Morgunblaðið - 24.02.2007, Side 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 55. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Norðan- og
norðaustanátt,
víða 8–13 m/s.
Dálítil él norðan
til, léttskýjað syðra. Kaldast
í innsveitum. » 8
Heitast Kaldast
0°C -7°C
KVIKMYNDAKLÚBBURINN Fjalakött-
urinn verður endurvakinn á morgun en þá
hefjast reglulegar kvikmyndasýningar á
hans vegum í Tjarnarbíói. Starfsemi Fjala-
kattarins lagðist af í byrjun níunda áratug-
arins en síðan hafa ekki verið reglulegar
kvikmyndasýningar í Tjarnarbíói.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
stendur að klúbbnum í samstarfi við fag-
félög kvikmyndagerðarmanna og leikara.
Markmið hans er að stórauka kvikmynda-
úrval hér á landi með því að bjóða upp á
sýningar á annars konar myndum en hefur
tíðkast í bíóhúsum bæjarins síðastliðin ár.
Fram á vor verða sýndar 25 myndir og
verður byrjað á þeim þremur myndum sem
gerðu James Dean að stórstjörnu í Holly-
wood; East of Eden, Rebel Without a
Cause og Giant, auk nýrrar heimild-
armyndar um leikarann. | Lesbók
Fjalakött-
urinn end-
urvakinn
Risi James Dean og Elizabeth Taylor í
myndinni „Giant“ frá árinu 1956.
LEIKSKÓLABÖRN frá leikskólum í miðborg Reykjavíkur og Hlíða-
hverfi fóru ásamt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í skrúðgöngu eft-
ir hádegið í gær í tilefni Vetrarhátíðar. Gengið var frá Hlemmi og að
Miklatúni.
Börnin tóku lagið með Lögreglukórnum og skemmtu allir viðstaddir
sér hið besta. Meðal göngumanna voru Stefán Eiríksson lögreglustjóri,
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn og síðast en ekki síst Lúlli löggub-
angsi sem ef til vill vakti mesta athygli leikskólabarnanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Leikskólabörn í lögreglufylgd
Eftir Ómar Garðarsson
í Vestmannaeyjum
UM 200 manns sóttu fund í Vestmannaeyj-
um í gær þar sem fulltrúar Siglingastofnunar
og Landgræðslunnar kynntu niðurstöður
rannsókna á möguleikum þess að gera ferju-
höfn í Bakkafjöru. Þær eru, að ekkert er því til
fyrirstöðu að byggja höfnina og verði ákvörðun
tekin um framkvæmdina verður hægt að sigla
milli lands og Eyja á um 30 mínútum í stað
tæplega þriggja klukkustunda nú. Heildar-
kostnaður er áætlaður rétt tæpir fimm millj-
arðar og gert ráð fyrir þeim í nýrri samgöngu-
áætlun sem nú er til afgreiðslu á Alþingi.
Frummælendur voru Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri og Gísli Viggósson, for-
stöðumaður hjá Siglingastofnun. Gísli sagði að
vinna við rannsóknir hefði staðið með hléum
frá árinu 2000 og samfellt hefði verið unnið frá
því í september 2005. Í fyrra lá fyrir að Sigl-
ingastofnun taldi mögulegt að gera höfn í
Bakkafjöru en síðustu mánuði hefur verið gert
áhættumat og rannsóknir á efnisflutningi.
Gísli kynnti niðurstöður þeirra á fundinum og
á næstu dögum liggur fyrir niðurstaða nefndar
sem mun skila ráðherra skýrslu um skipulags-
mál og fleiri þætti sem huga þarf að.
Rannsóknir leiddu í ljós að sandburður verð-
ur ekki vandamál í höfninni og áhættan sem
fylgir því að sigla með ferju í Bakkafjöru er allt
að því helmingi minni en að fara með Herjólfi
til Þorlákshafnar.
Margir, ekki síst sjómenn, hafa áhyggjur af
því að dögum saman verði ófært við Bakka-
fjöru en Gísli sagði að reiknilíkön og rannsókn-
ir sýndu að frátafir yrðu hverfandi. Miðað við
athuganir á árunum 2004, 2005 og 2006 hefðu
fallið niður 2,3% ferða af 1.707.
