Morgunblaðið - 15.04.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 53
UMRÆÐAN
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Mjög falleg þriggja herbergja íbúð á 3ju (er í raun 2.) hæð ásamt
stæði í bílskýli. Tvennar svalir. Nýbúið að taka blokkina í gegn að
utan. Laus til afhendingar. Fín eign. V. 23,8 7522
KEILUGRANDI - LAUS
FJÖGUR FÍN FYRIRTÆKI TIL SÖLU
HEILDVERSLUN - Gamalgróin heildverslun á sviði gjafavöru, góð velta og
framlegð. Húsnæði er hægt að fá keypt eða leigt. Góð fjármögnun fylgir.
STÓRT BAKARÍ - Góð rekstrareining í Hveragerði. Eigið húsnæði og 2
íbúðir fylgja. Framl. bakarí og söluturn, hentar vel fyrir tvær samhentar
fjölskyldur.
VEITINGAREKSTUR OG SÖLUTURN - Einn þekktasti staður landsins, Svarti
Svanurinn, miklir möguleikar, tilvalið fyrirtæki fyrir tvo samhenta aðila.
BLÓMAVERSLUN - Vel þekkt og gamalgróin verslun á höfuðborgar-
svæðinu. Stöðug og góð velta með mikla framlegð. Húsnæði getur einnig
fengist keypt.
Sölufulltrúi CASA FIRMA, Jón Víkingur, svarar fúslega öllum
fyrirspurnum í síma: 892 1316, eða sendið fyrirspurn til:
sala@firmus.is
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali
Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali
Suðurlandsbraut 20, Bæjarhrauni 22
SÖLUSÝNING
LAUGARDAG OG
SUNNUDAG FRÁ
KL 14:00 TIL 16:00
Rauðamýri 2-17
Mosfellsbær
Hamratún 1-13
Mosfellsbær
Raðhús á einni og tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsin eru flest til afhendingar strax, fullbúin að utan og með frágenginni lóð.
Að innan eru húsin afhent fokheld eða tilbúin til innréttinga. Húsin eru frá 163-206 fm, 3-4 svefnherbergi.
Mikil lofthæð og frábært skipulag. Verð frá 27,9-31,9 fokheld. Tilbúin til innréttinga frá 34,9-38,9.
Sérlega vandaður frágangur að utan. Álklæddir gluggar og húsin eru sölluð og klædd að utan og því sem næst viðhaldsfrí.
Snjóbræðsla er í innkeyrslum og grill suð-vestur verandir í garði.
Stutt í margvíslega þjónustu og ósnortna náttúru.
Nú er rétti tíminn til að tryggja sér hús á hagstæðu verði !
Sölumenn Höfða verða á staðnum með teikningar og allar nánari upplýsingar. Heitt kaffi á könnunni.
Suðurlandsbraut 20 - Sími 533 6050 - Fax 533 6055 - Bæjarhrauni 22 - Sími 565 8000 - Fax 565 8013
„Þriðja leiðin gæti verið sú, að
vinna með markvissum hætti gegn
fjölgun bíla og aukinni notkun
strætisvagna. En er það raunhæf
leið á Íslandi, þar sem veður er oft
vont yfir vetrartímann? Tæplega.“*
Þetta var snaggaralega afgreitt.
Var veður síður vont yfir vetr-
artímann fyrir hálfri öld, þegar við
leiðarahöfundur vorum mennta-
skólastrákar? Þá voru stræt-
isvagnar troðnir. Að vísu voru þá
biðskýli á hverri viðkomustöð vagn-
anna, en nú er skjaldnast nokkurt
skjól fyrir veðrum og vindum á bið-
stöðvum.
Leiðakerfi vagnanna var stórbætt
fyrir nokkrum misserum og ýmsir
vankantar lagaðir síðan, en tekið var
stökk aftur á bak þegar ferðum var
fækkað í sumar og haust. Satt að
segja virðist á flestan hátt reynt að
fæla menn frá því að taka strætó.
Farþegum er t.d. ekki gefið til
kynna hvað biðstöðvar heita, ekki
einu sinni á skiptistöðvum eins og
Ártúni (þar er reyndar hvorki nafn á
stöðinni, skrá um vagna sem hafa
þar viðkomu, né leiðbeiningar um
hvar sé hægt að komast í þá). Þeim
sem ekki gjörþekkja bæði borgina
og kerfið er gert mjög erfitt um vik.
Góð leiðabók bætir úr, en venjulega
er hún orðin úrelt.
Á því er enginn vafi að lang-
samlega besta og hagkvæmasta leið-
in til að leysa úr umferðaröngþveiti
á höfuðborgarsvæðinu er að vinna
með markvissum hætti að fækkun
bíla í umferð og aukinni notkun
strætisvagna. Hvaða vit er í því að
tíu eða tuttugu þúsund manns setj-
ist á morgnana upp í jeppann sinn til
að mjakast í vinnuna í þvögu, hafa
jeppann standandi fyrir utan yfir
daginn, setjast svo upp í hann aftur
eftir vinnusetuna og mjakast til
baka heim í þvögu? Þessir menn
gætu hæglega tekið strætó sem er á
ferðinni hvort eð er, en vissulega
þarf að fjölga ferðum verulega.
Aukin notkun strætisvagna stuðl-
ar að minni loftmengun vegna um-
ferðar, þar á meðal minna svifryki
vegna nagladekkja. Hún minnkar
þörf á umferðarmannvirkjum og
bílakaupum og er þjóðhagslega hag-
kvæm. Því ættu strætisvagnar að
vera undanþegnir öllum opinberum
gjöldum og kostaðir af almannafé.
Fyrirtæki ættu að eiga þess kost að
bjóða starfsmönnum sínum strætó-
kort gegn því að þeir hætti að taka
upp bílastæði.
* Ritstjórnargrein Mbl. óðinsdag-
inn 1. nóvember 2006.
Vont veður
Haukur Jóhannsson skrifar
um almenningssamgöngur » Satt að segja virðistá flestan hátt reynt
að fæla menn frá því að
taka strætó.
Haukur Jóhannsson
Höfundur er verkfræðingur
og strætófarþegi. hj@vst.is
Fréttir
í tölvupósti