Morgunblaðið - 24.02.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
ERLENDU kokkarnir tólf sem taka þátt í mat-
reiðslukeppni Food & fun fengu í gær klukkustund til
að kaupa það hráefni sem þeir töldu sig þurfa fyrir
átökin í dag. Matreiðslumennirnir mega aðeins notast
við íslenskt hráefni en í keppninni eiga þeir að útbúa
einn fiskrétt, einn kjötrétt og eftirrétt.
Íslenskt hráefni valið fyrir keppnina
SÉRHANNAÐUR rykbindibíll frá
Reykjavíkurborg hefur verið tekinn
í notkun til að hefta hið hættulega
svifryk sem lengi sett hefur svip
sinn á borgina, öllum til mikils
ama. Rykbindibíllinn var sendur af
stað nú í vikunni og dældi átta þús-
und lítrum af sérstakri magn-
esíumklóríðblöndu á götur og er
ekki vanþörf á þegar mengunin
rýkur upp í margföld heilsuvernd-
armörk eins og raunin var á
fimmtudag. Klukkan eitt eftir mið-
nætti mældist rykmengun nær
2.200 míkrógrömm á rúmmetra á
færanlegri mælistöð. Heilsuvernd-
armörk eru 50 míkrógrömm á rúm-
metra.
Auk magnesíumbílsins voru not-
aðir sópbílar, ruslsugur og vatns-
bílar.
Haldið var út á göturnar með
þennan tækjabúnað þegar loks
viðraði til gatnahreinsunar í vik-
unni en þess má geta að magn-
esíumbíllinn verður í notkun næstu
dægrin og sendur út eldsnemma á
morgnana á meðan veður helst
þurrt og hætta er á svifryksmeng-
un. Vegfarendur sem sáu til hans á
götunum í gær ráku sumir hverjir
upp stór augu og furðuðu sig á því
að verið væri að úða vökva á göt-
urnar í frostinu með tilheyrandi
hálkumyndun að því er þeir töldu.
Þess ber þó að geta að rykbindiefn-
ið er frostþolið og má úða því á
götur í allt að 20 stiga frosti.
Magnesíumlögurinn er blandaður í
nýrri saltpækilsstöð sem sett var
upp á vegum framkvæmdasviðs í
upphafi þessa árs.
Að sögn Guðbjarts Sigfússonar,
verkfræðings og deildarstjóra á
gatna- og eignaumsýslu Reykjavík-
urborgar, hafa staðið yfir tilraunir
með magnesíumbílinn undanfarin
misseri og loks hefur hann verið
tekinn í notkun, þótt strangt til
tekið sé enn um tilraun að ræða.
„Það er viss áfangasigur að vera
byrjaður á þessu,“ segir hann og
bætir við að árangurinn eigi eftir
að meta með því að mæla ryk-
mengunina og átta sig á áhrifunum
af þessum aðgerðum. „Þetta er á
byrjunarstigi, en ef vel tekst til, þá
verður vonandi framhald á þessu.
Jafnframt vonumst við til þess að
ökumenn hætti að nota nagladekk.“
Fram hefur komið að svif-
ryksmengun í Reykjavík og í sveit-
arfélögunum í kring nái hámarki
þegar ryk sem safnast hefur saman
í vætutíð þornar og þyrlast upp frá
umferðinni. Þessu má líkja við fín-
efni á yfirborði malbiksins, sem er
95 prósent náttúrulegt berg og
fimm prósent tjara, sem þornar,
þyrlast upp og breytist í svifryk.
Magnesíumbíllinn ákveðinn
áfangasigur í svifryksstríðinu
Morgunblaðið/Júlíus
Vörpulegir Hinrik Pálmason á magnesíumbílnum eftir vaktina í gær. Hald-
ið verður áfram í dag að úða á stofngötum borgarinnar.
Vænta má að margir
fagni nýjum rykbindibíl
sem á að nota til að
herja á svifryk sem
ógnar heilsu fólks á
þurrum vetrardögum.
orsi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Mengun Næg verkefni eru handa
öllum hreinsitækjum borgarinnar.
