Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 79 Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó TÓNLISTARSKÓLINN Í REYKJAVÍK Innritun stendur yfir SJÁ TONO.IS árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikhúsferð: Söngleikurinn Grettir, sýnt í Borgarleikhúsinu 5. maí kl. 20. Rúta fer frá Aflagranda 40 og Grandavegi 47, kl. 19.15. Miðaverð er 2.900 kr. Rútufargjald 500 kr. Miðapantanir á Aflagranda 40 og í síma 411 2700. Bólstaðarhlíð 43 | 5. og 6. maí nk., kl. 13–17 verður sýning á munum þátttakenda í fé- lagsstarfinu. Kaffisala, heimabakaðar kökur og smurt brauð. Ingvar Hólmgeirsson verður með nikkuna báða dagana. 5. maí kl. 14.30 sýna dömur föt frá tískuversluninni Smart og 6. maí sýnir danshópur línudans ásamt börnum úr Hlíðaskjóli. Bústaðakirkja | Fundir F(ullorðin) B(örn) A(lkó- hólista) eru alltaf á sunnudögum kl. 11–13 í Bú- stöðum (kjallara Bústaðakirkju) og eru 12 spora samtök fyrir þá sem vilja skoða bernskuna út frá alkóhólísku uppeldi og hafa fundið leiðina til bata. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20. Hljómsveitin Klassík leik- ur. Félagsstarf Gerðubergs | Alla miðvikudaga kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, umsj. Félag áhuga- fólks um íþróttir aldraða, undirbúningur fyrir Landsmót UMFÍ í Kópavogi í byrjun júlí. Allir vel- komnir. Upplýsingar á staðnum og s. 575 7720. Strætisvagnar S4, 12 og 17. Hæðargarður 31 | Síðasti fundur Bókmennta- hóps í vetur er miðvikudag 2. maí kl. 20. Hann er helgaður förinni að Hala í Suðursveit. Myndir og vídeó. Óvænt uppákoma. Ekki missa af þess- um fundi. Ást sunnudag 6. maí kl. 20. Fastir liðir eins og venjulega. S. 568 3132, asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, mánudag, er ganga frá Grafarvogskirkju kl. 10 og Boccia á Korpúlfsstöðum kl. 13.30, allir velkomnir. Vesturgata 7 | Flóamarkaður verður fös. 4. maí og mán. 7. maí kl. 13–16 báða dagana. Margt for- vitnilegt í boði. Sjón er sögu ríkari. Veislukaffi. Allir velkomnir. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11 fyrir alla krakka. Söngur, sögur, brúðuleikhús o.fl. Almenn samkoma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir prédik- ar. Tónlistarhópur kirkjunnar leiðir lofgjörð. Fyr- irbænir í lok samkomu. Barnagæsla meðan á samkomu stendur og kaffisala að henni lokinni. Allir velkomnir. Kristniboðsfélag karla | Kristniboðssalurinn Háaleitisbraut 58–60, 3 hæð. Fundur í Kristni- boðsfélagi karla mánudaginn 30. apríl kl. 20. Sr. Frank M. Halldórsson talar. Allir karlmenn vel- komnir. 50ára afmæli. Í dag erÓlöf Guðrún Péturs- dóttir hjúkrunarforstjóri, Lambafelli, 861 Rangárþingi eystra, fimmtug. Af því tilefni mun hún taka á móti vinum og velunnurum á heimili sínu Ljónshöfða/Lambafelli undir Eyjafjöllum milli kl. 15 og 19. 80ára afmæli. GuðbjörgJóhannsdóttir, Rauða- gerði 29, Reykjavík er áttræð í dag, sunnudaginn 29. apríl. Hún er stödd í Lillehammer í Noregi með börnum og tengdabörnum í tilefni dagsins. dagbók Í dag er sunnudagur 29. apríl, 119. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. (Mk 13, 27.) Dýraverndarsamband Ís-lands hefur gætt hags-muna málleysingjanna fráárinu 1914. Sigríður Ás- geirsdóttir er formaður félagsins: „Tryggvi Gunnarsson garðyrkjumað- ur Alþingisgarðsins og bankastjóri var helsti hvatamaðurinn að stofnun félagsins. Hann taldi hóp íslenskra hefðarfrúa sem komnar voru saman í Kaupmannahöfn á að stofna dýra- verndarfélag en hann hafði þá um nokkurt skeið gefið út blaðið Dýra- vininn,“ segir Sigríður. „Helsta markmiðið með stofnun félagsins var fá setta löggjöf um meðferð dýra, og hefur félagið alla tíð síðan einkum gætt að því að hvergi brjóti meðferð dýra í bága við lög.