Morgunblaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 92
92 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍKSPARBÍÓ 450kr
NEXT kl. 6:30 - 8:30 - 10:30 B.i. 14 ára
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára
TÍMAMÓT (ÍSLENSK KVIKMYND) kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
THE GOOD SHEPERD kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8:10 LEYFÐ
300 kl. 10:30 B.i. 16 ára
/ KEFLAVÍK
BLADES OF GLORY kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
BECAUSE I SAID SO kl. 8 LEYFÐ
THE MESSENGERS kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 - 4 LEYFÐ
ROBINSONS FJÖLSKYLDAN ísl.tal kl. 2 LEYFÐ
/ AKUREYRI
BECAUSE I SAID SO
BESTA MAMMA Í HEIMI
GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI
Diane Keaton Mandy Moore
eee
Ó.H.T. RÁS2
eee
S.V. MBL
BLADES OF GLORY kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
SHOOTER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN ísl.tal kl. 2 LEYFÐ
ÚTI ER ÆVINTÝRI ísl.tal kl. 2 LEYFÐ
ANNAR ÞESSARA
TVEGGJA...
HEFUR HEILA...
Á STÆRÐ VIÐ
HNETU!
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK
WAHLBERG FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN
Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ
eeee
SV, MBL
eee
MMJ, Kvikmyndir.com
M A R K
W A H L B E R G
SANNSÖGULEG
MYND UM STÆRSTA
HNEYKSLISMÁL
Í SÖGU FBI
eeee
S.V.
eeee
V.J.V.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
EDISONS LIFANDI LJÓSMYNDIR KYNNIR:
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
eee
LIB, Topp5.is
eee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
Segja má að Trent Reznor séfangi eigin frægðar; svomiklar væntingar eru gerð-ar til verka hans að nánast
útilokað er að hann geti uppfyllt þær
– allt frá því fyrsta Nine Inch Nails-
skífan, Pretty Hate Machine, kom út
fyrir átján árum. Sú plata varð gríð-
arlega áhrifamikil þótt henni hafi
verið tekið fálega til að byrja með, og
er nú talin með helstu plötum rokk-
sögunnar. Má geta nærri að það hafi
verið erfitt fyrir Reznor að fylgja
henni eftir og reyndar má segja að
hann hafi ekki náð því almennilega
fyrr en núna þegar sjötta breiðskífa
Nine Inch Nails, Year Zero, kemur
út.
Vikapiltur í hljóðveri
Trent Reznor fékk snemma áhuga
á tónlist og líka áhuga á raf-
eindatækni, enda togaðist þetta
tvennt á í honum framan af, eða þar
til tónlistin náði loks yfirhöndinni.
Hann var ekki nema fimm ára þegar
hann hóf sitt tónlistarnám, píanónám
til að byrja með. Í miðskóla lærði
hann síðan að spila á saxófón og túbu
og var um tíma í lúðrasveit. Að loknu
miðskólanámi fór hann í háskólanám
í rafmagnsverkfræði, en hætti eftir
árs nám, til að helga sig tónlist alfar-
ið. Til að byrja með var hann hljóm-
borðsleikari í hljómsveit í Cleveland
en hætti síðan þegar hann fékk vinnu
í hljóðveri sem vikapiltur, en sem
kaupauka fékk hann að nota dauðan
tíma í hljóðverinu til að taka upp eig-
in tónlist undir nafninu Nine Inch
Nails, samdi lögin, útsetti þau og tók
upp og lék á nánast öll hljóðfæri
sjálfur.
Eftir að Pretty Hate Machine kom
út lenti Reznor í stappi við útgáfu
sína og varð það til að seinka næstu
plötu. Hann sat þó ekki auðum hönd-
um, sendi frá sér almagnaða smá-
skífu, „Broken“, 1992 og aðra, „Fix-
ed“, sem ekki var eins mögnuð.
Prýðilegur skammtur til að stytta
mönnum stundir fyrir næstu breið-
skífu og fjölgaði aðdáendum.
Pretty Hate Machine var lengi af
stað, seldist lítið framan af en sótti
smám saman í sig veðrið og skreið á
endanum yfir fjórar milljónir ein-
taka, sem verður að teljast harla
gott. Tónlistin á skífunni var bræð-
ingur af hörðu techno og hörðu rokki,
en á næstu plötu, The Downward
Spiral, sem kom út 1994, fimm árum
á eftir Pretty Hate Machine, var
undiraldan þyngri og siglt á henni
miklum rafgítarflekum. Henni var
Trent Reznor er ekki
afkastamikill maður,
sex plötur á átján árum
þykir ekki ýkja mikið.
Það fyrirgefst þó þegar
menn heyra eins
ágætar skífur og nýj-
asta plata hans, Year
Zero, vissulega er.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Mislyndur Um tíma velti Trent Reznor því fyrir sér að hætta alfarið að fást við tónlist,.
Stálhnefi í silkiglófa
vel tekið, en alls seldust af henni um
sex milljónir eintaka.
Þunglyndi, sukk og svínarí
Árin eftir að The Downward Spiral
kom út voru Reznor erfið um margt,
hann glímdi við þunglyndi, lá í
drykkju og fíkniefnaneyslu og amma
hans, sem ól hann upp, lést. Um tíma
velti hann því fyrir að hætta alfarið
að fást við tónlist, var eiginlega búinn
að týna innblæstrinum. Hann náði þó
áttum að nýju og sendi frá sér breið-
skífuna The Fragile, sem er síðra
verk en það sem á undan var komið,
en ágætis plata engu að síður. Næstu
árin var Reznor eiginlega upptekinn
við allt nema Nine Inch Nails, en gaf
sér þó tíma til að taka upp nýja hljóð-
versskífu 2005, With Teeth, sem er
heldur klén. Það kemur því kannski
ekki á óvart að menn hafi eiginlega
verið búnir að afskrifa sveitina, og
því heldur en ekki hamingja þegar
Year Zero reyndist eins ágætur grip-
ur og hún vissulega er.
Amríka árið 2022
Undanfarin þrjú ár hefur Trent
Reznor unnið að Year Zero, sett plöt-
una saman smátt og smátt á fartölvu
sinni víðsvegar um heiminn. Mark-
aðssetning skífunnar vakti mikla at-
hygli, enda hófst hún eiginlega um
leið og hann byrjaði að semja tónlist-
ina, t-bolir birtust með sérkenni-
legum skilaboðum og vefsetur voru
sett upp með enn sérkennilegri boð-
um svo dæmi séu tekin. Grunn-
hugmynd skífunnar er að eftir ekki
svo mörg ár, árið 2022, verður alræð-
isstjórn í Bandaríkjunum og íbúum
landsins haldið föngnum með lyfja-
gjöf í drykkjarvatni og ofbeldi. Undir
öllu saman hljómar svo tónlistin, fín-
ar laglínur sem skreyttar eru alls
kyns aukahljóðum og inn á milli
hamagangur og hávaði þó minna beri
á því en á fyrri skífum – stálhnefi í
silkiglófa; besta plata Trenz Reznor /
Nine Inch Nails, í mörg ár.