Morgunblaðið - 15.04.2007, Síða 76

Morgunblaðið - 15.04.2007, Síða 76
SUNNUDAGUR 15. APRÍL 105. DAGUR ÁRSINS 2007 Heitast 10 °C | Kaldast 3 °C  SV-átt, einkum norðantil, en víða 8–15 m/s. Rigning eða skúr- ir. Hlýjast austanl. » 8 ÞETTA HELST» Þjóðaratkvæði um öll mál sem varða þjóðina  „Íslensk náttúra er alheims- gersemi sem varðar ekki bara okkur Íslendinga heldur mannkynið allt,“ segir Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar. Hann vill að öll mál sem varða þjóðina alla en ganga þvert á flokkslínur verði borin undir þjóðaratkvæði. »Forsíða Mikil gróska eystra  Mikil uppbygging á sér stað á Reyðarfirði vegna álversins þar. Ný fjölbýlishús blasa við, raðhús og ein- býlishús eru í byggingu upp um alla hlíð. Reist hefur verið risastórt íþróttahús með gervigrasvelli í fullri stærð. »28 Doktorum fjölgar  Fyrir áratug luku aðeins fáeinir doktorar prófi frá Háskóla Íslands á hverju ári en síðustu tvö árin hafa þeir verið um fimmtán. Nú leggja rúmlega 230 manns stund á dokt- orsnám við íslenska háskóla. »6 Milljónir Íraka á flótta  Talið er að tvær milljónir Íraka hafi flúið land sitt og flóttafólkið þarf flest að búa við ömurlegar aðstæður í grannríkjunum. Jafnmargt fólk er á vergangi innan Íraks. »10 Kasparov handtekinn  Hundruð stjórnarandstæðinga voru handtekin í Moskvu í gær, þ.á m. Garrí Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák. Um 9.000 her- og lögreglumenn voru í miðborginni til að hindra mótmælagöngu. »2 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Stuttur og skemmti- legur Staksteinar: Missa þau af lestinni? Forystugrein: Græn borg UMRÆÐAN» Burt með óhreinindin Fleiri karlar í Eflingu Vandaðu til ferilskrár Vinna á Norðurlöndum Skil milli skólastiga Tímamót Vændi, ný atvinnugrein á Íslandi Svörum kalli heimsins ATVINNUBLAÐIл MYNDLIST» Rakar af sér skegg og hár og les dagblað. »69 Strengjakvartettinn Amiina hefur verið á tónleikaferð um Bandaríkin og nýr diskur, Kurr, kemur út í júní. »67 TÓNLIST» Vilja hafa nóg að gera MYNDLIST» Málar og sýnir myndir af íþróttamönnum. »66 FÓLK» Vilhjálmur og Kate ekki lengur saman. »69 Ný, íslensk heimild- armynd, Tímamót, fjallar um þrjá þroskahefta vini sem þurfa að flytja í þétt- býlið. »69 Tímamóta- mynd KVIKMYNDIR» 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Ók á gangandi mann 2. Eiríkur fékk næstum fullt hús 3.Stakk nýfædda dóttur sína 4. Biður foreldrana afsökunar FRAMLEIÐSLA á hátæknibúnaði fyrir álver hefst fljótlega í Fjarða- byggð. Fyrirtæki, sem mun annast viðhaldsþjónustu fyrir Fjarðaál, hyggst nýta þekkingu sína til fram- leiðslu á slíkum búnaði og tækjum, með útflutning í huga. Óskar Borg, innkaupastjóri Fjarðaáls, segir að samningar við fyrirtækið séu á lokastigi. Til að ann- ast viðhaldsþjónustu fyrir álver þurfi mikla og fjölbreytta sérþekk- ingu. Samningur við álverið tryggi fyrirtækinu grunnstarfsemi, en for- svarsmenn þess ætli að nýta þekk- ingu starfsmanna sinna til fram- leiðslu og útflutnings hátækni- búnaðar. Bókakaffi og bílaþvottur Alcoa gerir þá kröfu til birgja sinna að þeir leggi eitthvað meira af mörkum til samfélagsins eystra en einungis felst í samningi við álverið. Innan skamms verður tilkynnt hvaða fyrirtæki hlýtur samning um rekstur mötuneytis álversins, en það mun jafnframt skuldbinda sig til að reka veitingastað og kaupa hráefni til rekstrar síns á svæðinu. Penninn/Eymundsson sér ál- verinu fyrir skrifstofuvörum og mun jafnframt opna svokallað bókakaffi. N1 selur álverinu smurolíu og mun bæði opna bílaþvottastöð og alþjóð- legan skyndibitastað. Óskar Borg segir skipta miklu máli fyrir samfélagið eystra að sem fjölbreyttust starfsemi spretti í kringum álverið. Alcoa lagði um 80 milljónir í nýtt íþróttahús á Reyð- arfirði og afleiddum störfum vegna álversins fjölgar sífellt. Starfsmenn álversins eru að lang- stærstum hluta Austfirðingar og sumir fluttir heim á ný eftir áralanga fjarveru. | 28 Flytja út hátæknibúnað Morgunblaðið/ÞÖK HÚSVÍKINGURINN Jóhann Bjarni Einarsson vinnur við bráðið ál í steypuskálanum, en fyrsta framleiðslan í Fjarðaáli var á 6.720 bakskautum sem sett eru í botninn á 336 kerum í kerskálunum.  Viðhaldsþjónusta fyrir álver krefst mikillar og fjölbreyttrar sérþekkingar  Birgjar Alcoa þurfa að leggja sitt af mörkum til samfélagsins eystra Fyrsta framleiðslan KONUR, sem leggja stund á dokt- orsnám við íslenska háskóla, eru nú tvöfalt fleiri en fyrir fáeinum árum. Á móti hefur körlum fækkað þann- ig að þeim sem ljúka doktorsnámi hefur ekki fjölgað í heildina. Síðustu tvö árin hafa fimmtán út- skrifast með doktorspróf frá Há- skóla Íslands sem er eini íslenski háskólinn sem útskrifað hefur doktora, enn sem komið er. Í far- vatningu er mikil aukning því nú leggja rúmlega 230 manns stund á doktorsnám við íslenska háskóla. Konum hefur fjölgað mjög í þeim hópi sem ljúka doktorsprófi en körlum hefur fækkað um fjórðung á sama tíma. „Val á námsgreinum í doktorsnámi er síðan ólíkt eftir kynjum,“ segir Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís. „Um 60% kvenna ljúka til dæmis doktors- námi í félags- eða heilbrigðisvís- indum. Konur sækja miklu minna í rannsóknir í verk- og tæknigrein- um. Við útskrifum ekki nóg í verk- og tæknigreinum í alþjóðlegum samanburði. Og 80% af þeim sem ljúka doktorsnámi þar eru karlar.“ | 6 Fleiri konur doktorar en körlunum fækkarKARLMANNSNAFNIÐ Gídeonhefur verið samþykkt sem eiginnafn af mannanafnanefnd. Í úrskurði nefndarinnar segir að Gídeon taki beygingu í eignarfalli, Gídeons, og teljist að öðru leyti uppfylla ákvæði laga um mannanöfn. Nafnið beygist þannig í aukaföllum: Gídeon – Gí- deon – Gídeon – Gídeons. Beiðni um eiginnafnið Gídeon var því samþykkt og fært á mannanafnaskrá. Nafnið Gídeon kemur fyrir í biblí- unni og þar segir að hann hafi verið einn af „dómurunum miklu“ í Ísrael. Má heita Gídeon reykjavíkreykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.