Morgunblaðið - 15.04.2007, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 67
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
5
3
8
>>Kennaraháskóli Íslands
sími 563 3800 >www.khi.is
Í samræmi við ákvæði 3. gr. reglugerðar um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla, nr. 327/1999
og samstarfssamning Kennaraháskóla Íslands og Umferðarstofu um ökukennaranám auglýsir Kennara-
háskóli Íslands eftir umsækjendum umnám fyrir verðandi ökukennara á vegum sérstakrar stofnunar
innan skólans Símenntunar – rannsókna – ráðgjafar. Fáist næg þátttaka er að því stefnt að námið hefjist
á komandi hausti og ljúki í maí árið 2009. Námið er skilgreint sem 30 eininga nám á háskólastigi.
> Inntökuskilyrði eru þessi:
Stúdentspróf eða önnur sambærilegmenntun
Að hafa ekið bifreið (bifhjóli) að staðaldri síðustu þrjú árin
Líkamlegt og andlegt heilbrigði fyrir ökumenn í hópi 2, sbr. reglugerð nr. 501/1997
Að hafa ekki hlotið dóm skv. ákvæðum 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga
Við inntöku í námið verður auk þessa litið til starfsreynslu umsækjenda, einkum á sviði uppeldis- og
kennslumála, ökuferils en umsækjendurmega ekki hafa fengið refsipunkta vegna brota á umferðarlögum
undanfarin þrjú ár. Lögð er áhersla á að konur jafnt og karlar sæki um námið.
Umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð semmá nálgast á vef stofnunarinnar, http://srr.khi.is/. Þar er
ennfremur að finna ýmsar upplýsingar um námið, s.s. námskrá og kennsluskrá ásamt nánari upplýsingum
umhvenær kennsla fer fram.
>Nauðsynlegt er að afrit prófskírteina fylgi umsókn.
Ökukennaranám til b-réttinda
Umsóknarfrestur er til 6. maí 2007.
Námskostnaður er kr. 990.000 (sjá nánar í kennsluskrá).
Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri ökukennaranáms,
Arnaldur Árnason, í síma 5634888milli kl. 9 og 12 virka daga og
utan þess í síma 8925213. Einnigmá senda tölvupóst á netfangið
arnarnas@khi.is.
! " #$
%& ' (
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
UNDANFARINN mánuð hefur
Strengjakvartettinn Amiina verður
á tónleikaferð um Bandaríkin og
fengið fyrir fína dóma í ýmsum
blöðum og tímaritum vestra. Síð-
astliðinn föstudag lék sveitin á
tvennum tónleikum í Los Angeles
og síðustu tónleikarnir voru svo í
San Diego í gærkvöldi. María Huld
Markan segir að tónleikaferðin hafi
gengið vonum framar, víst hafi hún
verið strembin, sautján tónleikar á
þremur vikum, en hún hafi líka
verið einkar skemmtileg, ekki síst
vegna þess hve sveitinni hafi verið
vel tekið þar vestra og víða uppselt
á tónleika.
Ekki er þó tónleikaferðin það
eina sem er að sveitinni af frétta
því diskur Amiinu, Kurr, er nánast
kominn út, hægt að kaupa hann á
tónleikum sveitarinnar og eins í
vefverslun hennar á vefsetrinu ami-
ina.com. „Hann kemur svo út um
heim allan 18. júní, en kannski
tekst okkur að koma honum fyrr út
heima,“ sagði María. Ekki er bara
að síðustu vikur hafi verið
strembnar því ekki er langt frí
framundan – eftir síðustu tón-
leikana halda þær stöllur heim á
leið þar sem ýmis verkefni bíða,
meðal annars upptökur með Sigur
Rós.
Síðan hefst stutt tónleikaferð
Amiinu um Evrópu 14. maí og að
því loknu verður loks færi fyrir
tónleikahald hér heima áður en
platan kemur út. „Svo þegar hún
er komin þurfum við væntanlega að
skreppa eitthvað út til að kynna
hana og svo byrjar annar hringur í
haust,“ segir María. Þá verði farin
tónleikaferð um Bandaríkin og síð-
an aftur til Evrópu. Aðspurð hvort
þetta sé ekki fullmikið af því góða
hlær María við og svarar að bragði:
„Þetta er einmitt það sem við vild-
um.“
Amiina á ferð og flugi
Ánægðar Stúlkurnar í Amiinu eru ánægðar með að hafa nóg að gera.
EIRÍKUR Hauksson fékk næstum
fullt hús stiga í norræna sjónvarps-
þættinum Inför ESC 2007, sem
sýndur var í Ríkissjónvarpinu
föstudagskvöldið síðastliðið. Í þætt-
inum eru leikin lögin sem taka þátt
í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva í ár.
Eiríkur flytur lagið Ég les í lófa
þínum eftir þá Svein Rúnar Sig-
urðsson og Kristján Hreinsson.
Dómarar frá fjórum Norður-
landanna gáfu Eiríki hæstu ein-
kunn, eða fimm stig hver, en Eiríki
fannst ekki við hæfi að hann væri
að gefa sjálfum sér stig svo hann
eftirlét þáttarstjórnandanum það.
Hann gaf Eiríki fjögur stig.
Eiríkur fékk háa einkunn
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn