Morgunblaðið - 15.04.2007, Side 58
58 SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
F1 á Nürburgring
Erum byrjuð að bóka í stutta og
hnitmiðaða formúluferð 19. – 22. júlí.
Sjá nánar á www.isafoldtravel.is.
Ferðaskrifstofan Ísafold, sími 544 8866.
Ferðalög
Námskeið
www.listnam.is
Skartgripasmíði - PMC (Precious
Metal Clay). Einkaumboð Íslandi frá
Mitsubishi Materials Ltd. Nemendur
fá allt efni á heildsöluverði. Grunnnám
helgina 5. og 6. maí kl. 10-18 í Reykjavík.
Uppl. í síma 695 0495.
Upledger höfuðb. og spjaldhrm.
Akureyri, 1. áfanginn í Upledger
höfuðb og spjaldhryggjarmeðferð
verður haldinn dagana 25.-28. maí
næstk. á Akureyri. Upplýsingar og
skráning í síma 466 3090 og einnig á
www:upledger.is.
Hemi-sync tækni. Vitundarleiðang-
ur 5.-6.maí með Carmen Montoto.
Námskeið til að bæta einbeitingu,
læra hraðlestur o.fl. Upplýsingar á
www.geocities.com/lillyrokk/hemi-
sync - sími 699 0858.
Fellihýsi
Fleetwood Colonial árg. ‘05. Til
sölu. Er með ísskáp, miðstöð, sólar-
sellu, markísu, útigrilli, heitu og
köldu vatni og sturtu. Verð 1.350 þ.,
áhv. lán 530 þ. kr. Uppl. í s. 895 0031.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 5691100
✝ Elín KristínÞorsteinsdóttir
fæddist í Reykjavík
25. september 1951.
Hún lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans við Hring-
braut 25. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar eru
hjónin Þorsteinn
Magnússon hús-
gagnasmíðameist-
ari, f. 30. 6. 1919, d.
12.11. 1983, og Guð-
rún Ana Gunn-
arsson húsfreyja, f. 4.5. 1923.
Systkini Elínar eru Bjarni Gunn-
ar, f. 1946, Magnús Gunnar, f.
1954, Sigurður Gunnar, f. 1956,
Herdís, f. 1961 og Anna Hedvig, f.
1968.
Fyrri maður Elínar er Sæ-
mundur Vilhjálmsson og eign-
uðust þau tvo syni, þeir eru: a)
Bjarni, f. 9.3. 1977, kvæntur
Sunnu Gunn-
arsdóttur og eiga
þau eina dóttur, El-
ínu. Áður átti Bjarni
soninn Breka með
Zanny Vöggsdóttur.
b) Styrmir, f. 1.2.
1983. Seinni maður
Elínar er Ásmundur
Sigvaldason. Dóttir
þeirra er Harpa
Rún, f. 12.2. 1992.
Elín fluttist til
Vestmannaeyja
ásamt fölskyldu
sinni í desember
1951 og átti þar heima til 1986.
Að loknu gagnfræðaprófi hóf hún
störf hjá Apóteki Vestmannaeyja
og vann þar fram yfir gos. Síðan
starfaði hún sem bókari, fyrst í
Eyjum, en á höfuðborgarsvæðinu
eftir að hún fluttist til Hafn-
arfjarðar árið 1986.
Útför Elínar var gerð í kyrr-
þey.
Ég sat við rúmið hennar Ellu
Stínu, systur minnar, undir miðnætti
laugardag síðla í mars og strauk
hönd hennar. Við, sem vöktum yfir
henni, vissum að stundin nálgaðist
óðfluga. Það er alltaf ótrúlega sárt
að kveðja þann sem manni þykir
vænt um. Eftir sitja þó fallegar og
skemmtilegar minningar eins og
leiftur frá liðinni tíð. Þær skutu upp
kollinum þetta kvöld.
Minningar frá Vestmannaeyjum
þar sem Ella bjó með fyrri manni
sínum, Sæma, allt til ársina 1986. Ég
sótti mikið í að komast til þeirra og
skólinn var ekki fyrr búinn á vorin en
ég var rokin til Eyja og sömu sögu
var að segja um jólafríin. Þar passaði
ég Bjarna son hennar í mörg ár,
fyrst níu ára gömul. Ella treysti mér
þannig fyrir því sem henni var kær-
ast og yfir því var ég afar stolt.