INGVAR Ásmunds-
son, skákmeistari og
fyrrverandi skóla-
meistari, er látinn, 72
ára að aldri. Ingvar
fæddist 10. júlí 1934.
Foreldrar hans voru
Hanna Ingvarsdóttir
og Ásmundur Ólason.
Ingvar lauk stúd-
entsprófi frá MR 1953.
Hann stundaði nám í
stærðfræði við Há-
skóla Íslands, við
Kaupmannahafnarhá-
skóla og Stokk-
hólmsháskóla. Hann lauk BA-námi í
stærðfræði 1968, en stundaði einnig
nám í forritun og kerfisfræði.
Ingvar kenndi stærðfræði við ML
og MR, en lengst kenndi hann við
MH. Hann var skipaður konrektor
MH 1977 og starfaði sem áfanga-
stjóri hjá FB 1978. Ingvar starfaði
hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur
1968–1970 og aftur sem fjármála-
stjóri 1978–1980. Árið 1980 var hann
skipaður skólameistari Iðnskólans í
Reykjavík og því starfi gegndi hann
til ársins 2000.
Ingvar var einn af
fremstu skákmönnum
landsins. Hann var í
landsliði Íslands og
keppti á ólympíuskák-
mótum 1968, 1974 og
1978. Hann varð skák-
meistari Íslands árið
1979. Árið 1987 hlaut
hann meistaratitil Al-
þjóðaskáksambands-
ins (FIDE). Hann sat
um tíma í stjórn Tafl-
félags Reykjavíkur og
í stjórn Skákksam-
bands Íslands. Hann gaf út kennslu-
bók í skák og ritstýrði blaðinu
Heimsmeistaraeinvígið í skák 1972.
Hann sá einnig um skákþætti í Al-
þýðublaðinu og RÚV um árabil.
Ingvar tók þátt í ýmsum fé-
lagsstörfum. Hann var formaður Fé-
lags menntaskólakennara, skóla-
nefndar Vélskólans og
Skólameistarafélags Íslands.
Eftirlifandi eiginkona Ingvars er
Guðrún Jóhanna Þórðardóttir og
eignuðust þau þrjú börn.
Andlát
Ingvar Ásmundsson
„MÍN skoðun er sú að svona tillaga
kæmi aldrei til alvarlegrar umræðu
né afgreiðslu hjá skipulagsráði,“
segir Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulagsráðs Reykjavík-
urborgar, um mynd sem birt var í
Morgunblaðinu á fimmtudag og í
gær af teiknaðri tillögu formanns
Torfusamtakanna um hvernig
Laugavegur 41–45, svonefndur
Frakkastígsreitur, gæti litið út.
Hanna Birna segir umræðu um
skipulag á reitnum á síðum Morg-
unblaðsins ekki sanngjarna, hvorki
gagnvart þeirri uppbyggingu sem
hafi verið á Laugavegi né þeim að-
ilum sem þar framkvæmi, og vísar til
bókunar skipulagsráðs. „Þetta er
eitthvað sem er hvorki til umræðu né
afgreiðslu, og kæmi aldrei til greina
á Laugaveginum,“ segir Hanna
Birna.
Í bókun skipulagsráðs segir m.a.
að ráðið leggi mikla áherslu á að lóð-
arhafar athugi sérstaklega útlit húsa
við Laugaveg 41 og 45 og skoði
möguleika á því að leyfa uppruna-
legri götumynd að halda sér. „Ráðið
leggur áherslu á að um er að ræða
tillögu um breytingu á deiliskipulagi
og tekur á þessu stigi enga afstöðu
til mögulegs útlits nýbygginga,“ seg-
ir einnig í bókuninni, sem gerð var
seint á síðasta ári.
„Hvorki til
umræðu né
afgreiðslu“
Rík áhersla lögð á að
halda götumyndinni
VÍKINGUR Arnórs-
son, prófessor og yfir-
læknir, er látinn, 82
ára að aldri. Víkingur
fæddist 2. maí 1924.
