Morgunblaðið - 29.04.2007, Side 45
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 45
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is
www.utflutningsrad.is
Viðskipti við
Sameinuðu þjóðirnar
Fræðslufundur, fimmtudaginn 3. maí 2007
Radisson SAS Hótel Sögu kl. 8.30 -10.45
Útflutningsráð og viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins
halda fræðslufund um viðskiptamöguleika íslenskra fyrirtækja
við Sameinuðu þjóðirnar.
Dagskrá:
• How to do business with the UN
Niels Ramm, Procurement Specialist, UNDP
• Reynsla af viðskiptum við Sameinuðu þjóðirnar
Baldur Þorgeirsson, framkvæmdastjóri innlendrar
starfsemi Kvosar hf.
• Útboðsvefir stofnanna Sameinuðu þjóðanna kynntir
Arnþór Þórðarson, rekstrar- og fjármálaráðgjafi Verkfræðistofu
Jóhanns Indriðasonar ehf.
Fundarstjóri er Berglind Ásgeirsdóttir, sviðsstjóri viðskiptasviðs
utanríkisráðuneytisins.
Fyrirtækjum og einstaklingum gefst tækifæri á viðtalstímum
með Niels Ramm frá kl. 11-16. Aðgangur er ókeypis en skráning
á fræðslufundinn og viðtalstíma fer fram í síma 511 4000 eða
með tölvupósti á netfangið utflutningsrad@utflutningsrad.is.
R
A
PI
P
AÍ
S
70
72
0
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
V
ið hjónin fórum á páska-
dag á blænd deit. Við átt-
um stefnumót við aðila
sem við höfðum beðið eft-
ir að hitta í tæpa níu
mánuði og reyndar lengur ef út í það
er farið.
Við mæltum okkur mót á spítala
nokkrum í hverfi heilagrar Móniku.
Á fyrstu klukkustundunum kynnt-
umst við fimm hjúkrunarkonum.
Þetta var heldur svona undarlegt því
þær voru ekki fyrr búnar að kynna sig
en þær kvöddu með virktum og
kynntu næstu hjúkku til leiks. Enginn
skortur á mannafla þar.
Allar lögðu þær fyrir mig spurn-
inguna: Hvað ertu með mikla verki á
skalanum 1–10?
Ég lærði fljótt að ef ég svaraði fjór-
ir þá gerðist ekki neitt. En með því að
svara sjö fékk ég innspýtingu af af-
bragðs eiturlyfi sem var í boði húss-
ins. Því svaraði ég ævinlega sjö.
Þegar ég var farin að þvaðra helst
til mikið ákvað maðurinn minn að
labba sig niður á kaffiteríuna á neðstu
hæðinni og gekk í flasið á lögreglu-
þjónum með alvæpni sem báru á milli
sín mann sem hafði fengið skotsár í
nærliggjandi götu. Það var greinilegt
að við vorum ekki á Landspítalanum.
Við hjónin fengum bæði armbönd
til að auðkenna okkur og einnig var
útbúið örlítið handjárn til að skreyta
væntanlegan erfingja með.
Handjárnið var þeim eiginleikum
búið að setja viðvörunarbjöllur spít-
alans af stað ef einhver gerði sig lík-
legan að hafa barnið á brott. Ég
spurði í kæruleysiskóma hvort það
væru mikil brögð að því að börn væru
tekin traustataki og var fálega svarað
neitandi.
Eftir því sem á daginn leið jókst
sóttin og þegar ég var farin að tala ís-
lensku við hjúkkuna og ensku við
manninn minn þáði ég mænudeyf-
ingu í fyrsta sinn.
Þegar ég hafði fengið hana varð ég
öskureið.
Hvaða sadisti fann upp á því að það
væri betra að konur gengju deyfing-
arlausar í gegnum fæðingar?
Ég hugsa með hryllingi um fæð-
ingar eldri dætra minna þar sem ég
þrjóskaðist við að eignast börnin á
sem náttúrlegastan máta. Þvílíkt bull.
Það var kærkomið að fæða barn án
þess að vera hálf meðvitundarlaus af
kvölum.
En það var furðulegt að eignast
barn á ensku. Það er einhvernveginn
hálf bjánalegt að þurfa að tjá sig á er-
lendri tungu í svona kringumstæðum.
Mér fannst í raun eins og ég væri
gestaleikari í illa skrifaðri amerískri
læknasápu.
Kona: Does she look normal?
Doktor: Ten fingers! Ten toes!
Kona: (skelkuð)That́s it?
Doktor: No, no. It́s a perfectly
healthy little girl.
Kona (brestur í grát af gleði)
Ég mátti vera þrjár nætur á spít-
alanum og fékk að hafa manninn minn
hjá mér. Þvílíkur lúxus. Ætli það sé
sami sadistinn og sá sem fann upp
deyfingarlausu fæðingarnar sem
heldur því fram að konum sé fyrir
bestu að rjúka út af spítalanum sam-
dægurs? Að þessu leyti hafa kvenrétt-
indi minnkað til muna frá því að það
þótti sjálfsagt að konur lægju á sæng
og fengju að vera á spítalanum jafnvel
viku tíma.
Því er miskunnarlaust haldið fram
við konur að það sé svo frábært að
geta bara farið beint heim. Konur
hafa kokgleypt þessa lygi og stæra sig
jafnvel af því að ganga í blóðbönd-
unum beint út á bílaplan. Meira bullið!
Það sem var undarlegast við þessa
spítalavist var það að mega ekki yf-
irgefa spítalann nema í hjólastól. Ég
þráaðist við og sagðist vel geta gengið
en það varð engu tauti við hjúkkurnar
komið og þær skelltu mér í hjólastól-
inn og slepptu ekki af mér hendi fyrr
en þær voru búnar að spenna á mig
bílbeltið í bílnum okkar. Þá datt ég
loks úr ábyrgð.
Við keyrðum löturhægt í burtu með
litla Ameríkanann í aftursætinu. Á
okkar ábyrgð.
Að eignast barn á ensku
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111