Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Steinþór Guðbjartsson í Winnipeg steinthor@mbl.is FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði á morgunfundi við- skiptaráðs Winnipeg sl. föstudag að mörg sameiginleg viðskiptatækifæri væru til staðar fyrir Íslendinga og Kanadamenn og arfleifðin væri mik- ilvæg viðskiptaleg auðlind. Á fundi viðskiptaráðsins gerði Ólafur Ragnar Grímsson grein fyrir íslenska viðskiptalífinu, hvernig það hefði breyst og orðið miklu al- þjóðlegra en áður, en fyrir vikið væru fjölþættari tækifæri fyrir við- skiptatengsl og samvinnu fyrirtækja og framkvæmdamanna við fyrirtæki á Íslandi á fjölmörgum sviðum. Hall- dór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, gerði grein fyrir starfsemi bankans og tilkynnti opn- un viðskiptaskrifstofu í Winnipeg og Magnús Þorsteinsson stjórn- arformaður Eimskipafélags Íslands hf. skýrði stöðu fyrirtækisins. Ólafur Ragnar Grímsson benti á að þegar Íslendingar settust hér að í lok 19. aldar hefði Ísland um aldir verið fátækasta þjóð Evrópu og skiljanlegt að fólk hefði leitað betri lífskjara annars staðar. Á seinni hluta 20. aldar hefði Íslendingum tekist að ná þeim árangri að vera eitt auðugasta og farsælasta ríki ver- aldar. Í árdaga nýrrar aldar hefðu Íslendingar hafið viðskiptasókn á fjölmörgum sviðum vítt og breitt um veröldina. Í því sambandi nefndi hann bankastarfsemi, fjármálaþjón- ustu, lyfjaframleiðslu, verslun, hug- búnað og fjölmargt annað. Í fyrsta skipti í sameiginlegri sögu íslensku þjóðarinnar og Kanadamanna af ís- lenskum ættum væru nú fjölþætt tækifæri á öllum þessum sviðum fyr- ir fyrirtæki og athafnamenn í Kan- ada að leita eftir samvinnu við ís- lensk fyrirtæki um sameiginlega sókn á markaði í Norður-Ameríku og á heimsmarkaði. Opnun Lands- banka Íslands í Winnipeg væri ágætt dæmi um þessa nýju tíma. Eiginleikar gulls ígildi Forsetinn sagði að margar ástæð- ur lægju að baki árangri Íslendinga í viðskiptum. Á meðal þeirra væri arf- leifðin, sem fylgt hefði þjóðinni um aldir og einnig þeim Íslendingum sem hefðu flutt til Kanada og afkom- endum þeirra. Það væri svolítið skemmtilegt að sú arfleifð sem Ís- lendingar hefðu fengið frá fyrri kyn- slóðum, áræðnum sjósóknurum, kjarkmiklum bændum og vinnu- sömu fólki ásamt því að meta mikils persónuleg tengsl og persónulegt orðspor, væru eiginleikar sem reyndust gulls ígildi á heimsmarkaði og ein af ástæðum þess af hverju ís- lensk fyrirtæki næðu árangri um- fram önnur. Þetta hljómaði kannski eins og ákveðið stærilæti en stað- reyndin væri einfaldlega sú að fólk í viðskiptalífi væri mótað af menningu eins og allir aðrir og þessi arfleifð sem við ættum sameiginlega með fólki af íslenskum ættum væri mik- ilvæg, viðskiptaleg auðlind. Ólafur Ragnar Grímsson sagðist vera sannfærður um að það væru mikil tækifæri fyrir Íslendinga og menn hér vestra að spinna þráðinn saman. Árangur Rúmfatalagersins í Kanada væri ágætt dæmi þó fyr- irtækið ætti uppruna sinn í Fær- eyjum, og margir ættingjar íslensku landnemanna hefðu orðið áhrifaríkir í viðskiptum vítt og breitt í Kanada. Nú væri lag til að stilla saman strengina með alþjóðlegan markað í huga. Möguleikar Manitobaháskóla Manitobaháskóli stóð sl. fimmtu- dagskvöld fyrir móttöku fyrir út- skriftarnema af íslenskum ættum og sóttu tæplega 400 manns fagnaðinn. Ólafur Ragnar Grímsson var heið- ursgestur og í erindi sínu benti hann meðal annars á mikilvægi Manitoba- háskóla. Hann hefði verið eins konar móðurskóli íslenska samfélagsins í Kanada og sá háskóli sem flestir Kanadamenn af íslenskum ættum hefðu sótt. Hann hefði líka haft ákveðnar skyldur gagnvart íslensku- kennslu og íslenskri menningu og gæti haft ýmis sóknarfæri. Mögu- leiki Manitobaháskóla til að taka ákveðna forystu í alþjóðlegu fræða- samfélagi ásamt háskólum á Íslandi væri meiri en áður. Arfleifðin mikilvæg viðskiptaleg auðlind Sameiginleg viðskipta- tækifæri Íslendinga og Kanadamanna voru rædd á morgunverðar- fundi viðskiptaráðs Winnipeg síðastliðinn föstudag. Morgunblaðið/Steinþór Háskólahátíð „Í dag erum við öll íslensk tilfinningalega,“ sagði rektor Manitobaháskóla, dr. Emöke Szathmáry, og stillti sér upp með prófessor Richard Sigurdson, Ólafi Ragnari Grímssyni og Erlu Wankling fjallkonu. Í Vesturheimi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hitti meðal annars fylkisstjórahjónin John Harvard og Lenore Berscheid. NÝ viðhorfskönnun