Fyrstu minningar tengjast atburði
sem mér var sagt frá síðar, en það
var þegar Ella litaði hárið á mér,
tveggja ára gömlu barninu. Það var
nefnilega þannig að Ellu langaði að
prófa að lita á sér hárið, en var svolít-
ið óviss um útkomuna og taldi því
ráðlegra að gera fyrst eins og eina
prufu á litlu systur sinni. Þetta var
vonandi eina skiptið sem ég geng um
með gult hár.
Þau Ella og Sæmi voru alltaf af-
skaplega góð við mig. Þau gáfu mér
fyrsta dúkkuvagninn og fyrsta hjólið
kom einnig frá þeim. Ekki má
gleyma grenjudúkkunni sem allar
stelpur öfunduðu mig af. Ég var
reyndar dauðhrædd við hana framan
af og það var ekki fyrr en hann Sig-
urður bróðir minn sat með okkur,
mér og dúkkunni, í drjúgan tíma að
ég tók hana í sátt. Dúkkan góða bar
síðan hið virðulega nafn Ella Sæm í
höfuðið á gefendunum.
Ella systir flutti upp á land fyrir
rúmum tuttugu árum. Þar bjó hún í
Hafnarfirðinum með seinni manni
sínum, Ása, einum besta og dugleg-
asta manni sem ég hef fyrirhitt og
var aðdáunarvert að sjá í veikindum
hennar hversu vel hann hugsaði um
Ellu sína. Fjölskyldur okkar Ellu
héldu þeim góða sið að halda að-
fangadagskvöld saman ár hvert og á
ég yndislegar minningar frá þeim
tíma.
Ella var elst okkar systranna og
það var ekki síst hún sem hélt fjöl-
skyldunni saman, allir höfðu sam-
band við hana og litu til hennar sem
leiðtoga. Ég er viss um að það var
vegna allra þeirra góðu eiginleika
sem hún bjó yfir. Hún var hrein og
bein, orðheppin með eindæmum og
það var mikill húmor í henni. Hún
kunni að njóta þess hversdaglega í
lífinu og gleðjast yfir hinu smáa ekki
síður en því stóra. Hún naut þess að
vera öllum stundum úti við í góðu
veðri og fallegu landslagi og þá helst
á hestbaki; algjört náttúrubarn.
Ella var kraftmikil manneskja
sem tók allt með áhlaupi og átti þá
viðfangsefnið hug hennar allan, enda
náði hún árangri í því sem fangaði
huga hennar. Hún var ekki á því að
gefast auðveldlega upp sem sýndi sig
hvað best í veikindum hennar. Ég er
óendanlega þakklát fyrir þann tíma
sem ég fékk með Ellu Stínu. Það var
svo margt sem ég gat lært af henni.
Eitt af því var að setja sér markmið
og ná því þótt á móti kunni að blása,
og á erfiðum tímum stóð hún við hlið
mér og taldi í mig kjark. Hún var
hetjan mín.
Ella Stína systir mín átti sér ynd-
islega fjölskyldu sem nú horfir á eftir
henni, Ása, strákana tvo, Bjarna og
Styrmi, sólargeislann Hörpu Rún
sem fermdist síðasta vor, og barna-
börnin tvö. Í þeim lifir Ella áfram.
Maður grætur þá sem voru gleði
manns og yndi. Ellu Stínu systur
minni fylgdi ekkert nema gleði. Hún
kveður, ég græt.
Anna Hedvig.
Það var rétt fyrir jólin 2002, að
hún Ella Stína, systir mín, greindist
með eina illvígustu tegund krabba-
meins, sem um getur. Henni voru
ætlaðir um þrír mánuðir hið mesta.
En hún gafst ekki upp og barðist í
fjögur ár umfram það, kvartaði aldr-
ei og aðspurð sagðist hún alltaf hafa
það ágætt.
Nokkrum dögum fyrir andlátið
talaði hún um hvað hún hlakkaði til
sumarsins, fara á hestbak og dvelja í
sælureit þeirra hjóna, Munaðstungu
í Reykhólahreppi.
