Morgunblaðið - 15.04.2007, Síða 24
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
B
jartsýni sögðu margir um þá
hugmynd Guðrúnar Gerðar
Guðrúnardóttur, eða Gögu
Skorrdal eins og hún kallar
sig, að opna GA GA, sér-
verslun með handprjónaðar húfur, á
Laugaveginum. Alveg ga ga, gætu
sumir líka hafa hugsað með sér þeg-
ar hún hrinti hugmyndinni í fram-
kvæmd í júlí í fyrra. Enda virðist í
fljótu bragði álíka vonlaust að selja
húfur og til að mynda flugelda um
hásumar.
„Viðtökurnar voru samt ljómandi
góðar og kannski merkilegast að
heitasti dagur ársins var söluhæsti
dagurinn hjá mér,“ segir Gaga, sem
í byrjun hafði þó bara lopahúfur á
boðstólum. Núna prjónar hún af
fingrum fram úr ull, bómull, hör,
silki og pólíester, eða blandar öllu
saman. Hún veit fátt skemmtilegra
og segist nánast vera orðin háð
prjónaskapnum og alltaf jafn spennt
að vita hvernig útkoman verður.
Húfa verður kjóll – og öfugt
„Ég bara byrja að prjóna án þess að
hafa endilega fastmótaða hugmynd í koll-
inum. Stundum tekur upphaflega hug-
myndin stakkaskiptum í miðjum klíðum,
húfa getur orðið að kjól og öfugt.“
Innblásturinn segir hún koma hvaðan-
æva að, aðallega þó úr náttúrunni og
landslaginu. Hún ferðast mikið innan-
lands, elskar Skorradalinn, hálendið og
veiðar. Veiðiferð í fyrrasumar segir hún
hafa orðið sér mikil uppspretta hug-
mynda. „Ég prjónaði í bílnum á milli
áfangastaða og einnig eftir að ég kastaði
útí og beið eftir að biti á. Heim sneri ég
svo með bæði fiska og húfur í fartesk-
inu,“ segir Gaga.
Þar sem hún hefur nú hálfpartinn upp-
lýst um tilurð seinna listamannsnafns
síns er ekki úr vegi að spyrja um það
fyrra. „Mig vantaði einfalt nafn á versl-
unina og vörumerki. Meiningin var að nota
upphafsstafi mína, GGG, en þeir voru þeg-
ar til á skrá. Þá setti ég saman upphafs-
stafi mína og beggja systra minna, Önnu
og Ástu – þótt að vísu vanti kommuna yfir
a-ið. Síðan lét ég hanna lógó, sem ég saum-
aði á húfurnar, og notaði á nafnspjöld og
umbúðir. Umgjörðin skiptir miklu máli,
ekki síður en varan sjálf.“
Hendur, heili og húmor
Gaga segist oft vera spurð hversu
marga hún hafi í vinnu. Slíku sé þó ekki til
að dreifa því hún handprjóni hverja ein-
ustu húfu sjálf. „Ég hef tvær hendur, einn
heila, margar hugmyndir og mikinn húm-
or,“ segir hún. „Og svo hlæ ég þessi ósköp,
því mér finnst húfurnar mínar alveg bráð-
fyndnar,“ bætir hún við. Sem vissulega er
orð sem lýsir GA GA-húfunum prýðilega.
Furðulegar kannski líka, jafnvel stórund-
arlegar með öllum sínum öngum, kögri,
púffi, dúllum og dúskum hér og hvar.
Þegar minnst er á að lögunin sé oft svo
nýstárleg að ómögulegt sé að átta sig á
hvernig húfurnar eigi að snúa, er Gaga
fljót að leiðrétta misskilninginn. Hún seg-
ir húfurnar ekki eiga að snúa eitt né neitt,
heldur réttara sagt í allar áttir og eins og
fólk kýs hverju sinni.
Varla þarf að taka fram að engar tvær
húfur eru eins. En eins og þær, kjólar og
aðrar flíkur, sem hún er farin að prjóna í
æ ríkari mæli samhliða húfunum, er
vinnutími Gögu óhefðbundinn. „Ég fæ
flestar hugmyndirnar rétt áður en
ég sofna um níuleytið á kvöldin. Svo
er ég vöknuð um þrjú eða fjögur og
hefst þá handa við að útfæra þær,“
útskýrir hún. Afköstin eru misjöfn,
en mest kveðst hún hafa prjónað
þrettán húfur á dag. „En það var
býsna langur vinnudagur,“ tekur
hún fram.
Startart
Þegar Gaga hafði starfrækt sam-
nefnda verslun í tæpt ár á aðeins 27
fermetrum var rekstri búðarinnar
við hliðina hætt og henni boðið að
leigja plássið auk efri hæðarinnar á
Laugavegi 12b. „Ég hringdi í Önnu
systur [Eyjólfsdóttur, myndhöggv-
ara] og spurði hvort við ættum ekki
að smella okkur á þetta. Hún var
strax til í það og á endanum vorum við
orðnar sjö, listakonurnar, sem ákváðum
að stofna hér galleríð Startart.“
Þær stöllur opnuðu með pompi og
prakt í mars og varð GA GA um leið part-
ur af galleríinu, með vinnustofu á efri
hæðinni. Þar eru húfurnar í tugavís, lit-
glaðar og að því er virðist spriklandi af
fjöri. Gaga er ekki frá því að þakka megi
túristum að nokkru leyti fyrir að húfusala
um hásumar gekk eftir, en þeir hafi frá
fyrstu tíð verið stór hluti kúnnahópsins.
„Ég hef fengið margar pantanir að utan
og sent bæði húfur og kjóla eftir máli,“
segir hún. Og spurð svarar hún að við-
skiptavinir sínir séu á öllum aldri, yfirleitt
fólk sem sé orðið leitt á einhæfri fjölda-
framleiðslu og vilji skera sig svolítið úr –
líka á sumrin.
Furðuverk af fingrum fram
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Engar tvær húfur
eru eins, þær eiga
ekki að snúa eitt
né neitt, heldur í
allar áttir eða
eins og fólk kýs
hverju sinni.
Bráðfyndnar húfur Gaga Skorrdal er alltaf jafn spennt fyrir prjónaskapnum og útkomunni, sem henni finnst oft bráðfyndin.
Morgunblaðið/Ásdís
daglegtlíf
Eliza Reid fór um Vestur-
Afríku. Í síðasta hluta ferða-
sögu hennar liggur leiðin til
Tógó og Ghana. »40
ferðalög
Samgöngur eru efst í forgangs-
röð kjósenda. Hverjar eru
áherslur flokkanna í samgöngu-
málum? »34
samgöngur