Morgunblaðið - 24.02.2007, Page 25

Morgunblaðið - 24.02.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 25 SUÐURNES LANDIÐ Eftir Gunnlaug Árnason Stykkishólmur | Nýr leikskóli var formlega tekinn í notkun í Stykk- ishólmi á dögunum. Með tilkomu hans breytist mikið aðstaða nem- enda til náms og leiks og eins að- staða starfsfólks. St. Franciskussystur stofnuðu leikskóla í Stykkishólmi 7. nóvem- ber 1957 og ráku til ársins að sveit- arfélagið tók við rekstrinum. Allan tímann hefur leikskólinn haft að- stöðu á spítalanum. Húsnæðið þjónaði ekki lengur þeim kröfum sem gerðar eru og því var ráðist í það mikla verk að byggja nýjan skóla. Leikskólinn er 470 fermetrar að gólfflatarmáli og gert er ráð fyrir að hægt verði að stækka hann um 80 fermetra við vesturgaflinn ef bæta þarf við fjórðu deildinni. Byrjað var á byggingunni í maí- mánuði 2005 og var Skipavík að- alverktaki. Bygging leikskólans tók um 16 mánuði. Kostnaður við nýja skólann og lóðina er áætlaður um 180 milljónir króna. Fjölbreytni í starfi Nýi leikskólinn skiptist í þrjár deildir sem hafa fengið sín nöfn, Vík, Ás og Nes, allt gömul og gild örnefni af svæðinu. Hver deild skiptist nú í 3 rými sem auðveldar skiptingu í hópa og fjölbreytni í starfi. Að auki eru listasmiðja, vinnuherbergi og salurinn sem er sameiginlegt rými. Sigrún Þórsteinsdóttir er skóla- stjóri leikskólans og Elísabet Björgvinsdóttir aðstoðarskóla- stjóri. Þær voru að vonum ánægð- ar með að vera fluttar með starfið í nýjan leikskóla. Strax í upphafi voru gerðar miklar kröfur til hús- næðisins. Allt starf á að vera á for- sendum barnanna, þannig að hús- næðið sé góð umgjörð fyrir öflugt og þroskandi starf. „Við vorum mjög heppnar að starfsfólkið fékk tækifæri til að vinna mjög náið með hönnuði húss- ins hjá Teiknistofunni Arkís. Við funduðum með honum á öllum stig- um á byggingartíma. Við sjáum hugmyndir okkar út um allt hús og við erum ánægðar. Deildirnar eru vel skipulagaðar og vel nýttar og sama má segja um sameiginlega rýmið,“ segja þær Sigrún og El- ísabet. Þær segja að allt aðrar og meiri kröfur séu gerðar til starfsins sem fer fram á leikskóla en áður fyrr. Foreldrar telja leikskóla góða við- bót við uppeldi barna sinna og verði að standa undir þeim vænt- ingum. Í dag er það svo að næstum öll börn koma í leikskólann, hvort sem báðir foreldrar eru útivinnandi eða ekki. Inngöngu í leikskólann fá börn sem eru orðin eins og hálfs árs og að skólaskyldualdri. „Við er- um með breiðan aldurshóp sem hefur misjafnar þarfir. Fyrir þessu öllu var hugsað í hönnun skólans. Við erum hvað ánægðastar með hve vel hefur tekist til með hönnun skólalóðarinnar. Útisvæðið er stórt. Það er skjólgott og fjölbreytt með hólum og hæðum og ýmsum krefjandi verkefnum fyrir alla ald- urshópa. Einn af kostum er að leik- skólinn er í útjaðri bæjarins. Það er stutt í sveitina og þann stóra heim sem er fyrir utan skólalóðina eins og hesthúsin, nýræktina og fjárhúsin,“ segja skólastjórarnir. Alls eru skráð 78 börn í leikskól- ann og um þau hugsa 21 starfsmað- ur í þrettán og hálfu stöðugildi. Leikskólinn í Stykkishólmi er nú fluttur inn í nýtt og glæsilegt húsnæði „Við sjáum hugmyndir okkar út um allt húsið“ Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Í nýjum leikskóla Börnin kunnu vel að meta það þegar nýi leikskólinn í Stykkishólmi var tekinn í notkun enda er aðstaðan til fyrirmyndar. Í HNOTSKURN »Leikskóli tók til starfa íStykkishólmi 7. nóvember 1957 að frumkvæði St. Franc- iskussystra og sáu þær alfarið um rekstur hans. »Árið 1980 var skólinngerður að heilsársskóla með fjárframlagi frá Stykk- ishólmsbæ. »Sveitarfélagið tók viðrekstrinum árið 1997. »Leikskólinn hefur nú feng-ið til afnota nýtt og glæsi- legt húsnæði. »Nú