Morgunblaðið - 15.04.2007, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Náms-menn í Reykjavík fá
ókeypis í strætó frá og með
næsta hausti. Þetta er hluti
af stefnu sem borgar-yfirvöld
kynntu á miðviku-daginn í
umhverfis-málum. Gísli
Marteinn Baldursson,
for-maður umhverfis-sviðs,
sagði að borgar-yfirvöld vilji
bjóða borgar-búum upp á að
ferðast öðru-vísi en með
bílnum. „Við teljum að ef við
náum náms-mönnum upp í
strætó þá getum við alið þá
dá-lítið upp í að nota þennan
samgöngu-máta.“
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir, stjórnar-maður í
Strætó bs., sagði að lík-lega
myndu náms-menn fá
strætó-skírteini um leið og
þeir fá nemenda-skírteini.
Ókeypis strætó fyrir
náms-menn er 1 af 10
stefnu-miðum sem
borgar-yfirvöld kynntu á
miðviku-dag undir
yfir-skriftinni „Græn skref í
Reykjavík“.
Borgin ætlar sér líka að
verð-launa vist-hæfa bíla með
því að öku-menn þeirra fái að
leggja ókeypis í Reykjavík.
Náms-menn fá ókeypis í strætó
Morgunblaðið/Eggert
Reyk-vískir náms-menn fá ókeypis í strætó næsta haust.
Mats-nefnd eignar-námsbóta
hefur úr-skurðað að
Lands-virkjun skuli greiða 2
land-eigendum á
Fljótsdals-héraði 63,7
milljónir króna í bætur vegna
land-nota Lands-virkjunar í
landi Brúar vegna byggingu
Kárahnjúka-virkjunar.
Lands-virkjun hefur þegar
greitt 5,3 milljónir inn á
bæturnar, en þarf að greiða
3,7 milljónir í máls-kostnað
og 2,6 milljónir í ríkis-sjóð
vegna starfs-kostnaðar
mats-nefndarinnar.
Kröfurnar voru upp á 1,3
milljarða minnst en 3.025
hektarar fara undir Háls-lón.
Bætur
vegna
Háls-lóns
Kurt Vonnegut dáinn
Banda-ríski rit-höfundurinn
Kurt Vonnegut lést á
miðviku-dag. Hann var 84
ára. Vonnegut er al-mennt
talinn með helstu
rit-höfundum Banda-ríkjanna
þótt hann hafi verið
um-deildur alla tíð. Hann
skrifaði m.a.
Slaughterhouse-Five og
Breakfast of Champions.
Aldrei fór ég suður
Tónlistar-hátíðin Aldrei fór
ég suður var haldin á Ísafirði
um páskana. Hún hefur aldrei
verið stærri, en tæp-lega 40
hljóm-sveitir og lista-menn
komu fram. Hvert atriði stóð í
20 mínútur, sama hvort þar
var á ferð íslensk sveit eða
alþjóð-leg indí-stjarna.
Að-gangur var ó-keypis.
Fanney Lára valin ung-frú
Reykjavík
Fanney Lára
Guðmundsdóttir, 19 ára
Kópavogsbúi, var á
fimmtudags-kvöld valin
ung-frú Reykjavík. Hún var líka
valin Aquolina-stúlkan. Í öðru
sæti varð Jóhanna Vala
Jónsdóttir, 20 ára
Reyk-víkingur. Hún fékk flest
at-kvæði í kosn-ingu
sjónvarps-áhorfenda
SkjásEins. Í 3. sæti varð Dóra
Björg Magnúsdóttir, Aníta Brá
Ingvadóttir var besta
ljósmynda-fyrirsætan og
Svanhildur Anna Gestsdóttir
vin-sælasta stúlkan.
Stutt
Á fimmtu-daginn var gert
sprengju-tilræði í þing-húsinu í
Bagdad.
Árásin var gerð á græna
svæðinu svo-kallaða, en þar
er öryggis-gæsla mjög mikil.
Einn þing-maður súnníta lét
lífið í árásinni.
Bandaríkja-her segir að
einn hafi látist og 22 hafi
særst. Að sögn íraskra
embættis-manna voru 7
þing-menn á meðal hinna
særðu.
Regn-hlífar-samtökin
Íslamska ríkið í Írak hafa lýst
yfir ábyrgð á
sprengju-tilræðinu. Al-Qaeda
sam-tökin til-heyra m.a.
þessum regnhlífar-samtökum.
Það hefur verið stað-fest að
yfir-lýsingin er ófölsuð.
Sprenging í
þinginu
Des Browne, varnarmála-ráðherra Bretlands,
hefur lagt bann við því að bresku sjó-liðarnir
sem voru í 2 vikna fanga-vist í Íran, selji
fjöl-miðlum frá-sagnir sínar.
Ráðu-neytið hafði áður verið harð-lega
gagn-rýnt fyrir að leyfa sjó-liðunum 15 að
þiggja greiðslur fyrir að veita fjöl-miðlum
við-töl. Ætt-ingjar breskra her-manna sem
fallið hafa í Írak og Afganistan fannst
peninga-greiðslurnar vera móðgun við
minningu hinna föllnu.
Hin 26 ára gamla Faye Turney, eina konan í
sjóliða-hópnum, mun hafa fengið 100.000
þúsund pund fyrir að veita bresku
sjónvarps-stöðinni ITV og götu-blaðinu The
Sun viðtöl. Hún segist í við-talinu við The Sun
hafa óttast að sér yrði nauðgað í varð-haldinu
og hún hafi verið neydd til að af-klæðast og
dúsa á nær-klæðunum í klefanum. Henni var
hótað að hún fengi ekki að sjá lítið barn sitt
næstu árin.
Mega ekki selja
frá-sagnirnar
REUTERS
Faye Turney við komuna til Bretlands.
Á mánu-daginn hélt Björk
Guðmundsdóttir fyrstu
tón-leikana sína hér á landi í
6 ár. Þeir voru þeir fyrstu í
heims-tónleikaferð Bjarkar til
að kynna nýja breið-skífu,
Volta, sem kemur út um heim
allan 7. maí. Á tón-leikunum
tók Björk harða af-stöðu í
sjálfstæðis-baráttu
Færeyinga og Grænlendinga.
Uppklapps-lag hennar,
Declare Independence, var
til-einkað þjóðunum, og hún
hvatti þjóðirnar til að lýsa yfir
sjálf-stæði sínu. Fær-eyingar
eru ánægðir með Björk og er
lítið rætt um annað á
þar-lendum spjall-síðum.
Björk póli-tísk
á tón-leikum
Morgunblaðið/Ómar
Á föstu-daginn varð Dagný
Linda Kristjánsdóttir, frá
Akureyri Íslands-meistari í
stór-svigi kvenna á
Skíða-móti Íslands í
Hlíðar-fjalli við Akureyri.
Dal-víkingurinn Björgvin
Björgvinsson varð
Íslands-meistari í stór-svigi
karla.
Dagný Linda fékk
langbesta tímann í fyrri
umferð og jók heldur á
forskot sitt í síðari
umferðinni. Í 2. sæti lenti
Salóme Tómasdóttir frá
Akureyri og í 3. sæti varð
Tinna Dagbjartsdóttir, einnig
frá Akureyri.
Sigur Björgvins var mjög
öruggur, hann fékk bestan
tíma í báðum ferðum.
Þorsteinn Ingason varð í 2.
sæti og Stefán Jón
Sigurgeirsson í því þriðja.
Íslands-meistarar
í stór-svigi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Dagný Linda Kristjánsdóttir
og Björgvin Björgvinsson.
Netfang: auefni@mbl.is