Morgunblaðið - 18.02.2007, Page 56
56 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
UNICEF, Barna-hjálp
Sam-einuðu þjóðanna, hefur
gefið út nýja um vel-ferð
barna í 21 aðildar-ríki OECD.
Vel-ferðin er mest í Hollandi,
Svíþjóð, Danmörku og
Finnlandi en minnst í
Banda-ríkjunum og
Bret-landi. Ísland var ekki
form-lega með í könnuninni
vegna ónógra gagna.
Í könnuninni er skoðaður
efna-hagur barnanna,
heilsu-far og öryggi, kennsla,
fjölskyldu-líf, hegðun og
áhættu-hegðun. Einnig var
tekið tillit til þess sem
börnunum fannst um eigin
hagi. Alls staðar má
eitt-hvað finna að aðbúnaði
barnanna.
15% barna í Bretlandi,
Bandaríkjunum, á Írlandi,
Spáni, í Portúgal og á Ítalíu
eru fá-tæk. Í Bretlandi er
lang-mest áfengis-drykkja,
gálaust kyn-líf og
fíkniefna-neysla.
Sam-skipti barna við
for-eldra sína og önnur börn
eru lökust í Banda-ríkjunum
og Bret-landi, líklega vegna
samkeppnis-andans, eða
„frumskógar-lögmálsins“
sem þar ríkir. Bresk
stjórn-völd segja skýrsluna í
mörgum til-fellum byggjast á
gömlum gögnum.
Skýrsla um börn í iðn-ríkjunum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Íslensk börn voru form-lega ekki með ́i skýrslunni vegna ónógra gagna.
Stjórn George W. Bush
Bandaríkja-forseta hefur
áveðið að gefa eftir til að ná
samkomu-lagi við stjórn-völd
í Norður-Kóreu um að þau
loki um-deildu kjarnorku-veri
í skiptum fyrir mikla olíu.
Í samkomu-laginu lofa
Norður-Kóreumenn ekki að
eyða kjarna-vopnum sem
þeir ráða þegar yfir og talið
er að þeir eigi nóg af
auðguðu úrani í fleiri
kjarnorku-sprengjur.
John Bolton, fyrr-verandi
sendi-herra Banda-ríkjanna
hjá Sam-einuðu þjóðunum,
segir að ekki eigi að
verð-launa
Norður-Kóreumenn fyrir að
loka kjarnorku-verinu án
þess að afsala sér
kjarna-vopnum. „Þetta
sendir röng skila-boð til
annarra ríkja sem vilja koma
sér upp kjarna-vopnum.“
BNA og
N-Kórea
ná sam-
komu-lagi
Grammy verð-launin
Um seinustu helgi voru
Grammy tónlistar-verðlaunin
af-hent. Sveita-hljómsveitin
Dixie Chicks hlaut alls 5
verð-laun á há-tíðinni, m.a.
fyrir besta lagið og bestu
hljóm-plötuna. Rokk-sveitin
The Red Hot Chili Peppers
fékk 4 verð-laun, söng-konan
Mary J. Blige hlaut 3
verð-laun og líka fyrrum Idol
sigur-vegarinn Carrie
Underwood.
BAFTA verð-launin
Bresku
kvikmynda-verðlaunin,
BAFTA, voru af-hent í London.
Leikararnir Forrest
Whitaker og Helen Mirren
voru verðlaunuð fyrir bestan
leik í aðal-hlutverki fyrir leik
sinn í myndunum Last King of
Scotland og The Queen.
Mörgum þykir líklegt að
Óskars-verðlaunin verði
einnig þeirra í lok
mánaðarins.
BRIT, bresku
tónlistar-verðlaunin
Enska hljóm-sveitin Kaiser
Chiefs fékk 3 verð-laun þegar
Brit-verðlaunin voru veitt í
vikunni. Coldplay, James
Blunt og Green Day fengu 2
verð-laun. Björk var til-nefnd
sem besta alþjóð-lega
tónlistar-konan en Madonna
vann. Coldplay fékk verð-laun
fyrir bestu breið-skífuna,
X&Y, og bestu smá-skífuna,
„Speed of Sound“.