Þessi barátta varð til þess, að hún
náði því að sjá dótturina fermast,
halda á barnabarninu henni nöfnu
sinni undir skírn og vera við brúð-
kaup eldri sonarins í mars síðastliðn-
um. Hvílíkur lífsvilji. Hvílík barátta.
Hvílíkt æðruleysi.
Við hlið hennar stóð allan tímann
sem klettur hann Ásmundur, mað-
urinn hennar. Aðdáunarvert.
Ég kveð Ellu Stínu með virðingu
og þakklæti, ákaflega stoltur yfir því
að hafa átt hana fyrir systur. Blessuð
sé minning hennar.
Bjarni Gunnar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Með þessum orðum frænku minn-
ar hér að ofan vil ég minnast Ellu
Stínu, en við áttum samleið hátt í 40
ár eða frá því ég sá hana fyrst í Vest-
mannaeyjum, sumarið 1970. Hún var
glæsileg 19 ára stúlka, dökk á brún
og brá, með hár niður í mitti og
skjannahvítar tennur. Þegar hún
brosti geislaði af henni. Hún hafði
svipmikið nef og minnti á eina helstu
kvikmyndastjörnu þeirra tíma, Lísu
Minnelli. Ella Stína var alltaf í stæln-
um og klædd samkvæmt nýjustu
tísku. Hún var snögg til svars ef með
þurfti. Hún mátti ekkert aumt sjá og
var alltaf fyrst til að rétta hjálpar-
hönd ef á þurfti að halda. Synir mínir
báðir, Steini og Helgi tóku við hana
ástfóstri frá fyrstu tíð. Ég var svo
lánsöm að hún bjó hjá mér í hálft ár
eftir að hún lenti í sjóslysi á hraðbát
og afltaug í upphandlegg skarst í
tvennt.Þá þurfti hún í endurhæfingu
í Reykjavík. Hún gætti Steina, sem
þá var ársgamall, og sagði hann hafa
haldið í sér lífinu þennan tíma. Það
var dæmigert fyrir keppnisskap
hennar að hún fór til Eyja og hóf að
æfa badminton og varð Vestmanna-
eyjameistari í greininni ári síðar.
Já, hún Ella Stína skilaði sínu af
sér með sóma og fékk til þess ótak-
markaðan stuðning eiginmanns síns,
Ásmundar Sigvaldasonar, sem bar
hana á höndum sér, þannig að allir
sem fylgdust með dáðust að natni
hans og velvild. Það var gott að koma
í morgunkaffi til þeirra á aðfangadag
og finna ylinn sem streymdi frá þess-
ari samheldnu fjölskyldu. Manni var
ekki í kot vísað og ávallt velkominn,
hvernig sem á stóð. Við Ella vorum
alla tíð eins og systur.
Ég votta Ásmundi, Bjarna, Styrmi
og Hörpu Rún innilega samúð og
veit að þau taka við þar sem hún
sleppti takinu. Megið þið, yndislega
fjölskylda, læra að lifa með minningu
um frábæran persónuleika.
Gunnu Gunn og fjölskyldu votta
ég einnig dýpstu samúð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
Unnur Ríkey Helgadóttir.
Fundum okkar Elínar Kristínar
Þorsteinsdóttur bar fyrst saman í
ágúst 1966, daginn sem ég flutti til
Vestmannaeyja með foreldrum mín-
um. Strax þann dag myndaðist taug
á milli okkar sem aldrei rofnaði,
fölskvalaus vinátta sem aldrei bar
skugga á og gagnkvæmt traust, sem
aldrei þurfti um að efast. Það var
sama hvort löng eða stutt stund leið
á milli endurfunda og það breytti
engu þótt við gengjum í mörgu tilliti
hvort sína leið í lífinu og byggjum
landfræðilega langt hvort frá öðru,
alltaf var hugur okkar hvors til ann-
ars óbreyttur. Elín er besta vinkona
sem ég hef eignast og vinskapur
okkar var mér afar mikilvægur.
Elín var alla tíð ákveðin og hrein-
skiptin í öllum samskiptum. Það fór
ekki framhjá neinum sem henni
kynntist að hún var sterk persóna
með ríka réttlætiskennd. Hún var
útivistarkona og síðustu áratugina
átti hestamennska hug hennar allan.
Elín greindist með erfitt krabba-
mein fyrir rúmum fjórum árum.