Foreldrar hans voru
Þóra Sigurðardóttir og
Arnór Björnsson.
Víkingur lauk stúd-
entsprófi frá MA árið
1944 og embættisprófi
í læknisfræði frá HÍ
1952. Hann sótti sér
framhaldsmenntun í
Danmörku, Svíþjóð og
Bretlandi.
Víkingur var hér-
aðslæknir á Hólmavík að loknu námi,
en hóf störf á Landspítala 1955.
Hann var yfirlæknir Blóðbankans
um tíma, en 1958 kom hann til starfa
á barnadeild. Hann varð yfirlæknir á
barnadeild 1974 og
prófessor í barnasjúk-
dómafræði við HÍ
sama ár.
Víkingur gegndi
trúnaðarstörfum fyrir
lækna og var m.a. um
tíma formaður
Læknafélags Reykja-
víkur. Hann sat í
stjórn læknaráðs
Landspítalans, í
stjórn Reykjavíkur-
deildar Rauða kross
Íslands, var um tíma
forseti læknadeildar
HÍ og vararektor HÍ
1979–1982.
Víkingur var kvæntur Stefaníu
Gísladóttur sem lést 2005. Þau eign-
uðust sex börn, en Víkingur eignað-
ist einnig tvö börn fyrir hjónaband.
Víkingur Arnórsson
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞETTA er svona hápunktur mat-
arhátíðarinnar,“ segir matreiðslu-
maðurinn Sigurður L. Hall um mat-
reiðslukeppni sem fram fer í dag í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnar-
húsi. Keppnin er haldin í tengslum
við matarhátíðina Food & fun og
munu tólf erlendir kokkar elda þrjá
rétti úr íslensku hráefni. Keppnin
hefur verið haldin undanfarin ár en
sú nýjung er í ár að áhorfendur fá að
smakka á keppnisréttunum.
Kokkarnir eru staddir hér vegna
hátíðarinnar og eins og undanfarin
ár eru sex þeirra frá Bandaríkjunum
og sex frá Evrópu. Þeir munu elda
einn fiskrétt, einn kjötrétt og einn
eftirrétt og hafa til þess fjórar
klukkustundir. „Svo bera þeir rétt-
ina fram fyrir níu dómara, sem eru
hver örðum merkilegri. Það eru
frægir erlendir matreiðslumenn,“
segir Sigurður. Verðlaun verða veitt
fyrir bestu einstöku rétti og svo fyrir
alla réttina saman.
Þrátt fyrir að matreiðslumennirn-
ir taki keppnina mjög alvarlega
verður léttleikinn í fyrirrúmi og seg-
ir Sigurður að dagskráin í Hafnar-
húsinu verði afar áhorfendavæn.
„Þetta er sirkus og mjög gaman að
fylgjast með þessu og spennandi.
Það verður einnig mikið kynnt af
mat og þekktur ostagerðarmeistari
frá Whole Foods mun sýna listir sín-
ar. Einnig er nýjung í ár að áhorf-
endur fá að smakka á réttunum frá
hverjum kokki.“ Verðlaunaafhend-
ing fer svo fram um klukkan hálf-
fimm.
Pantað skömmu eftir áramót
Food & fun hefur fest sig í sessi
sem ein vinsælasta hátíðin sem hald-
in er í Reykjavík og ekki er það til að
draga úr vinsældum hennar að Vetr-
arhátíð í Reykjavík er á sama tíma.
Sigurður segir að þrátt fyrir að að-
sókn á veitingastaðina hafi verið „í
toppi“ undanfarin ár sé áhuginn enn
að breiðast út. Þá hefur það heyrst
frá veitingamönnum að fólk panti sér
borð fljótlega eftir að nýtt ár gengur
í garð. Er þetta því mikil lyftistöng
fyrir veitingahúsin en tví- og þrísetið
er á stöðunum meðan á hátíðinni
stendur.
Fá að smakka réttina