eru 78 börn í skól-anum. Þorlákshöfn | Efnt verður til minning- artónleika um Svandísi Þulu Ásgeirs- dóttur í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, næst- komandi mánudag klukkan 18. Svandís Þula lést í bílslysi á Suðurlandsvegi í desember síðastliðnum en hún hefði orð- ið sex ára næstkomandi mánudag. Fjöldi listamanna kemur fram á tón- leikunum. Nefna má söngvarana Leone Tinganelli og Guðrúnu Árnýju Karls- dóttur sem ásamt hljómsveit flytja lagið Þulu sem Leone samdi í kjölfar bílslyss- ins. Þá mun leikskólakór Bergheima syngja nokkur lög. Í kórnum eru elstu börn leikskólans sem voru leikfélagar Svandísar Þulu þegar hún bjó í Þorláks- höfn. Minnast Svandísar Þulu með tónlist Skeiða- og Gnúpverjahreppur | „Við lýsum yfir þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda í neðrihluta Þjórs- ár, og bendum á eftirfarandi: Þessi virkjun- aráform hafa gríðarlega neikvæð umhverf- isáhrif í sveitarfélaginu, ræktað land og gróið fer undir lónin ásamt ýmsum nátt- úruperlum í og við ána,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundi í Félagi eldri borgara í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Fram kemur að í Þjórsárhrauninu eru hriplekar jarðskjálftasprungur sem liggja út í ána. Við hækkað vatnsborð í fyrirhug- uðum lónum óttist margir að jarðvatns- staða hækki í neðri hluta sveitarinnar. Þá bendir fundurinn á að fyrirhugaðir varn- argarðar við uppistöðulónin yrðu reistir á helsta jarðskjálftasvæði landsins. „Við teljum að öflun raforku til aukins ál- iðnaðar á suðvesturhorni landsins réttlæti ekki þessi virkjunaráform. Við lýsum yfir fullum stuðningi við baráttu landeigenda á bökkum Þjórsár við að halda jörðum sínum óskertum til búrekstrar,“ segir einnig. Eldri borgarar áhyggjufullir vegna virkjana Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Reykjanesbær | Verkefnisstjóri for- varna hjá Reykjanesbæ vonast til að samvinna takist um að bjóða skiln- aðarbörnum upp á ákveðin úrræði, í kjölfar málþings og vinnustofu sem efnt var til um áhrif skilnaðar á börn og leiðir til úrbóta. „Áfram ábyrg“ var yfirskrift mál- þingsins sem haldið var í Kirkjulundi, Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í gær. Málþingið er samvinnuverkefni Keflavíkursóknar, fjölskyldu- og fé- lagsþjónustu Reykjanesbæjar og Kjalarnessprófastsdæmis. Þessi samvinna var Hjördísi Árnadóttur fé- lagsmálastjóra ofarlega í huga þegar hún ávarpaði málþingið. Hún kvaðst vona að ráðstefnan skilaði meiri sam- vinnu, „samvinnu foreldra sem eru að slíta eða hafa þegar slitið samvistum, bæði kyn- og fósturforeldra. Sam- vinna er líklegust til að hjálpa þeim sem eru að takast á við skilnað og samvinna foreldra hjálpar ekki síður börnum þeirra að komast í gegnum erfiða tíma. Við vonum líka að þessi ráðstefna skili okkur betri og mark- vissari samvinnu faghópa og stofnana sem koma að málefnum fjölskyldna þegar skilnaður hjóna á sér stað,“ sagði Hjördís. Kynntar rannsóknir Fjölmörg erindi voru flutt á mál- þinginu og nálguðust frummælendur efnið frá ýmsum hliðum. Undir lok þingsins í gær voru síðan pallborðs- umræður sem séra Skúli Sigurður Ólafsson stjórnaði. Á þinginu voru meðal annars kynntar nýjar niðurstöður rannsókna sem tengjast málefninu. Sigrún Júl- íusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, og Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjúnkt við kennslu- fræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík, sögðu frá niðurstöðum rannsókna sem þau hafa stjórnað. Fram kom meðal annars að marktæk fylgni væri á milli skilnaðar foreldra og þess hvernig börnum þeirra líður. Hera Ósk Einarsdóttir, verkefnis- stjóri forvarna hjá Reykjanesbæ, kvaðst ánægð með málþingið og þær upplýsingar sem fram