Morgunblaðið - 18.02.2007, Qupperneq 66
|sunnudagur|18. 2. 2007| mbl.is
staðurstund
Anna Nicole Smith er enn á
milli tannanna á fólki, en nú
deila menn um hvar og hvenær
eigi að jarðsetja hana. » 68
fólk
Í sjónspegli dagsins segir Bragi
Ásgeirsson frá ævintýralegu
ferðalagi sínu til eldfjallalands-
ins Ekvador. » 69
sjónspegill
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
hefur verið ráðin framkvæmda-
stjóri Útflutningsskrifstofu ís-
lenskrar tónlistar. » 69
tónlist
Leikstjórinn og leikarinn Clint
Eastwood hefur hlotið frönsku
heiðursorðuna sem er mikill
heiður þar í landi. » 71
kvikmyndir
Sveitasöngvarinn Kenny Ches-
ney og fyrrum eiginmaður leik-
konunnar Renée Zellweger seg-
ist ekki vera hommi. » 79
fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Íkvöld í Héðinshúsi fara frambaráttu- og styrktartónleikartil handa Varmársamtök-unum en fram koma Sigur
Rós, Amiina, Bogomil Font og Flís,
Pétur Ben og Benni Hemm Hemm.
Mikill hiti hefur verið undanfarið í
Mosfellsbænum vegna fyrirhug-
aðrar tengibrautar þar, sem myndi
m.a. liggja í gegnum hina fallegu og
sérstæðu Álafosskvos. Þar á hljóm-
sveitin Sigur Rós m.a. hljóðver sem
yrði lítt starfhæft með brunandi bíla
allt um kring með tilheyrandi há-
vaða og mengun. Margvísleg önnur
starfsemi fer þarna fram í skjóli
kyrrðar og friðar og það er blómlegt
um að litast í kvosinni, stemning sem
nú er í verulegri hættu.
Varmársamtökin eru íbúasamtök í
Mosfellsbæ sem hafa það að leið-
arljósi að standa vörð um framtíð
Varmársvæðisins. Einn íbúanna á
svæðinu er Orri Páll Dýrason, trym-
bill Sigur Rósar, og hefur hann verið
einn af meginskipuleggjendum mót-
mælatónleikana ásamt fulltrúum
samtakanna og fleiri hagsmunaaðila.
Brostnar forsendur
„Tónleikunum er ætlað að vekja
athygli á þessu máli um leið og þeim
er ætlað að styrkja Varmárs-
amtökin,“ útskýrir Orri. „Umrædd-
ur vegur myndi fara inn á Varmárs-
væðið. Samkvæmt lögum má ekki
byggja neitt innan 50 metra beltis,
sitt hvorum megin við ána. Vegurinn
yrði hins vegar í 35 metra fjarlægð.
Svo yrði að gera nýjan Álafossveg
en hann yrði í fjórtán metra fjarlægð
frá henni. Þannig að það er verið að
fara mjög gróflega inn á þetta
verndaða svæði. Þá ákvað umhverf-
isráðherra að framkvæmdirnar
þyrftu ekki að fara í umhverfismat
sem er alveg ótrúlegt. Við erum sem
sagt að berjast fyrir því að þetta fari
í umhverfismat og Varmársamtökin
eru búin að kæra þennan úrskurð
umhverfisráðherra. Með tónleik-
unum er einfaldlega verið að safna
peningum svo þau geti haldið þess-
ari baráttu áfram.“
Orri segir að Hildur Mar-
grétardóttir, nágrannakona hans og
maður hennar, hafi verið að senda
bréf til stjórnvalda í um ár út af
þessu máli. Hildur er ein af fjöl-
mörgum íbúum í Álafosskvosinni
sem hafa beitt sér af alefli í málinu.
„Þetta er því ekkert nýtilkomið,“
segir Orri. Spurður um bein áhrif á
hljómsveitina hans og vinnu þeirra í
hljóðverinu segir hann ákveðnar for-
sendur brostnar.
„Við keyptum Sundlaugina vegna
þess að hér er ró og friður, rétt utan
við Reykjavík. En með veginum yrði
slíkt á bak og burt og við gætum
ekki starfað með sama hætti og nú.
Við hefðum einfaldlega ekki áhuga á
að vera hérna áfram. Með veginum
kemur bæði hávaða- og rykmeng-
un.“
„Fokkjú“
Blaðamaður spyr hvort Orri sé að
upplifa þetta sem eitt risastór
„fokkjú“ gagnvart þeim og íbúunum.
„Algjörlega. Þetta er „fokkjú“ til
þessa hverfis. Það átti að rífa þetta
allt en það var hópur fólks sem
byggði þetta upp, gerði allt fínt og
flott. Og nú á að malbika yfir þetta.
Það er fullt í gangi hérna, Álafoss-
búðin er hérna og Ásgarður, sem er
verndaður vinnustaður. Það koma
hingað 600 rútur á ári með ferða-
menn og þeirri starfsemi væri fórn-
að með tilkomu vegarins.“
Meðlimir Sigur Rósar hafa alla tíð
haft sig í frammi þegar mál af þessu
tagi koma upp og eru óhræddir við
að ljá málefnum sem þeir hafa trú á
stuðning sinn.
„Þetta er allt mjög eðlilegt fyrir
okkur,“ segir Orri. „Og það er stað-
reynd að það er of oft verið að valta
yfir náttúruna. Tökum bara þennan
veg þarna yfir Kjöl sem dæmi eða
jarðraskið í Heiðmörk á dögunum.
Það er bara komið nóg.“
Framkvæmdir við veginn hafa
verið stöðvaðar, og verið er að rann-
saka umhverfisáhrif hans nánar.
„Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála stoppaði veginn að
frumkvæði okkar,“ segir Orri. „Lög-
maður okkar sendi inn bréf og þetta
var stöðvað í framhaldi af því. Það er
ótrúlegt að þurfa að standa í þessu.
Það er ótrúlegt að íbúar þurfi að sjá
til þess að það sé farið eftir lögum og
reglum í svona efnum. Að það þurfi
að kasta sér fyrir gröfur og vera í
endalausu stappi og bréfaskriftum
til að benda á þetta.“
Að lokum segir Orri að efnisskrá
Sigur Rósar verði með nokkuð
óhefðbundnu sniði á tónleikunum.
„Við verðum með svona óraf-
magnað sett, eitthvað sem við höfum
bara gert einu sinni áður. Það var
fyrir framan ca tuttugu manns á
Kárahnjúkum (hlær).“
Tónlist | Baráttu- og styrktartónleikarnir Lifi Álafoss!
„Ótrúlegt að þurfa að standa í þessu“
Morgunblaðið/ÞÖK
Mótmæli „Það er ótrúlegt að íbúar þurfi að sjá til þess að það sé farið eftir lögum og reglum í svona efnum.“
Morgunblaðið/ Björg Sveinsdóttir
Friður „Við keyptum Sundlaugina vegna þess að hér er ró og friður, rétt utan við Reykjavík. En með veginum yrði slíkt á bak og burt og við gætum ekki
starfað með sama hætti og nú. Við hefðum einfaldlega ekki áhuga á að vera hérna áfram. Með veginum kemur bæði hávaða- og rykmengun,“ segir Orri.
Héðinshúsið verður opnað klukkan
20.00 í kvöld, sunnudagskvöld.
Miðaverð á tónleikana er 3.200
krónur og fer miðasala fram á
midi.is.