Capacent Gallup fyrir Lýðheilsustöð leiðir í ljós að 75% þátttakenda eru hlynnt eða frek- ar hlynnt reyklausum veitinga- og skemmtistöðum og hefur þetta hlut- fall aukist frá 2005 en þá var það um 60%. Frá og með 1. júní nk. verður samkvæmt nýjum tóbaksvarnalögum ekki lengur leyft að reykja í þjón- usturými neinna fyrirtækja, þar með talið veitinga- og skemmtistaða. Í könnuninni voru 17% frekar eða mjög andvíg reyklausum skemmti- stöðum. Í könnuninni sagðist mikill meiri- hluti aðspurðra myndu fara jafnoft eða oftar á veitinga- og skemmtistaði ef þeir væru reyklausir eða um 89%. Ekki er um marktæka aukningu að ræða síðan 2005 þegar hlutfallið var 85,6%. Þá telja langflestir ferðir sínar á veitinga- og skemmtistaði verða ánægjulegri eða jafnánægjulegar eft- ir að þessir staðir verða reyklausir. Capacent Gallup gerði könnunina fyrir Lýðheilsustöð bæði árin. Árið 2005 var endanlegt úrtak 1.365 og svarhlutfallið 61,9% en í könnunni að þessu sinni var endanlegt úrtak 1.244 og svarhlutfall 61,3%. Flestir vilja reyklaust ♦♦♦ Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur gudrung@mbl.is BLÁTT áfram, samtök um for- varnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum, á aðild að ráðstefnu um það efni í Kennaraháskóla Íslands í 24. og 25. maí nk. John C. Patterson er einn úr hópi fimm erlendra fyrirlesara á ráðstefnunni. Hann starfar hjá samtökunum Risk Managment Center í Washington, DC. Þessi stofnun vinnur að vernd á ýmsum sviðum og Patterson hefur sérhæft sig í vernd barna gegn kynferð- islegu ofbeldi og hefur langa starfsreynslu á því sviði. Patterson kveðst ætla að ræða reynslu sína á þessu sviði á ráð- stefnunni, en hann vinnur með ýmsum stofnunum við að finna að- ferðir til að koma í veg fyrir að börn séu beitt kynferðislegu of- beldi. „Megináhersla í þeim efnum er að hjálpa stofnunum, einkum skólum, að þróa aðferðir til að tryggja öryggi barna. Kynnir og nýtir niðurstöður rannsókna Við vitum hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar til að möguleikar skapist á að börn séu beitt kyn- ferðislegu ofbeldi,“ segir John C. Patterson. „Svo dæmi sé tekið er eitt af þessum skilyrðum að barnið þarf að vera einangrað. Forvarnir felast þá m.a. í því að koma í veg fyrir að slíkar aðstæður skapist. Eitt af því sem gert er er að skoða umhverfi og athuga hvort þar sé möguleiki á að taka börn af- síðis, einnig að sjá um að nægt starfsfólk sé til að fylgjast vel með börnunum.“ John C. Patterson vinnur fyrst og fremst við að nýta sér niður- stöður rannsókna og koma þeim á framfæri við stofnanir sem hafa með börn að gera og hlutast til um að tryggja sem best öryggi barnanna. Hann vinnur mikið með skólum og reynir að koma þar á framfæri upplýsingum til skólastjórnenda og barnanna sjálfra um hvernig hægt er að koma í veg fyrir ofbeldið, hvernig börn geti varast slíkt og skólafólk geti verndað þau. Hann kveður erfitt að segja til um hvort aukning hafi átt sér stað á kynferðislegu ofbeldi en með til- komu netsins sé nú vafalaust meira afhjúpað af kynferðislegu ofbeldi en nokkru sinni fyrr. „Það hefur orðið vakning í Bandaríkjunum í umræðum um kynferðislegt ofbeldi á börnum sem hefur leitt til þess að þessi mál hafa komið upp á yfirborðið, gömul og ný,“ segir Patterson. Kynferðislegt ofbeldi mik- ið rætt í Bandaríkjunum HALLDÓR Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra hafa undirritað samkomulag um samstarf um að efla almennings- samgöngur sveitarfélaga. Sam- komulagið er í samræmi við stefnu- mótun í samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2010. Í yfirlýsingunni segir meðal ann- ars að með því að efla og nýta betur almenningssamgöngur verði unnið að því markmiði að draga úr mengun af völdum bílaumferðar og þar með minnkun svifryks og losun gróður- húsalofttegunda vegna notkunar jarðefnaeldsneytis. Þá gerir samkomulagið ráð fyrir að skipaður verði starfshópur þriggja fulltrúa samgönguráðuneyt- is og þriggja fulltrúa Sambands ís- lenskra sveitarfélaga sem falið verði að leggja fram tillögur um að efla og bæta nýtingu almenningssam- gangna sveitarfélaga. Skal starfs- hópurinn m.a. kanna möguleika sveitarfélaga til að byggja upp og stjórna almenningssamgöngum og gera þær notendavænni, meðal ann- ars með hóflegri gjaldtöku af not- endum þjónustunnar með aðkomu og stuðningi ríkis og sveitarfélaga. Minnka á mengun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.