Morgunblaðið - 29.04.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2007 47
sig loks á því að hér er fullt af stelp-
um sem vantar skautafélaga,“ grín-
ast Guillaume.
Settu markið á Ólympíuleikana
Hann segir samstarf þeirra hafa
verið ánægjulega lífsreynslu en áður
hafði hann haft marga félaga. „En
loks fann ég hana, einhvern sem vildi
leggja virkilega hart að sér.“
Takmark þeirra var að keppa á Ól-
ympíuleikunum í Tórínó 2006 en það
gekk ekki upp. „Það var mjög erfitt
fyrir okkur að taka ákvörðun um að
hætta. Og að fara ekki á Ólympíu-
leikana var mjög svekkjandi. Við vor-
um búin að leggja hart að okkur en
þetta gekk ekki upp.“
Ein af ástæðunum var að erfiðlega
gekk að finna paraþjálfara við hæfi.
„Það hittist einhvern veginn þannig á
að þegar við byrjuðum fóru margir af
þekktustu þjálfurunum á eftirlaun
eða létust,“ segir Jennifer en bætir
við að þau hafi þó fengið tækifæri til
að vinna með hinum þekktu þjálf-
urum Tamöru Moskvinu og Igor
Moskvin.
Ekki er hægt að fullyrða um að
keppnisskautarnir séu endanlega
komnir á hilluna. Í parakeppni er
auðveldlega hægt að skauta til 35 ára
aldurs en Guillaumer 26 ára og
Jennifer á svipuðum aldri.
Þau segja það skrýtna tilfinningu
að par sem þau æfðu mikið með í
Berlín lenti í þriðja sæti í síðustu
heimsmeistarakeppni og hampar nú
Evrópumeistaratitlinum. Í æfinga-
búðunum í Los Angeles síðasta sum-
ar var verið að hvetja þau til að
keppa á ný en þá voru þau búin að
taka ákvörðun um að koma hingað.
Ætla að vera lengur
Örlögin voru búin að grípa í taum-
ana og nú ætla þau sér að vera ár í
viðbót á Íslandi.
„Krakkarnir eru búnir að læra svo
mikið, við erum búin að vera að
breyta miklu og allir eru að aðlagast
því. Á næsta ári ætti starfið að bera
ávöxt og við ætlum að vera áfram til
að sjá það gerast. Þegar við komum
hingað ætluðum við að dvelja hérna í
mesta lagi í nokkra mánuði. Við
bjuggumst ekki við því að við yrðum
svona hrifin af öllu hérna. Við erum
mjög ánægð með framfarirnar sem
þegar hafa orðið. Við erum búin að
leggja hart að okkur og viljum fylgja
þessu úr hlaði. Starfið er enn í mótun
og strúktúrinn ekki nógu stöðugur til
að við getum farið. Við erum líka að
þjálfa íslensku þjálfarana til að þeir
geti haldið þessu starfi áfram. Saga
skauta er stutt á Íslandi. Við von-
umst til að þess að geta miðlað af
reynslu okkar, af því sem við höfum
lært og mistökum okkar.“
Eitt af því sem þau miðla er
keppnisreynsla. „Ég hef oft sagt við
stelpurnar að þær eru ekki að keppa
fyrir okkur. Þær verða að ákveða
sjálfar hvort þær vilji keppa eða ekki.
Keppnin er fyrir þær,“ segir Jenni-
fer.
Greinilegt er að þau velta mikið
fyrir sér hvernig hægt sé að gera
betur. „Við reynum líka að kenna
þeim að borða rétt. Kenna þeim heil-
brigða lífshætti og að hugsa jákvætt.
Krakkarnir læra líka samskipti og að
sýna öðrum íþróttamönnum virð-
ingu,“ segir hún og Guillaume tekur
við: „Við reynum að gefa þeim margt.
Þetta er líka skóli lífsins. Öll vanda-
málin sem maður lendir í hér lendir
maður í fyrr en síðar í skóla eða
vinnu. Því fyrr sem maður lærir að
takast á við vandamálin, því betra.
Lífið ekki alltaf auðvelt.“
Eitt af því sem þeim finnst ekki
alltaf auðvelt er rigningin og
þungbúinn grár himinn, eins og sá
sem hangir rétt fyrir ofan Skauta-
höllina í Laugardal þegar viðtalið fór
fram. „Ef það rigndi minna væri
þetta auðveldara. Við vinnum allan
daginn í kuldanum, við erum vön
honum! En það getur verið erfitt að
fara út í grámann og sjá hvergi bláan
himin,“ segir Guillaume en Jennifer
á lokaorðið: „Þá fer maður að hugsa,
ég er í vitlausri íþrótt! Af hverju er
ég ekki golfkennari á Spáni,“ segir
hún og hlær. „En við elskum þessa
íþrótt.“
ingarun@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Búningurinn
Stoltir fulltrúar
þjóðlands síns.
Guillaume og Jennifer „Við vissum nærri ekkert um Ísland áður en við
komum hingað. Við vissum ekki við hverju við áttum að búast en langaði að
gera eitthvað spennandi og fengum gott tækifæri til þess hér.“
Allri lántöku fylgir einhver áhætta. Breytingar á gengi, vöxtum og verðbólgu hafa áhrif á öll lán.
Helmingaskipt húsnæðislán eru með afar lágum vöxtum vegna þess að helmingur lánsins er í erlendum
lágvaxtamyntum. Ef krónan lækkar, þá hækkar lánið um leið. Þess vegna er hinn helmingur lánsins
í íslenskum krónum til að draga úr gengisáhættu. Þannig reynum við að bjóða lága vexti með minni áhættu
út af gengissveiflum heldur en ef lánið væri að fullu í erlendri mynt.
Fáðu nánari upplýsingar og ráðgjöf í næsta útibúi, í þjónustuveri í síma 440 4000 eða www.glitnir.is
Ráðleggingar um mataræði
Fiskur að
minnsta kosti tvisvar
í viku eða oftar