Morgunblaðið - 15.04.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 31
Lækjarmelur 12 ,Esjumelar
Opið hús sunudaginn 15. apríl frá 15-17.
Til sölu í nýju glæsilegu vönduðu
iðnaðarhúsi
150 fm Möguleiki á 75 fm millilofti (225 fm ) verð :21.750.000
300 fm Möguleiki á 150 fm millilofti (450 fm ) verð :43.500.000
450 fm Möguleiki á 225 fm millilofti (675 fm ) verð :65.250.000
600 fm Möguleiki á 300 fm millilofti (900 fm ) verð :87.000.000
900 fm Möguleiki á 600 fm millilofti (1500 fm ) verð :130.500.000
• Allt að 6 metra lofthæð í húsinu
• Húsið er tilbúið til afhendingar
SÍMI 821-0700
VALGERÐUR Yngvadóttir, sem kölluð er Vala í daglegu tali, er fram-
leiðslusérfræðingur í kerskálanum. „Það felur í sér að ég fylgist með ker-
unum, hvort það gangi vel og þau séu með fóðrun. Við erum framleiðslu-
starfsmönnum innan handar ef upp koma vandamál. Það verður vöktun
fyrstu tvö árin, þar sem viss ker eru á okkar ábyrgð. Við erum fjögur og ég
held að það verði 84 ker á mann.“
Vala er úr Eyjum upphaflega, en hefur búið á Jótlandi í sjö ár og Fjóni í
fjögur. „Ég kom til landsins í september til þess að vinna hjá Alcoa og líkar
það mjög vel. Ég held að þetta sé besta fyrirtæki sem ég hef unnið hjá,“
segir hún einlæglega. „Það er góður starfsandi, gaman í vinnunni; maður
vaknar á morgnana og hlakkar til.“
Hún er einstæð móðir með þrjú börn og keypti hús á Eskifirði, þannig að
ekki eru nema fimm mínútur í vinnuna, og segir rólegt og gott fyrir aust-
an. „Ég hlakka mikið til að sumarsins. Firðirnir eru fallegir og fólkið vin-
gjarnlegt.“
Ekki hefur Vala orðið vör við neikvæðni í garð álversins fyrir austan.
„Systir mín hefur búið hér í fimm ár og segir mikinn mun á bæjarbragnum;
hvernig allt hafi lifnað við um leið og byrjað var á þessu verkefni hér.“ En
hún vill ekkert tjá sig um atkvæðagreiðsluna í Hafnarfirði. „Það er þeirra
hinumegin.“
Vinna í álveri er öðruvísi en Vala bjóst við. „Ég hafði ímyndað mér sóða-
lega vinnu. En þegar ég fór að skoða álverið í Kanada sem er hliðstætt við
álverið hér sé ég að þetta er mun hreinna og skemmtilegra umhverfi en ég
gerði mér í hugarlund.“
Það er þeirra hinumegin
Morgunblaðið/ÞÖK
Aðgát Vala með skilti sem sett var upp áður en álframleiðsla hófst.
STARFSMANNAÞORP Bechtel í Reyðarfirði er tölu-
vert fjölmennara en bærinn sjálfur. Reyðfirðingar eru
um 900, en Pólverjarnir í búðunum um 1.500, sem er
svipaður fjöldi og býr í Neskaupstað. Þessi hópur lýkur
byggingu álversins á þessu ári og hverfur þá til síns
heima.
Í starfsmannaþorpinu er stærsta mötuneyti landsins.
„Við vorum með kjúklingalæri í matinn á laugardag og
þurftum 1½ tonn,“ segir Kristján Elís Jónasson inn-
kaupastjóri starfsmannabúðanna. „Þar við bætist svo
grænmetið, kartöflurnar og hundrað lítrar af sósu. Í
hverri viku fara þrjú tonn af appelsínum, tvö af banön-
um og eitt af eplum.“
Fyrirtækið Ekra sér starfsmannabúðunum fyrir mat
og sendir þangað tugi tonna í viku hverri. Flutn-
ingabílarnir koma austur þrisvar í viku og veitir ekk-
ert af. „Pólverjarnir eru mjög sáttir við matinn sem við
gefum þeim. Þeir eru hrifnir af svínakjöti, kjúklingum
og fiski, en kæra sig lítið um lambakjötið. Þeir hafa
ekki vanist þessu mikla lambakjötsáti sem tíðkast hjá
okkur Íslendingum.“
Starfsmenn mötuneytisins vinna frá morgni til
kvölds í 14 daga, en fá svo 14 daga frí. Þeir hafa alltaf
náð að fæða allan hópinn, jafnvel þótt tafir hafi orðið á
komu flutningabíla. „Við eigum alltaf 10 daga birgðir
og veturinn hefur verið mildur, svo þetta hefur allt
blessast,“ segir Kristján.
