Morgunblaðið - 15.04.2007, Síða 70
70 SUNNUDAGUR 15. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
HEIMSFRUMSÝNING
Vinkona
hennar er
myrt ogekki
er allt sem
sýnist
Magnaður spennutryllir
með súperstjörnunum
Halle Berry og Bruce Willis
ásamt Giovanni Ribisi
Hve langt
myndir þú
ganga?
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Perfect Stranger kl. 8 og 10:10 B.i. 16 ára
Hot Fuzz kl. 10 B.i. 16 ára
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 4 og 6
School For Scoundrels kl. 8
TMNT kl. 4 og 6 B.i. 7 ára
Perfect Stranger kl. 3, 5.30, 8, og 10.30 B.i. 16 ára
Perfect Stranger LÚXUS kl. 3, 5.30, 8, og 10.30
Mr. Bean’s Holiday kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11
Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 2 og 4
Sunshine kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
TMNT kl. 2, 4, 6 og 8 B.i. 7 ára
School for Scoundrels kl. 10
FRÁ DANNY BOYLE LEIKSTJÓRA 28 DAYS LATER OG
TRAINSPOTTING KEMUR SPENNUTRYLLIR ÁRSINS!
“Besta sci-fi mynd
síðustu tíu ára.”
D.Ö.J. Kvikmyndir.com
eee
“Sólskin er vel þess virði að sjá.”
H.J. MVL
eeee
“Magnþrunginn spennutryllir og
sjónarspil sem gefur ekkert eftir”
- V.J.V. Topp5.is
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI?
Bardagafimu skjaldbökurnar eru mættar aftur
í flottustu ævintýrastórmynd ársins
ANNAR ÞESSARA TVEGGJA
HEFUR HEILA...
...Á STÆRÐ VIÐ HNETU!
Frábær gamanmynd frá
leikstjóra Old School með
Billy Bob Thornton og
Jon Heder úr
Napoleon Dynamite.
Of góður?
Of heiðarlegur?
Of mikill nörd?
eee
Ó.H.T. Rás2
Frændaflokkurinn Kings ofLeon, skipaður þremurbræðrum og frændaþeirra, vakti talsverða at-
hygli í upphafi ferilsins og var þá al-
mennt talinn tilheyra bílskúrsrokks-
veiflunni sem vart varð í upphafi
áratugarins. Með tímanum hefur
sveitin þó markað eigin braut og
gengur enn lengra í þá átt á nýrri
breiðskífu sinni, Because of the Tim-
es, sem kom út sl. mánudag.
Félagarnir í Kings of Leon, Nat-
han, Caleb, Jared og Matthew, deila
eftirnafninu Followill, en þrír þeir
fyrstnefndu eru bræður og sá fjórði
frændi þeirra. Faðir þeirra bræðra,
sem eru burðarás sveitarinnar, heitir
Leon, og eins afi þeirra fjögurra, og
þaðan er heiti hennar komið. Hann
var farandpredikari og þeir bræður
hafa lýst uppvaxtarárunum svo að
þeir hafi alist upp á vakning-
arsamkomum víða um suðurríki
Bandaríkjanna. Þeir fengu heima-
kennslu, gengu ekki í skóla og lærðu
á hljóðfæri með því að hlusta á aðra
og þreifa sig áfram. Þegar faðir
þeirra var sviptur hempunni og for-
eldrarnir skildu fluttust þeir til Nas-
hville og þar sungu þeir Caleb og
Matthew sveitatónlist, meðal annars
á kúrekahátíðum.
Rokkið fannst þeim þó meira
spennandi og árið 2000 stofnuðu þeir
Kings of Leon með Matthew frænda
sínum. Þeir fengu snemma samning
við RCA-stórfyrirtækið og þar fengu
þeir líka aðstoð við að móta sveitina,
lagasmíðar og tilheyrandi frá upp-
tökustjóranum og lagasmiðnum An-
gelo Petraglia, sem samdi með þeim
fyrstu lögin, þar á meðal öll lögin á
fyrstu stuttskífunni Holy Roller
Novocaine sem kom út 2003.
Hitað upp fyrir stórstjörnur
Fyrsta breiðskífan, Youth and Yo-
ung Manhood, kom svo út sumarið
2003 og var mjög vel tekið. Það gerði
sitt til að kynna sveitina að hún hitaði
upp fyrir U2, Pearl Jam og Bob Dyl-
an og náði með því til breiðari aldurs-
hóps en annars hefði orðið.
Youth and Young Manhood var
heldur betur tekið austan hafs en
vestan, sem skýrir meðal annars það
að breiðskífa númer tvö, Aha Shake
Heartbreak, kom út í Evrópu haustið
2004 en ekki fyrr en snemma árs
2005 í Bandaríkjunum. Þeirri skífu
var ekki síður vel tekið, þar er á ferð-
inni mjög hrá plata enda tóku þeir
hana upp hráa, allir að spila og
syngja samtímis í herbergi með einn
hljóðnema, nánast í miðri tónleika-
ferð.
Prestastefnan mikla
Þriðja platan, Because of the Tim-
es, sem er kveikja þessarar sam-
antektar, var svo tekin upp á síðasta
ári, en rétt ár er síðan upptökur hóf-
ust. Platan kom svo út sl. mánudag
eins og getið er. Af heiti hennar má
sjá að þeir sveitarmenn eru enn að
vísa í uppruna sinn (sbr. Holy Roller
Novocaine), því það er komið frá
mikilli prestastefnu sem haldin er ár
hvert í Alexandríu í Louisiana og
bræðurnir sóttu oft með föður sínum
sem strákar.
Because of the Times hefur fengið
fína dóma, hún þykir besta plata
Kings of Leon, enda mun metn-
aðarfyllra verk en fyrri skífur, meira
í plötuna lagt og meiri áhætta tekin á
henni. Upphafslagið er þannig sjö
mínútna rokksýra og platan er að
öðru leyti eins og hálfgerð sýnisbók
rokkstíla, ótrúlega fjölbreytt plata og
óvenjufjölbreytt reyndar – suðurríkj-
arokk, dansrokk, rokkvals, ballaða,
leikvangarokk og svo má telja.
Mestu réð um útkomuna, segja
þeir frændur, að þegar þeir mættu í
hljóðverið vissu þeir nákvæmlega
hvað þeir vildu gera, ólíkt því sem var
með fyrri skífur, og þótt þeir hafi leit-
að til sömu manna við upptökustjórn
og útsetningar og við fyrri verk lýsa
þeir frændur því svo að nú hafi það
verið hlutverk aðstoðarmannanna að
hjálpa þeim við að ná fram ákveðinni
stemningu, en ekki að leiðbeina og
stýra.
Rokkprestastefnan mikla
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Frændur Félagarnir í Kings of Leon.
Bílskúrsrokkaldan
mikla er hnigin og
horfnar flestar þær
sveitir sem hún bar í
sviðsljósið. Enn lifa þó
nokkrar sem meira var
í spunnið; þær sem
breyttust og breytast
enn, hljómsveitir eins
og Kings of Leon.