Morgunblaðið - 15.04.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 33
„ÉG hef stutt þessa framkvæmd frá upphafi. Við þurftum að fá þetta álver
og mér finnst mjög spennandi að vinna hérna,“ segir Heba Rut Kristjóns-
dóttir, 22 ára starfsmaður í steypuskála Fjarðaáls.
Heba Rut var talsímavörður hjá 118 á Egilsstöðum, þar sem hún er bú-
sett, en sú starfsemi var lögð niður sl. haust. „Mig langaði að prófa eitthvað
nýtt og allir voru að tala um álverið. Þetta er spennandi starf og launin eru
góð. Ég lít á þetta sem framtíðarstarf.“
Konur eru um þriðjungur starfsmanna Fjarðaáls. Heba Rut er ekki sú
eina sem starfar í steypuskálanum og hún segir allmarga starfsmenn vera
frá Egilsstöðum. Sjálf er hún í sambúð þar og reiknar með að búa þar
áfram.
Hún brosir þegar hún er spurð um álit sitt á andstæðingum álvera, en
segir ekkert, ítrekar bara að þörf hafi verið á álverinu. „Hérna eru nær
eingöngu Austfirðingar. Þetta skilar sér í störfum til heimamanna, eins og
ætlunin var.“
„Þurftum að fá
þetta álver“
Morgunblaðið/ÞÖK
Nauðsyn Heba Rut Kristjónsdóttir er sannfærð um að álverið hafi verið
nauðsynlegt fyrir atvinnulífið á Austfjörðum. Jóhann Bjarni Einarsson úti-
lokar ekki að flytja á heimaslóðir á Húsavík komi álver þangað.
BMW1 lína
www.bmw.is Sheer
Driving Pleasure
BMW Sound Machine
Ný útgáfa af BMW 1 línunni með HIFI Professional hljóðkerfi
og BMW Radio System ásamt 30 GB Apple iPod spilara.
Með bílinn handa þér
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is
Nánari upplýsingar um BMW Sound Machine hjá söludeild BMW í síma 575 1210.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn