Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 19
BANDARÍSKU tæknifyrirtækin
Cisco Systems og Apple hafa náð
samkomulagi um nýtingu á vöru-
merkinu iPhone sem felur það í sér
að bæði fyrirtækin munu geta not-
að merkið fyrir vörur sínar.
Apple kynnti í síðasta mánuði
nýjan farsíma í anda iPod tónlist-
arspilarans og sagði hann munu
verða kallaðan iPhone. Stuttu síðar
kom svo á daginn að Cisco hafði
tryggt sér vörumerkið árið 2000.
Samkvæmt nýja samkomulaginu
munu fyrirtækin einnig vinna sam-
an að öryggismálum og sam-
skiptum milli neytenda og fyr-
irtækja.
Tíu ára gamalt nafn
Þá hefur öllum lagalegum mála-
rekstri tengdum málinu verið hætt,
en Cisco hafði sakað Apple um að
hafa með viljandi og skaðlegum
hætti brotið gegn réttindum Cisco á
iPhone nafninu. Cisco eignaðist
réttinn til nafnsins þegar það
keypti annað fyrirtæki, Infogear
árið 2000, en það fyrirtæki hafði
skráð merkið fjórum árum fyrr, í
marsmánuði árið 1996.
Apple og Cisco Systems
ná saman um iPhone
Reuters
Síminn Forstjóri Apple, Steve Jobs, kynnti iPhone-farsímann í janúar á
þessu ári og búist er við að hann muni koma á markað í Evrópu fyrir árslok.
FRÁ áramót-
um hefur ís-
lenska Úrvals-
vísitalan hækkað
meira en helstu
hlutabréfavísitöl-
ur Norðurlanda,
Evrópu, Banda-
ríkjanna og Asíu.
Í Hálffimm-
fréttum Kaupþings kemur fram að
hún hafi hækkað um tæp 15% frá
áramótum og að norrænu vísitöl-
urnar hafi einnig flestar hækkað
nokkuð.
Finnska Hex-vísitalan er í öðru
sæti yfir mestu hækkanirnar frá
áramótum og hefur hún hækkað
um 8,4% og því næst kemur danska
KFX-vísitalan sem hefur farið upp
um 8,3% á sama tímabili.
Engin af samanburðarvísitölun-
um hefur lækkað frá áramótum en
Dow Jones-vísitalan hefur hækkað
minnst eða um 1,8%.
Vísitalan
hækkar mest
SLÁTURFÉLAG Suðurlands
skilaði rúmlega 23 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári, en hagnaður
félagsins árið 2005 nam rúmum 343
milljónum. Mest munar um að sölu-
hagnaður eigna var um 190 millj-
ónum króna lægri á síðasta ári en
árið áður. Þá námu fjármagnsgjöld
tæpum 159 milljónum króna sam-
anborið við um 49 milljónir árið
2005.
Eigið fé er tæpir 1,6 milljarðar
og er eiginfjárhlutfallið 42%.
Rekstrartekjur samstæðu Slátur-
félags Suðurlands námu rúmum
fimm milljörðum króna árið 2006,
en voru tæpir 4,9 milljarðar árið áð-
ur og hækkuðu um 4% milli ára.
Aðrar tekjur jukust úr 28 millj-
ónum króna í 41 milljón króna.
Veltufé frá rekstri var 365 millj-
ónir króna árið 2006, samanborið
við 355 milljónir árið 2005.
Heildareignir Sláturfélagsins 31.
desember námu um 3,7 milljörðum.
Tekjur SS
aukast um 4%
SAMSKIP hafa bætt við tveimur
skipum á siglingaleiðunum milli
meginlands Evrópu, Skandinavíu,
Rússlands og Eystrasaltslandanna.
Kemur þetta fram í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu.
„Þrátt fyrir að við höfum aukið
flutningsgetu okkar á þessum leið-
um um helming fyrir tæpu ári dugir
það ekki til. Eftirspurnin eftir gáma-
flutningum á þessum mikilvægu
flutningsleiðum er alltaf að aukast
þar sem æ fleiri viðskiptavinir vilja
frekar nýta sjóflutninga en land-
flutninga, því þeir eru bæði hag-
kvæmari og umhverfisvænni,“ segir
Jens Holger Nielsen, framkvæmda-
stjóri gámaflutningaþjónustu Sam-
skipa.
Flutningaskipið Samskip Explor-
er, sem flutt getur 803 gámaeining-
ar, verður í siglingum milli Hull og
Rotterdam, með viðkomu á Norður-
löndum, en Anna G, sem flytur 550
gámaeiningar, verður í siglingum
milli Helsingjaborgar og Eystra-
saltslandanna.
Fleiri skip í
siglingum
◆
◆