Pólverjarnir eru ánægðir með matinn. „Síðast þegar
við könnuðum viðhorf manna reyndust 80–90% vera
ánægð,“ segir innkaupastjórinn.
Ekki er hægt að draga þá ánægju í efa. Í mötuneyt-
inu er líka lögð sérstök rækt við eftirréttina. Þar er ís-
bar og borðin svigna undan tertum og bökum. Menn
sem troða sig út af slíkum desertum eru að vonum
hæstánægðir. „Yfirmenn hér vita að ef starfsmenn-
irnir eru óánægðir með matinn þá eru þeir óánægðir í
vinnunni. Þess vegna er lögð mjög mikil áhersla á gott
mötuneyti og snyrtilega umgengni.“
Um páskana var margréttuð veislumáltíð, 550 kíló af
andalærum, annar kjötréttur og einn fiskréttur.
Og ekki má gleyma páskaeggjunum. Þar gildir auð-
vitað að hafa vaðið fyrir neðan sig svo allir fái sitt og
Kristján Elís Jónasson pantaði tvö þúsund egg.
Kjúklingar í tonnavís
og tvö þúsund páskaegg
Morgunblaðið/ÞÖK
Matur og drykkur Kristján Elís Jónasson á barnum í
starfsmannaþorpi Bechtel, þar sem bjórinn er ódýr,
enda staðurinn ekki rekinn með gróða að markmiði.
Pasta Pottarnir í mötuneyti 1.500 manna vinnuþorps
Bechtel eru engin smásmíði. Þriðji réttur dagsins var
pasta og dugði ekkert minna en tveir 400 lítra pottar.
„VIÐ fluttum hingað vegna álversins og hefðum aldrei flutt annars, þótt
maðurinn minn sé frá Reyðarfirði. Núna er ég búin að ljúka námskeiði á
krana og farin að æfa mig á krönunum í kerskálunum,“ segir Særún Krist-
insdóttir, 24 ára Vestmannaeyingur.
Særún, maður og tvö börn, tveggja ára stelpa og þriggja ára strákur,
höfðu búið í Mosfellsbæ um hríð en fluttu til Reyðarfjarðar fyrir ári,
keyptu 144m² parhús og eru búin að koma sér vel fyrir í heimabæ húsbónd-
ans. Hann er dæmi um brottfluttan Austfirðing sem snýr aftur heim vegna
álversins. „Hann er að vinna hjá Íslenska gámafélaginu og þar er nóg að
gera út af álverinu. Ég var heima með börnin, en þau eru núna komin á
leikskólann hérna og ég farin að vinna hjá álverinu.“
Starf Særúnar felst í að stýra svokölluðum kerfreyjum, stórum krönum
sem m.a. eru notaðir til að skipta um rafskaut í kerskálum. Hún hefur setið
í gamla mötuneyti frystihúss Skinneyjar-Þinganess og æft sig í krana-
hermi sem þar er. Það 30 milljón króna tæki hermir eftir öllum aðstæðum í
kerskálum og leggur alls konar þrautir fyrir kranastjóra. Eftir hverja
þraut fær stjórnandinn einkunn fyrir hraða, nákvæmni, mjúka meðhöndl-
un stýripinna og fleira af því taginu og verður að ná yfir 7 í meðaleinkunn
til að teljast fullfær kerfreyjustjóri.
Allir starfsmenn kerskála eiga þess kost að fá þjálfun í kranaherminum
og geta farið eins oft og þeir vilja. Þeir læra jafnframt að þekkja helstu bil-
anir sem geta komið upp. Starfsmenn viðhaldsdeildar fara í enn viðameiri
þjálfun í herminum og eiga að geta þekkt 350 atriði sem þarf að huga að í
krananum.
Kerfreyjustjórinn Særún
Kranastjóri Særún Kristinsdóttir æfir sig í kranaherminum í
fyrrverandi mötuneyti Skinneyjar-Þinganess.