“ Fulls trúnaðar gætt Dýraverndarsamband Íslands er eina dýraverndarfélagið á landinu og eru skráðir félagsmenn hátt í 500: „Félagið innheimtir engin félagsgjöld og hlýtur enga styrki frá opinberum aðilum og heldur þannig fullu sjálf- stæði í störfum sínum,“ segir Sigríð- ur. „Félagið tekur við ábendingum frá almenningi og kemur upplýs- ingum til réttra aðila eftir að hafa sannreynt að þær eigi við rök að styðjast, og gætum við þá fulls trún- aðar við þá sem upplýsa um slæma meðferð dýra. Trúnaðar er oft þörf, og t.d. ekki óalgengt að fólk hafi fjöl- skyldutengsl við þann aðila sem grunur leikur á að fari illa með dýr, og einnig vill það gerast að þeir sem fara illa með dýr eru óvandaðir menn og óttast fólk að þeir geti brugðist illa við kvörtunum.“ Góð lög sem þarf að fylgja Á heimasíðu félagsins, Dyravernd- .is, birtast fréttir, ábendingar og pistlar um dýraverndarmál: „Íslend- ingar búa að mínu mati við afskap- lega góð lög og reglugerðir um dýra- vernd og búfjárhald. Vandinn felst oft í því að fræða dýraeigendur um þessi lög og gæta þess að þeim sé fylgt,“ segir Sigríður. „Einnig virðist stundum þurfa að ýta við stjórnmála- mönnum, ráðuneytum og stofnunum svo að dýraverndarmálum sé sinnt sem skyldi og sendum við bréf og vekjum athygli á því á síðu félagsins þegar svo ber undir.“ Nánar má fræðast um starf Dýra- verndarsambands Íslands á www.dyravernd.is. Dýr | Fréttir og umfjöllun um dýraverndarmál á slóðinni www.dyravernd.is Gæta hagsmuna dýranna  Sigríður Ás- geirsdóttir fæddist í Reykjavík 1927. Hún lauk námi frá Verslunarskóla Ís- lands 1946 og í lög- fræði frá Háskóla Íslands 1971. Hún starfaði hjá Mæðrastyrksnefnd og Félagi einstæðra foreldra áður en hún gerðist héraðsdómslögmaður 1965 og rak lögfræðistofu með eigin- manni sínum til 1988. Sigríður á þrjú börn. Tónlist Norræna húsið | Kl. 15.15. Tónleikasyrpa í Norræna húsinu: Caput-hópurinn og Auður Gunnarsdóttir, sópran, Hafdís Bjarnadóttir, tónsmiður. Salurinn, Kópavogi | Kl. 21. Tveir nemendur halda útskrift- artónleika sína frá Trommuskóla Gunnars Waage. Þeir eru Jón Mar Össurars., Artist Diploma og Friðrik Elí Bernharðs., Professional Certificate. Báðir útskrifast þeir úr Trommu- setts- og hljóðhönnunardeild. Aðgangur ókeypis og allir vel- komnir. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar | Hásalir kl. 14. Tónleikar. Hel- ena Marta Stefánsdóttir syngur bæði íslensk og erlend verk. Meðleikarar verða Sigurður Marteinsson, píanó, Guðrún Óskarsdóttir, semball, Teitur Birgisson, saxófónn og Stefán Bjarnason, baríton. Allir velkomnir. Aðg. ókeypis. Fyrirlestrar og fundir Askja- Náttúrufræðihús HÍ, stofa 132 | Fræðsluerindi Hins Íslenska Náttúrfræðifélags verður mánudaginn 30. apríl kl. 17.15. dr. Ævar Petersen flytur erindið „Breytingar á lífríki Breiðafjarðar: Vöktun sjófuglastofna“. Aðg. ókeypis og öll- um heimill. Garðaberg, Garðatorgi | Garðatorgi 7 (h. f. ofan bókasafnið). Bókin og birtan - Bókasafn Garðabæjar 25 ára kl. 20. Katrín Jakobsdóttir, bókmenntafræðingur, flytur erindi um tilurð og þróun íslenskra glæpasagna. Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, syngur. Aðg. ókeypis, kaffiveitingar. Fréttir og tilkynningar Kaffi Kjós | Fuglaskoðunarferð í Kjós, laugardaginn 5. maí kl. 14. Farið verður frá Kaffi Kjós í rútu. Leiðsögumaður Björn Hjaltason, Kiðafelli, Kjós. Verð kr. 2000. Pantanir í síma: 5667019, 5668099, 8682219 fyrir 3. maí. GREININGAR- og ráðgjafarstöð ríkisins stendur fyrir tveggja daga námskeiði eða ráðstefnu á Grand hóteli dagana 3. og 4. maí nk. Vornámskeið stöðvarinnar hafa verið haldin árlega frá því að hún tók til starfa árið 1986 og verður þetta því hið tuttugasta og annað í röðinni. Námskeiðin hafa verið vettvangur fræðslu og samveru fólks sem starfar að málefnum fatlaðra barna á öllu landinu. Þau hafa skapað tækifæri frá önn dagsins fyrir fólk af ólíkum vett- vangi að hittast, ræða saman og bera saman bækur sínar. Efni námskeiðsins í ár verður „Börn og heilbrigði“. Fjallað verður vítt og breitt um ýmislegt sem varðar heilsu allra barna, með líkamlega heilsu og þarfir barna með þroskafrávik og fötlun í huga. Á dagskrá verða 19 erindi jafnmargra fyrirlesara. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna á vef Greiningarstöðvar: www.greining.is. Börn og heil- brigði á nám- skeiði Grein- ingarstöðvar NÚ fer hver að verða síðastur að sjá yfirlitsssýningar á verkum Jó- hanns Briem og Jóns Engilberts í Listasafni Íslands. Leiðsögn verður um báðar sýningarnar í fylgd Hörpu Þórsdóttur listfræðings í dag, sunnudag, kl. 14.00. Harpa mun fjalla um þróun í list beggja listamannanna og tengsl þeirra við strauma og stefnur í alþjóðlegu samhengi. 10 þúsund hafa sótt sýningarnar Skv. upplýsingum Listasafnsins hefur frábær aðsókn verið á sýn- ingarnar í tengslum við dagskrá fræðsludeildar þar sem fjölmargir einstaklingar hafa verið kallaðir til og fjallað um listamennina út frá mismunandi sjónarhorni en um 10.000 manns hafa sótt sýning- arnar. Í safnbúð Listasafnsins fást bækur um listamennina sem gefnar voru út í tilefni sýninganna. Leiðsögn á sýningum í Listasafninu Á DAGSKRÁ Sjón- varpsins í kvöld er að finna þátt helgaðan dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2007. Þátturinn hefur að geyma umfjöllun um alla viðburði hátíð- arinnar sem eru ríflega 30 talsins. Þar á meðal er umfjöllun um hið óvenjulega götuleikhús Royal de Luxe, goð- sögnina og tónlistar- manninn Goran Brego- vic, sem verður í Laugardalshöll 19. maí og barítónana Bryn Terfel og Dmitri Hvoro- stovsky. Einnig er þar að finna umfjöllun um íslensku leiksýning- arnar Gyðjan í vélinni, Yfirvofandi og Partíl- and og breska leikhóp- inn Cheek by Jowl, sem nýlega frumsýndi Cym- beline eftir William Shakespeare í París, að ógleymdri umfjölluninni um hingaðkomu San Francisco ballettsins og sýninguna um feril Helga Tóm- assonar sem hefst í anddyri Borgarleik- hússins af því tilefni. Þarna má líka finna umfjöllun um alla ís- lensku tónlistar- viðburðina s.s. Ungir einleikarar á Listahá- tíð, Hljóðkompaníið, Tónamínútur Atla Heimis, kvartett Kammersveitarinnar sem flytur kvartetta Jóns Leifs og fjöl- breyttar myndlistarsýn- ingar á borð við Kviku, sem er viðamesta ís- lenska hönnunarsýning sem haldin hefur verið á Íslandi, svo fátt eitt sé nefnt. Kynnir þáttarins er Guðrún Gunnarsdóttir, dagskrárgerð var í höndum Jóns Egils Berg- þórssonar og umsjón í höndum Guðrúnar Kristjánsdóttur. Þátturinn er á dagskrá Sjón- varpsins í kvöld klukkan 20.15. Listahátíð kynnt Götuleikhús Royal de Luxe. Dmitri Hvorostovski Bryn Terfel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.