Morgunblaðið - 15.04.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 101. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
AIHIN OG
MEIHIN
ÆRSLAFULLIR
TVÍBURAR
3.000 PÖNDUR Í KÍNA >> 61
GUÐRÚN
Í GA GA
ANN SKORRADAL,
FERÐAST OG VEIÐIR
PRJÓNAR ALLT SJÁLF >> 24
AFRÍSK
ÖRBIRGÐ
BYRJUÐU FRÁ
GRUNNI MEÐ NIRÐI
HJÁ SPES Í TÓGÓ >> 40
Heilsubylgjur rísa og hníga. Nú
virðist einfaldleikinn vera á upp-
leið. Kunnugir segja að nú verði
gönguskórnir teknir fram enda fátt
jafn heilsusamlegt og að ganga.
Gengið til
góðrar heilsu
Ensk félagslið hafa yfirtekið meist-
aradeild Evrópu og í þokkabót
stofnaði Englendingur fjórða liðið í
undanúrslitum. Enski knatt-
spyrnurisinn virðist vaknaður.
Yfirtaka Eng-
lendinga
Hvatning Bjarkar Guðmundsdóttur
til Færeyinga og Grænlendinga um
að lýsa yfir sjálfstæði vekur at-
hygli. Vakning þjóðanna í sjálf-
stæðismálum er hæg en vaxandi.
Hægfara
vakning?
ÖLL mál sem varða þjóðina alla en ganga þvert á
flokkslínur eiga að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu,
segir Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfing-
arinnar. Stækkun álversins í Straumsvík fellur þar
undir. „Það anddyri landsins sem gestir okkar er-
lendir koma inn í varðar þjóðina alla. Íslensk nátt-
úra er alheimsgersemi sem varðar ekki bara okkur
Íslendinga heldur mannkynið allt.“
– Hefðuð þið þá sætt ykkur við niðurstöðuna ef
Kárahnjúkavirkjun hefði verið samþykkt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, jafnvel með naumum meirihluta
eins og í Hafnarfirði?
„Sums staðar erlendis er krafist aukins meiri-
hluta þegar svo afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar
að þær snerta milljónir ófæddra landsmanna. Finn-
ar gátu ekki farið út í virkjanir þegar atvinnuleysi
var hjá þeim af því að skilyrðin voru svo ströng.“
– Gerið þið þá kröfu um aukinn meirihluta?
„Það mætti hugsa sér það. Við höfum ekki farið út
í það nánar. En þjóðaratkvæðagreiðsla er augljós-
lega betri kostur en að hluti landsmanna taki svo
gríðarlega afdrifaríka ákvörðun.“
Íslandshreyfingin stefnir að því að hefja strax
undirbúning aðildar að Evrópusambandinu, að sögn
Ómars. „Í því felst að skilgreina samningsmarkmið
og endurskoða stjórnarskrána – hvort heimilt er að
afsala sér fullveldinu að þessu leyti. Það tók Eystra-
saltsríkin tíu ár að undirbúa aðild og við þurfum að
hefja þá vinnu. Við getum ekki setið hjá og látið tím-
ann renna okkur úr greipum. Ef krónan reynist
ónýt verður þessi undirbúningur að liggja fyrir.“
Íslandshreyfingin vill gefa veiðar frjálsar fyrir
sex tonna báta með tvær rúllur yfir sumarmánuðina
og opna þannig glugga upp í kvótakerfið.
Þær veiðar yrðu hrein viðbót við þann kvóta sem
úthlutað er og gerir Ómar ráð fyrir að veiðarnar
yrðu „einhverjar þúsundir tonna“. Aðspurður
hvernig þetta fari saman við stefnu Íslandshreyf-
ingarinnar um að við veiðistjórnun þurfi að taka mið
af veiðiþoli fiskistofna segir Ómar:
„Þetta eru það litlir bátar sjáðu til. Við förum
skemmstu mögulegu leið til að byrja með. Við telj-
um þetta ekki það nákvæm vísindi að fiskistofnarnir
þoli ekki þessa litlu báta. En þeir myndu samt
hleypa lífi í litlu sjávarplássin sem hafa liðið fyrir
hvernig málin hafa skipast í kvótakerfinu.“
Allt sem þjóðina varðar
Krafa um aukinn meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslum? Undirbúningur aðildar að ESB hefjist strax
Morgunblaðið/RAX
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Þá verður of seint að iðrast | 26-27
UM tvær milljónir Íraka hafa flúið
ofbeldið í landi sínu á undanförnum
misserum. Talið er að um 1,2 millj-
ónir Íraka hafi flúið til Sýrlands og
á áttunda hundrað þúsund Íraka er
nú í Jórdaníu. Annar eins fjöldi er á
vergangi innan Íraks.
Flestir Írakanna í Jórdaníu þurfa
að búa við ömurlegar aðstæður, eins
og Davíð Logi Sigurðsson, blaða-
maður Morgunblaðsins, komst að
þegar hann heimsótti landið. Flestir
Írakanna í Jórdaníu eru án dval-
arleyfis sem þýðir að þeir eiga erfitt
með að afla sér vinnu eða senda
börnin sín í skóla. Margir lifa í eilíf-
um ótta við jórdönsk innflytjenda-
yfirvöld. Írakarnir geta ekki snúið
aftur heim en þeir komast heldur
hvergi, fá lönd hafa opnað dyr sínar
fyrir þeim. Þetta er fólk svipt von-
inni um bjarta framtíð. | 10Morgunblaðið/Davíð Logi
Gíslar
ofbeldis
í Írak
VIKUSPEGILL