Morgunblaðið - 15.04.2007, Side 10
Þ
eir komu að nóttu til, fjór-
ir svartklæddir menn,
liðsmenn einnar af
dauðasveitum sjía-
múslíma í Írak.
Þetta var aðfaranótt
1. apríl 2006 og staðurinn var Palest-
ínustrætið í Bagdad – þar bjuggu
súnnítar og sjítar áður í sátt og sam-
lyndi, þetta var blandað hverfi.
Smám saman hafði þó tekið að síga á
ógæfuhliðina í samskiptum súnníta
og sjíta í Írak og hreinsanirnar hóf-
ust síðan fyrir alvöru eftir að liðs-
menn al-Qaeda-samtakanna í Írak
sprengdu eitt helgasta skríni sjíta í
borginni Samarrah í febrúar á síð-
asta ári.
Innandyra í húsinu við Palest-
ínustræti var fjögurra manna fjöl-
skylda: Suaada og bóndi hennar,
Muhammad, og börn þeirra tvö,
fimmtán ára dóttir og þrettán ára
sonur. Vígamennirnir voru vopnaðir
byssum og það komst enginn hjá því
að vakna við lætin er þeir brutu sér
leið inn í húsið. Aðeins Suaada varð
þó vitni að því er þeir drógu bónda
hennar á brott með sér.
Mótspyrna var tilgangslaus og
óráðleg. Suaada og Muhammad höfðu
heyrt ótal sögur af því að menn hefðu
streist á móti, vissu sem var að í slík-
um tilfellum voru vígamennirnir lík-
legir til að drepa einhvern annan úr
fjölskyldunni að heimilisföðurnum
ásjáandi. Dæmi voru líka um að börn
manna hefðu verið dregin fram úr
rúmi sínu og brennd illa í refsiskyni.
Muhammad vildi umfram allt
tryggja öryggi barna sinnar og eig-
inkonu. Hann gaf sig því strax á vald
innbrotsmönnunum.
Síðan hefur ekkert spurst til Mu-
hammads. Suaada og ættingjar henn-
ar heimsóttu helstu líkhúsin í Bagdad
til að athuga hvort lík hans hefði
fundist en allt kom fyrir ekki. Tugir
nýrra líka eru fluttir í líkhúsin í Bag-
dad á degi hverjum. Mörg líkin eru
illa farin, jafnvel alveg óþekkjanleg
vegna bruna eða pyntinga.
Ungir menn eru sérstakt skotmark
dauðasveitanna í Írak og Muhammad
hafði mánuðina á undan, eins og fjöldi
annarra ungra manna í Bagdad, verið
á stöðugum flótta. Eina nóttina dvaldi
hann í húsi foreldra sinna, þá næstu
var hann hjá vinafólki.
Þau Suaada höfðu fengið fjölda
hótana. Kúrdískt nágrannafólk þeirra
hafði grátbeðið þau um að yfirgefa
Palestínustræti, sagðist sannfært um
að það hefði séð nafn Muhammads á
dauðalista.
Muhammad fór til Jórdaníu og var
þrjá mánuði í Amman, heimsótti
skrifstofu Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og
leitaði úrræða fyrir sig og fjölskyld-
una. Árangurinn var enginn og Mu-
hammad sneri því aftur heim til Bag-
dad að þremur mánuðum liðnum, þ.e.
þegar leyfilegum dvalartíma hans í
Amman var lokið.
Tveimur mánuðum síðar skall
ógæfan yfir.
Muhammad hafði kennt tölv-
unarfræði í barnaskóla í hverfinu og
hann var því þekktur meðal fólks.
„Hann var frægur,“ sagði Suaada við
mig þegar ég hitti hana að máli í
Amman í vikunni fyrir páska. „Það
var ekki aðalástæða þess að hann
var tekinn en ein þeirra. Aðal-
ástæðan var auðvitað sú að hann var
súnníti. Allir vinir hans höfðu verið
drepnir.“
Hörmungar Ofbeldið í Írak hefur tekið á sig æ ljótari mynd eftir því sem á hefur liðið. Angist fólks er mikil en úrræðin fá, flótti stundum eina lausnin.
FLÓTTAMANNAVANDI
SEM Á SÉR FÁ FORDÆMI
Texti og myndir:
Davíð Logi Sigurðsson
david@mbl.is
Talið er að meira en
tvær milljónir Íraka
hafi flúið land sitt
vegna hildarleiksins
sem þar geisar. Flestir
hafa farið til Sýrlands
og Jórdaníu og búa þar
við slæman kost. Innan
Íraks eru sennilega
jafnmargt fólk
á vergangi.
Reuters
10 SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÍRAKAR Á BARMI ÖRVÆNTINGAR
Í EFSTU
SÆTUM
METSÖLU-
LISTANS
Í 60 VIKUR!
„… FÖGUR, GRIMM
OG HITTIR MANN
BEINT Í HJARTASTAÐ …“
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON / DV