Þann tíma sem hún lifði með sjúk-
dómi sínum sýndi Elín þann styrk
sem hún bjó yfir. Hverju áfalli var
tekið með hetjulund og baráttuvilj-
inn til að þrauka og fá sem mest út úr
lífinu var aðdáunarverður. Hún lagði
hart að sér að annast börn og bú og
sinna áhugamálum sínum með fjöl-
skyldu og vinum. Unaðsreiturinn
Munaðstunga, sem um nokkurt
skeið hefur verið í eigu þeirra hjóna
Elínar og Ásmundar Sigvaldasonar,
var hennar paradís.
En Elín stóð ekki ein í baráttunni.
Hún var alla tíð umvafin umhyggju
og ástríki samhentrar fjölskyldu og
vina, sem fylgdust með og tóku þátt í
gleði og sorgum og veittu þá aðstoð
sem unnt var að veita. Það er aldrei
hægt að ofmeta þá gæfu að eiga góða
að.
Að Elínu genginni sakna ég vinar í
stað. Hitt er þó meira um vert gleðin
að hafa átt Elínu að vinkonu öll þessi
ár. Minningar um góðan vin eru fjár-
sjóður, sem mölur og ryð fá ekki
grandað. Það eru forréttindi að hafa
fengið að verða samferða traustum
vini í rúm fjörutíu ár á þann hátt,
sem vinskapur okkar Elínar hefur
verið. Fyrir þetta verð ég ævinlega
þakklátur.
Ég, kona mín og dætur vottum Ás-
mundi, Guðrúnu móður hennar,
börnum, systkinum og öðrum ástvin-
um dýpstu hluttekningu. Þrátt fyrir
marga sigra í erfiðri baráttu við ill-
vígan sjúkdóm var tapið óumflýjan-
legt. Elín er farin frá okkur en minn-
ing hennar mun lifa.
Pétur Bjarnason.
Kallið er komið,
komin er stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
(V. Briem)
Við kveðjum samstarfskonu og
góðan vin.
Elín Kristín kom til starfa með
okkur fyrir um 10 árum. Hún vann
við bókhald fyrir fjölmarga við-
skiptavini sem margir hverjir urðu
góðir vinir hennar enda hafði Elín
þægilegt viðmót, viðræðugóð og fróð
um menn og málefni. Við sem nutum
þess að vera starfsfélagar hennar
minnumst heiðarlegrar, hreinskipt-
innar og skemmtilegrar konu. Hún
var orðheppin í meira lagi og glumdu
oft hlátrasköllin þar sem hún var
komin.
Við áttum einnig góðar samveru-
stundir með Elínu utan vinnu á
árshátíðum, tónleikum og í leikhús-
um, en best naut hún sín eflaust úti í
náttúrunni annaðhvort á skíðum eða
á hestbaki.
Hún lifði heilbrigðu lifi og stund-
aði líkamsrækt af miklum móð enda
var hún vel stælt og glæsileg.
Í árslok 2002 stóð til að Elín færi í
meinlausa smáaðgerð en raunin varð
önnur. Mein hafði tekið sér búsetu í
líkama hennar og við tóku erfiðar
lyfjameðferðir. Kraftur hennar og
lífsvilji var slíkur að við hrifumst
með og héldum að hún myndi hafa
yfirhöndina. Aftur kom hún til vinnu
glöð og hress og allt benti til þess að
hún hefði náð fullum bata. En hvert
áfallið af öðru reið yfir og kom að því
að þessi kraftmikla kona varð að bíða
lægri hlut.
Meðan á veikindum hennar stóð
fundum við hvað hún hafði unnið hug
og hjörtu þeirra sem hún hafði unnið
fyrir og með. Þetta fólk hugsaði til
hennar og fylgdist með líðan hennar.
Við þökkum þér elsku Elín fyrir að
hafa verið eins og þú varst, trygg-
lynd, stolt og góður vinur.
Kæri Ási, Harpa, Bjarni, Styrmir
og aðrir ástvinir, megi guð styrkja
ykkur á þessum erfiða tíma og minn-
ing Elínar ylja ykkur.
Samstarfsfólk hjá
Ernst & Young hf.
Elín Kristín
Þorsteinsdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
.
Minningargreinar
MINNINGAR