsson sölufulltrúi
s. 822 7300.
Glæsilegt 5 herb. einlyft einbýli með inn-
byggðum bílskúr samtals 160,1 fm. Rúm-
góð forstofa, náttúruflísar á gólfi, vandaðir
skápar, góð gestasnyrting m. glugga. Inn
af forstofu er rúmgott þvottaherbergi m.
skáp og innréttingu, gluggi, flísar á gólfi
og veggjum, sérinngangur í þvottaher-
bergi. Þaðan innangengt í góðan bílskúr
m. geymslu/millilofti, skápur m. vaski. Frá
forstofu er gengið inn í hol. Mjög fallegt, vandað eldhús með rúmgóðri borðstofu við
eldhús, vönduð innrétting og tæki, keramikhelluborð. Útgengi út í garðinn (verönd) frá
eldhúsi og borðstofu. Góður sjónvarpsskáli og björt stofa, svefnálma, 3 ágæt barna-
herbergi og rúmgott svefnherbergi m. skáp. Glæsilegt baðherbergi m. vandaðri inn-
réttingu. Granít borðplata. Baðkar og sturtuklefi. Hiti í gólfi, gluggi. Gólfefni eru nýleg,
parket og náttúruflísar. Hiti í gólfum í eldhúsi og borðstofu. Innfelld lýsing að mestu.
Sérlega fallegur garður í suður. Ca. 100 fm verönd m. skjólgirðingu. Hellulagt bílaplan
m. hita. Sérlega vönduð og falleg eign. Róleg og góð staðsetning. V. 58,5 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sigurhæð - Gbæ. Einbýli
FÉLAG grunnskólakennara og
Skólastjórafélag Ís-
lands gera kjara-
samning vegna
grunnskólans við
Launanefnd sveitar-
félaga en hún semur
fyrir hönd allra sveit-
arfélaga í landinu.
Öllum landsmönnum
er ljóst hversu
hörmuleg samskipti
þessara aðila voru í
síðustu kjaradeilu ár-
ið 2004. Afleiðingar
hennar var hið langa
verkfall félaganna á
haustdögum 2004. Flestir töldu að
aðilar myndu læra af þeirri deilu
og reyna að koma samskiptum sín-
um á jákvæðari nótur.
Í samningnum sem var undirrit-
aður 17. nóvember 2004 er sú
fræga grein 16.1. Þar segir m.a.:
„Aðilar skulu taka upp viðræður
fyrir 1. september 2006 og meta
hvort breytingar á skólakerfinu
eða almenn efnahags-
og kjaraþróun gefi til-
efni til viðbragða og
ákveða þær ráðstaf-
anir sem þeir verða
sammála um.“ Stjórnir
FG og SÍ töldu að fyr-
ir löngu hefðu skapast
aðstæður til að fara
yfir þessu mál og
sendu LN bréf þar um
bæði í desember 2005
og mars 2006. Fóru
félögin fram á við-
ræður en ekkert varð
af fundum. Fulltrúar
áðurnefndra félaga og fulltrúar
LN hittust eins og fyrir var mælt
23. ágúst sl. og hafa síðan hist á
sautján fundum. Fundatörn þessi
hefur því miður verið árangurs-
laus. Á fundi 29. ágúst bauð LN
að hækka áramótahækkunina 06/
07 samkvæmt samningnum úr
2,25% í 3% gegn því að uppsagn-
arákvæði samningsins 31.12. 2007
verði ekki nýtt. Á níunda fund-
inum 10. janúar sl. ítrekaði LN
fyrra tilboð sitt og bauð einnig að
áramótahækkunin 07/08 hækkaði
úr 2,25% í 3,5% gegn því að samn-
ingnum yrði ekki sagt upp um
næstu áramót.
Undirritaður sem hefur tekið
þátt í þessum viðræðum fyrir hönd
SÍ ætlar ekki að fara að velta sér
upp úr því hver beri ábyrgð á því
að samkomulag hefur ekki tekist.
Til þess er hann of tengdur mál-
inu. Aftur á móti legg ég það í
dóm samfélagsins hvað því finnst
um þessi tilboð. Ég bið foreldra og
almenna sveitarstjórnarmenn að
velta þessum tölum fyrir sér mið-
að við það sem aðrir hafa verið að
fá í bætur og þá hækkun sem
kjararáð ákvað á dögunum handa
þeim sem ekki hafa samningsrétt.
Þessa fundi hafa setið níu
manns, þrír fulltrúar frá LN, þrír
frá FG og þrír frá SÍ. Fyrir við-
ræðunefndina hafa komið fulltrúar
frá ASÍ, SA, SÍB og LR og út-
skýrt hvernig hefur verið staðið að
greiðslu bóta vegna efnahags- og
kjaraþróunar. Aðilar hafa hlustað
á sömu rökin hjá öllum þessum
fulltrúum. Fulltrúar LN telja
þetta fullbætt með 0,75% hækkun,
en fulltrúar KÍ telja bæturnar
þurfi að lámarki að vera um 6%
miðað við að samningnum verði
ekki sagt upp um næstu áramót.
Ég furða mig á því hvernig þessi
hópur getur eftir öll þessi fund-
arhöld verið með eins mismunandi
túlkun á staðreyndum málsins og
raun er. Þegar ég velti þessu fyrir
mér setur að mér hroll þegar ég
hugsa til næstu alvöru kjara-
viðræðna aðila.
Fyrir liggur að aðilar eru sam-
mála um tvennt. Í fyrsta lagi
nauðsyn þess að fara í vinnu við
að greina stöðu grunnskólamála og
leitast við að móta framtíðarsýn
og finna leiðir til jákvæðrar
skólaþróunar. Ennfremur að
greina gildandi kjarasamning
m.t.t. þeirrar framtíðarsýnar og
hugmynda um skólaþróun sem
fyrir liggja og skilgreina hverju
þurfi að breyta í kjarasamningi
svo ákvæði hans styðji við nauð-
synlega framþróun í samræmi við
sameiginlega framtíðarsýn í skóla-
málum.
Hér erum við komin að kjarna
málsins. Mismunandi sýn á efna-
hagsþróun frá árinu 2004 til ársins
2006 virðist ætla að verða til þess
að eyðileggja þá merkilegu vinnu
sem menn voru sammála um að
fara í, en fyrst þarf að finnast við-
unandi lausn á grein 16.1. Telja
menn virkilega, að fulltrúar KÍ
komi samstarfsfúsir að þessum
samstarfsvettvangi um skólaþróun
með fulltrúum sveitarfélaga eftir
að hafa fengið aðeins 0,75% bætur
vegna efnahagsþróunar síðustu
tveggja ára?
Hvers vegna er ekki hægt
að koma á jákvæðu samstarfi
um grunnskólann?
Jón Ingi Einarsson fjallar um
samstarf Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kenn-
arasambandi Íslands
Jón Ingi Einarsson
» Viðræður Kennarasambands
Íslands og Launa-
nefndar sveitarfélaga
vegna grunnskólans
hafa nú staðið yfir í tæpt
hálft ár. Hver verður
afleiðingin?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Skólastjórafélags Íslands.