Morgunblaðið - 24.02.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 33
„Við höfum búið í þessari íbúð alla
okkar tíð, meira að segja mamma
líka en hún var fimm ára þegar þau
fluttu í blokkina, sem þá var ný-
byggð,“ segir Anna Guðjónsdóttir.
„Herbergið sem ég er í núna var
herbergi mömmu á sínum tíma og
þegar elsta systir mín flutti að
heiman fékk ég það.“ Frá því hún
tók við herberginu, hefur hún svo
sannarlega sett sinn svip á það.
Hún vildi mála vegg og fataskáp
grænan og fékk stjúpföður sinn til
að hjálpa sér með litavalið. Útkom-
an er mjög flottur grasgrænn litur
sem kannski fáir hefði lagt í að
nota en Anna segist ekkert hafa
verið hrædd við græna litinn, enda
hann í miklu uppáhaldi hjá henni.
Hún kann mjög vel við sig í hverf-
inu og er örskotsstund að labba,
eða jafnvel hlaupa, í Mennta-
skólann við Sund þar sem hún er á
öðru ári. „Það er kannski vegna
þess hve stutt er í skólann, að ég
hef ekki enn komið mér í að taka
bílpróf.“ segir hún og virðist alls
ekki liggja lífið á að geta keyrt bíl.
Kannski það sé græni liturinn í
herberginu hennar… er ekki talað
um að grænn sé róandi?
Uppáhalds lögin á gítar
En það er fleira í herberginu
sem lýsir hennar persónu. Tónlist,
og þá helst rokk og metal, er eitt af
áhugamálunum og einn veggurinn
er þakinn úrklippum úr blöðum af
tónlistarfólki. Uppáhalds hljóm-
sveitir hennar eru Pantera og My
Chemical Romance en sjálf er
Anna að byrja að spila á gítar. Fyr-
ir átti hún kassagítar en í sautján
ára afmælisgjöf fékk hún raf-
magnsgítar frá foreldrum og stjúp-
foreldrum. Þegar hún er ekki í
skólanum eða að læra er hún dug-
leg að rifja upp nótnalesturinn og
ná upp færni í gítarspilun. Aðspurð
hvort hún sé ekki farin að æfa lög
með uppáhalds hljómsveitunum
hlær hún og segist þurfa að taka
grunninn fyrst. „Það verður nú
samt örugglega fljótlega sem ég fer
að fikta við uppáhalds lögin mín.“
segir hún hógvær.
Morgunblaðið/Kristinn
Skemmtilega óvenjulegt Tveir veggir í herberginu eru fagurgrænir og það kemur ótrúlega vel út.
Græni liturinn í uppáhaldi
Tónlistarmyndir Áhugi Önnu á hljómsveitum leynir sér ekki því hún hefur
þakið einn vegginn með blaðaúrklippum af tónlistarfólki.
Skartgripir Anna notar skartgrip-
ina sína sem skrautmuni þegar hún
er ekki að nota þá.
Anna Guðjónsdóttir
Tónlist og þá helst rokk og
metal er eitt af áhugamál-
unum og einn veggurinn er
þakinn myndum af tónlist-
arfólki.
GRÆJUDAGARÍ HÁTÆKNI
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.isTilboðum skolað niður með Coca-Cola Opnunartími þessa helgi 11 - 18
• Flatsjónvörp með allt að 30% afslætti• Magnarar með allt að 50% afslætti• Nokia farsímar með allt að 40% afslætti
Tilboð á
öllum vörumAðeins um helginaPIPAR• S
ÍA
•
7
0
3
5
0
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Tallinn
í Eistlandi
Frá aðeins kr. 19.990
Beint flug
19. apríl - 4 nætur
23. apríl - 3 nætur
26. apríl - 3 nætur
Frá kr. 19.990
Flugsæti með sköttum. Netverð á mann.
23. - 26. apríl. Takmarkaður sætafjöldi á þessu
tilboði.
Frá kr. 39.990
– flug & gisting í 3 nætur
Flug, skattar og 3 nætur á Hotel Meriton Old
Town **+ m/morgunverði. 23. - 26. apríl.
Netverð á mann
Frá kr. 49.990
– flug & gisting í 3 nátta helgarferð
Flug, skattar og 3 nætur á Hotel Meriton Old
Town **+ m/morgunverði. 26. - 29. apríl.
Netverð á mann.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
26
0
87
Síðustu sætin – ótrúleg kjör
Gamli bærinn í Tallinn er einn sá fallegasti
í Evrópu enda á heimsminjaskrá UNESCO.
Stemning miðalda og nútíminn blandast
saman og skapa einstakt andrúmsloft. Við
steinilagðar göturnar eru ótal kaffihús, veit-
ingastaðir og sérverslanir en Tallinn er líka
þekkt fyrir fjörugt og skemmtilegt næturlíf.
Vor í