Gert er ráð fyrir 62 metra löngu, 15 metra
breiðu skipi sem ristir 3,3 metra. Minnsta dýpi
á rif sem siglt er yfir er um 5 metrar.
„Með þeim upplýsingum sem við höfum er
tæknilega hægt að byggja höfn í Bakkafjöru
og verði ákvörðun um framkvæmdir tekin í vor
verður hún tilbúin 2010,“ sagði Gísli að lokum.
Eitt vandamálið er sandfok á Landeyjasandi
og var Landgræðslunni falið að finna leiðir til
að koma í veg fyrir það. Sveinn sagði þetta
spennandi verkefni en alls ekki óyfirstígan-
legt.
Ekkert því til fyrirstöðu
að gera höfn í Bakkafjöru
Niðurstöður rannsókna kynntar í Vestmannaeyjum Heildarkostnaður
áætlaður rétt tæpir fimm milljarðar króna Sandburður ekki vandi
SLÖKKVILIÐIÐ á höfuðborg-
arsvæðinu er þegar tekið að sinna
sinueldum á þessu ári og voru fjög-
ur útköll einvörðungu á fimmtudag.
Allir voru sinueldarnir minni háttar
enda er enn raki í sinunni. Það
kemur þó ekki í veg fyrir að reynt
sé að kveikja í sinu og eins og mörg
undanfarin ár má búast við að
íkveikjum fjölgi þegar líður fram á
vorið.
Slökkviliðið hefur um árabil
reynt að höfða til fólks með áróður
gegn sinueldum en hyggst nú hætta
frumkvæði í þeim efnum, í ljósi
þess að slíkur áróður hefur harla
litlu skilað, heldur þvert á móti
virðist umtal og umvandanir frekar
hafa æst fólk upp í óvitaskapnum.
Að sögn Jóns Viðars Matthías-
sonar slökkviliðsstjóra hafa
slökkviliðsmenn þá tilfinningu að
fjölmiðlaumfjallanir og myndir af
sinueldum æsi fólk upp í því að
kveikja í. Hugsanlega endurspegli
þetta einhverja þörf til að vekja á
sér athygli. Hann tekur þó fram
að SHS muni eiga samstarf við
fjölmiðla eftir sem áður og svara
spurningum greiðlega, þótt á hinn
bóginn muni SHS ekki eiga frum-
kvæðið að umfjölluninni.
Yfirstjórn SHS hefur aðhafst
nokkuð til að draga úr hættunni á
sinueldum með því t.d. að hvetja
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
til að slá sinu meðfram göngustíg-
um. „Síðan er samstarf í gangi milli
Brunamálastofnunar og Landhelg-
isgæslunnar til að reyna að fjár-
festa í stórum þyrluvatnspoka eins
og notaður var í eldunum á Mýr-
um,“ segir hann. „Þetta gerir
slökkviliðinu kleift að komast að
svæðum sem eru erfið yfirferðar.“
Umfjöllun um sinuelda
æsir upp brennuvarga
Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson
Snarræði Sinueldur slökktur í Kópavogskirkjugarði í vikunni.
Umtal og umvandanir skila litlu og þeim verður nú hætt
SAMBÍÓIN hyggjast reglulega sýna kvik-
myndir í þrívídd í aðalsal Kringlubíós frá og
með 30. mars nk. Til að slíkt sé mögulegt
verður ráðist í tilheyrandi umbætur á saln-
um um miðbik næsta mánaðar. Að sögn
framkvæmdastjóra Sambíóanna, Björns
Árnasonar, er um nýja þrívíddartækni að
ræða og spáir hann því að hægt verði að
bjóða upp á sífellt fleiri myndir af slíkum
meiði í náinni framtíð.
Nýlega birtist grein í fagtímaritinu Var-
iety þar sem því er spáð að fjöldi þrívídd-
arsala í heiminum muni fjórfaldast fyrir
næstu áramót. Segir þar einnig að fram-
leiðsla þrívíddarmynda muni líklega aukast
jafnt og þétt á næstu árum. | 22
Þrívíddarsalur
í Kringlubíói
♦♦♦