Stutt
Íslensk stjórn-völd eru nefnd í
nýrri skýrslu Evrópu-nefndar
gegn kynþátta-fordómum og
skorti á umburðar-lyndi.
Stjórn-völd eru hvött til að taka
á miklu brott-falli nemenda
sem eru af er-lendu bergi
brotnir úr framhalds-skólum.
Einnig er mælt með að
börnum sé gefinn kostur á
annarri trú-fræðslu en
kristinni í skólum. Einnig að
um-sókn um byggingu mosku
og íslamskrar
menningar-miðstöðvar verði
tekin til at-hugunar „án frekari
tafa“. Stjórn-völd eru hvött til
að veita er-lendum
ríkis-borgurum atvinnu-réttindi
milliliða-laust og að
íslensku-kennsla verði
ókeypis og á skrifstofu-tíma.
Íslensk stjórn-
völd hvött til
breytinga
Mál-verkið Hvíta-sunnudagur eftir Kjarval
hefur komið í leitirnar í Danmörku. Það er
málað í kúb-ískum anda um 1917–1919
þegar Kjarval hafði ný-lokið námi í
Konung-legu dönsku list-akademíunni.
Kristín G. Guðnadóttir, list-fræðingur og
einn höfunda bókar um Kjarval, sagði það
mjög skemmti-legt að verkið hefði fundist.
Mest hafi verið leitað að því á Íslandi, en
vitað var um til-vist þess þar sem til voru
skissur að því. „Verkið er frá þessu kúb-íska
tíma-bili og gefur okkur ítar-legri og fyllri
mynd af því tíma-bili á ferli Kjarvals.“
Aðalsteinn Ingólfsson list-fræðingur segir
að vel megi búast við að fleiri verk komi í
ljós eftir marga helstu list-málara
þjóðarinnar. „Það eru örugg-lega ekki öll kurl
komin til grafar hvað Kjarval snertir því að
hann flæktist víða og var mikil-virkur.“
Lista-safn Reykjavíkur hefur áhuga á að
eignast verkið sem verður bráð-lega boðið
upp í Danmörku.
Kúbískt verk
eftir Kjarval fundið
Mál-verkið Hvíta-sunnudagur eftir Kjarval.
Rauða krossinn valdi Egil
Vagn Sigurðsson, 8 ára,
skyndihjálpar-mann ársins
2006 fyrir rétt við-brögð á
neyðar-stundu. Í fyrra
bjargaði Egill lífi móður
sinnar, Ástu Laufeyjar
Egilsdóttur, þegar hún hneig
niður á heimili þeirra og
missti með-vitund vegna
bráða-ofnæmis. Egill Vagn
brást skjótt við og sótti
adrenalín-penna í veski
móður sinnar og sprautaði
hana í hand-legginn, en
hringdi síðan í Neyðar-línuna
112 eftir hjálp.
„Ég vissi alveg hvað ég átti
að gera af því mamma var
búin að segja mér það.
Mamma væri kannski dáin ef
ég hefði ekki sprautað hana
strax,“ segir Egill Vagn sem
býr á Svalbarðs-eyri.
Skyndihjálpar-
maður ársins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Egill Vagn
Geir Þorsteinsson sigraði í
formanns-kjöri KSÍ um
síðustu helgi. Aðrir sem gáfu
kost á sér voru Halla
Gunnarsdóttir og Jafet
Ólafsson.
„Það er af nógu að taka
fyrir mig því þetta ár er óvenju
stórt hjá KSÍ,“ segir Geir og
bætir við að hann sé ekki
farinn að huga að rót-tækum
breytingum innan KSÍ enn
sem komið er enda er rekstur
og starf-semi sam-bandsins í
mjög góðu horfi. Geir mun
byrja á að skipu-leggja öll þau
mörgu verk-efni sem tengjast
60. afmælis-ári
sam-bandsins.
Geir er nýr
for-maður KSÍ
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Geir Þorsteinsson
for-maður KSÍ. Netfang: auefni@mbl.is