Morgunblaðið - 24.02.2007, Qupperneq 32
Agnarsmátt málverk Þessa mynd
málaði afi Tinnu. Myndin fær heið-
ursstað í herberginu.
„Já, veistu ég held að það sé bara allt
hérna inni úr IKEA!“ segir Tinna
Sigurðardóttir og hlær. Í desember
síðastliðnum tók hún allt herbergið í
gegn, fór í gegnum gamalt dót sem
ekki hentaði lengur, endurskipulagði
og hannaði upp á nýtt. Hún vildi hafa
allt ljóst í herberginu og segir það
henta sér betur en dökkt. Auk þess
sem herbergið er frekar lítið, þá
virðist allt vera rýmra með ljósum
litum. Í sama tilgangi voru settar
speglahurðir á fataskápana og Tinna
segir herbergið nú mjög vinsælt fyr-
ir böll. Þangað hópist vinkonur
hennar, taki sig til og nýti speglana
til hins ýtrasta. Bróðir Tinnu segir
þetta vera til mestu vandræða þegar
stelpnahóparnir standi í röð út úr
herberginu!
Stærð herbergisins
skiptir litlu máli
Hún segir að sér líði mjög vel í
herberginu og þar eyði hún drjúgum
tíma, bæði við lærdóminn og með
vinkonum sínum þar sem þær geta
talað endalaust, oft langt fram á
nætur. Stærð herbergisins hafi ekk-
ert að gera með hvort þar sé gott að
vera eða ekki, langt í frá. Tinna er al-
sæl með breytingarnar, setti meðal
annars nýtt áklæði yfir sófann sem
áður var dökk fjólublár, málaði allt
hvítt og ljósgrátt og setti upp hillur.
Hún hefur hins vegar gert mikla leit
að hvítum vængjum sem hana langar
að hengja á vegginn fyrir ofan sóf-
ann. „Það væri punkturinn yfir i-ið.“
segir hún og brosir.
Morgunblaðið/Kristinn
Góður sófi Það er frábært ef hægt er að koma sófa inn í herbergi unglingsins.
Speglarnir vinsælir fyrir böll
Ljóst og létt Tinna lagði mikla áherslu á að hafa herbergið ljóst. Vel hefur
tekist til við að koma öllu haganlega fyrir.
Sniðugt Hér hefur Tinna nýtt tíma-
ritahirslu undir eyrnalokkana sína.
Frábær hugmynd.
Tinna Sigurðardóttir
Hvítir vængir yfir sófanum
væru punkturinn yfir i-ið.
Listaverk Hér hefur vinkona Ósk-
ars skreytt eina hurð fataskápsins
með myndverki.
„Ég er nú meira bara svona að
glamra.“ segir Óskar Kjartansson
og er greinilega hógværðin upp-
máluð. Hann er í þremur hljóm-
sveitum og sú sem mestur metn-
aður liggur í heitir Djasssveitin
Dúi. Þar lemur hann húðir og spil-
ar ásamt félögum sínum fönkaða
djasstónlist. „Ég hef ekki verið í
tónlistarskóla en ég virðist drag-
ast að öllum hljóðfærum og fer að
fikta í þeim. Svo hef ég lært mikið
af félögum mínum í hljómsveit-
unum og þannig kemur færnin
smátt og smátt. Það virðist líka
vera þannig, að þegar maður hef-
ur náð tökum á einu hljóðfæri, þá
er nokkuð auðvelt að læra á ann-
að.“ segir Óskar og herbergið
hans ber þess greinileg merki að
þar býr einstaklingur með mikinn
áhuga á tónlist. Í herberginu eru
hvorki meira né minna en fjórir
gítarar, magnari fyrir rafmagns-
gítarinn og skemmtari sem áður
var í eigu afa hans og nafna heitn-
um. „Þegar amma flutti til
Reykjavíkur frá Neskaupstað
hlotnaðist mér sá heiður að fá
skemmtarann. Ég held að henni
hafi fundist eðlilegt að ég fengi
hann, því ég var síglamrandi á pí-
anó og auðvitað líka á skemmt-
arann góða.“ Hann segir hljóð-
færið bera nafn með rentu því
hann skemmti sér konunglega við
að spila á það.
Óskar er á öðru ári í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð og við-
urkennir fúslega að stundum sitji
námið örlítið á hakanum vegna
tónlistariðkunarinnar. „En þetta
gengur samt alveg, allavega fyrir
rest.“ segir hann og brosir. Í skól-
ann fer hann með strætó eða
gangandi og segir það ekkert mál,
þrátt fyrir að búa á Snorrabraut-
inni. „Maður hefur bara mjög gott
af þessu labbi, það tekur ekki
nema svona fimmtán mínútur. Að
Menntaskólanum loknum stefnir
Óskar á Tónlistarskóla FÍH þar
sem hann vonast til að verða fulln-
uma trymbill.
Herbergið stútfullt af hljóðfærum
Morgunblaðið/ÞÖK
Við skemmtarann Hér situr Óskar, sem dregst að öllum hljóðfærum, við
skemmtarann sem hann fékk eftir afa sinn og nafna.
Rúmgott Herbergið er mjög rúmgott sem kemur sér vel fyrir öll hljóð-
færin. Á veggnum má sjá listaverk eftir Óskar.
Óskar Kjartansson
Í herberginu eru hvorki
meira né minna en fjórir
gítarar, magnari og
skemmtari.
lifun
32 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Djasssveitin Dúi, grísir og pjatt
Herbergi unglingsins verður oft hans athvarf frá umheiminum og þá er gott að geta lagað umhverfi sitt að áhugamálum og persónulegum
smekk. Katrín Brynja Hermannsdóttir fékk að kíkja í heimsókn til þriggja ólíkra krakka.