komu. Tveir fyrirlesarar komu frá fjöl- skylduþjónustu lúthersku kirkjunnar í Marburg í Þýskalandi. Fram kom hjá Eriku Beckmann að tilfinninga- tengslin skiptu miklu máli um það hvernig börnin upplifðu skilnað for- eldra sinna. Þau stæðu utan við allar ákvarðanir og gætu ekki haft bein áhrif á það hvernig sambandinu við foreldrana væri háttað eftir skilnað sem og breytingar á þeirra nánasta umhverfi. Í dag verður vinnustofa um efnið þar sem gestirnir frá Marburg miðla enn frekar af reynslu sinni en þeir standa meðal annars standa fyrir þjónustu við skilnaðarbörn á aldrin- um 10 til 12 ára. Hera Ósk vonast til og gerir í raun ráð fyrir að þessi vinna leiði til þess að Reykjanesbær og Keflavíkursókn hafi samstarf um að koma á skipulegri þjónustu við þessi börn. Vonast eftir þjónustu við börn eftir skilnað Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Í HNOTSKURN »Áfram ábyrg er yfirskriftráðstefnu um áhrif skiln- aðar á börn sem haldin er í Keflavík. »„Allt of mörg börn eru þol-endur vegna ákvarðana fullorðinna sem varða þó ekki síður þeirra líf, en þau hafa sjaldnast nokkuð um þær að segja,“ sagði félagsmálastjóri Reykjanesbæjar. »Á málþingi um sama efni ídag er hugað að úrræðum á þessu sviði. Áfram ábyrg Þátttakendur í ráðstefnu um skilnaði og börn komu víða að en flestir voru þó af Suðurnesjum. Í dag verður vinnustofa um málefnið. Reykjanesbær | Þemaviku hjá Tón- listarskóla Reykjanesbæjar lýkur með stórtónleikum í Íþróttahúsi Njarðvíkur í dag, á Degi tónlistar- skólanna, kl. 14. Þemað í ár er „skapandi tónlist- armiðlun“ og þátttakendur eru nemendur Tónlistarskólans sem stunda nám í 3. til 10. bekk grunn- skólanna í bænum. Tengist þetta þátttöku Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar í samnefndu Evrópuverkefni. Nemendurnir hafa æft saman á hverjum degi alla vikuna. Aðal- kennari í þemavikunni er Sigrún Sævarsdóttir Griffiths, kennari við Guildhall School of Music and Drama í London, auk nokkurra nemenda sem nema stjórnun skap- andi tónlistarmiðlunar við Guild- hall-skólann og nemenda við Listaháskóla Íslands. Tónlist Æft fyrir tónleikana miklu í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Tónleikar í lok þemaviku Reykjanesbær | Skátar úr Heiðarbúum munu kynna skátastarfið á Bókasafni Reykjanesbæjar í dag, laugardag. Farið verður vítt og breitt yfir starfsemina og krökkum meðal annars kennt að binda hnúta. Einnig verða myndir og munir frá Byggðasafni Reykjanesbæjar sem tengjast skátastarfinu til sýnis. Bókasafnið hefur áform um að bjóða hinum ýmsu félögum í heimsókn í safnið til að kynna sig fyrir gestum safnsins og gagnkvæmt. Þegar hafa nýtt sér þetta konur úr Galleríi Björgu og Kvenfélagi Keflavíkur og nú Skátafé- lagið Heiðarbúar. Um þessar mundir eru hátíðisdagar skátanna, sem jafnan halda upp á fæð- ingardag stofnanda skátahreyfingarinnar, Baden Powells, 22. febrúar. Bóka- safn Reykjanesbæjar er opið á laugardögum frá klukkan 10 til 16. Skátar kynna starfsemi sína Grindavík | Menningar- og sögu- tengt fræðslukvöld verður haldið í Saltfisksetrinu í Grindavík fimmtu- daginn 1. mars næstkomandi, klukkan 20 til 22. Björn Hróarsson flytur erindi og sýnir myndir af hellum í Grindavík- urlandi og kynnir nýju bókina sína, Íslenskir hellar. Ómar Smári Ármannsson flytur erindi og sýnir myndir af flug- vélaflökum frá hernámsárunum. Sigrún Franklín kynnir verkefnið „Af stað á Reykjanesið“ sem er kynning á gömlum þjóðleiðum, göngukorti, væntanlegum þjóðleið- arlýsingum og skipulögðum göngu- ferðum. Jafnframt verður kynning á fyr- irhugaðri tveggja til þriggja daga göngu- og hellaferð í Brennisteins- fjöll um verslunarmannahelgina. Menningarlegt fræðslukvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.