Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HÓPUR arkitekta hefur skilað
skipulagssviði Reykjavíkurborgar
tillögum sínum að því hvernig eigi
að standa að uppbyggingu á reit-
unum þar sem bruninn mikli varð í
Lækjargötu og Austurstræti síðasta
vetrardag. Funduðu borgaryfirvöld
um tillögur hópsins á miðvikudag og
munu ræða þær áfram á næstunni.
Ekki fæst upp gefið enn sem komið
er út á hvað tillögurnar ganga.
Það var Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri sem fékk vinnu-
hópinn til að semja tillögur að því
hvernig ætti að standa að endur-
byggingu húsanna sem skemmdust
í brunanum.
Niðurrif húsarústanna í Austur-
stræti 22, þar sem áður var veit-
ingastaðurinn Pravda, hefur farið
fram að undanförnu en hlé hefur
verið gert á því verki. Að sögn Ást-
ráðs Haraldssonar, lögmanns eig-
enda hússins, er mat á umfangi
skemmdanna ekki orðið ljóst því
eigendur og tryggingafélag eru ekki
fyllilega á sömu línu þar. Segir hann
að eigendur telji húsið ónýtt en
tryggingafélagið hafi hins vegar
ekki gengið frá yfirlýsingu þess eðl-
is. Á meðan svo er ástatt töldu eig-
endurnir óvarlegt að láta niðurrifið
halda áfram. Þegar eldurinn logaði
og slökkviliðsmenn höfðu reynt að
slökkva í hálfa þriðju klukkustund
var ákveðið að rífa þak Pravda.
Rannsókn á brunanum stendur
enn yfir hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Ekki er neinu sleg-
ið föstu um eldsupptökin að sögn
Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra,
en ýmislegt bendir til að kviknað
hafi í út frá loftljósi í Fröken
Reykjavík, við hlið Pravda og stað-
festi lögreglustjóri þá kenningu á
brunadag.
Hlé gert á niðurrifi húsarústa eftir Miðbæjarbrunann vegna tryggingavafa
Endurreisn í skoðun
Morgunblaðið/Júlíus
Stöðvun Eigendur Pravda telja húsið ónýtt og vilja stöðva niðurrifið í bili.
TEKIST hefur að bjarga steindum
gluggum eftir Gerði Helgadóttur
úr kirkju sem fyrirhugað er að rífa
í Düsseldorf í Þýskalandi. Glugg-
arnir hafa verið fluttir til landsins
og verða sýndir í Gerðarsafni í
Kópavogi næstu daga.
Umrædd kirkja, Melanchton-
kapellan, sem var byggð árið 1966,
þarf að víkja fyrir öðrum bygg-
ingum en með snarræði tókst að
bjarga gluggunum sem eru 20 tals-
ins og mynda eina heild. Þeir voru
gerðir þegar Gerður stóð á hátindi
þess skeiðs á ferli sínum sem kennt
er við ljóðræna abstraktsjón.
Gerður naut mikilla vinsælda í
Þýskalandi en við gerð hinna frægu
glugga fyrir Skálholtskirkju komst
hún í kynni við Oidtmann-bræður í
Linnich, sem voru fremstu hand-
verksmenn þýsku þjóðarinnar á
sviði steindra glugga. Báru þeir
hróður hennar víða og fékk hún
fjölda verkefna í kjölfarið. Sem
dæmi má nefna að steinda glugga
eftir Gerði er að finna í sex kirkjum
í Þýskalandi.
Gluggum Gerðar bjargað frá Þýskalandi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir ánægjulegt að sjá
mikinn stuðning Norðlendinga við
að grafin verði göng undir Vaðla-
heiði, en skoðanakönnun leiðir í ljós
yfir 90% stuðning við málið. Sturla
segir Vaðlaheiðargöng skynsamleg-
an kost og segir hann að gert sé ráð
fyrir fjárheimildum til verksins sam-
kvæmt samgönguáætlun. „Það er
gert ráð fyrir því að samgönguráð-
herra hafi heimild til að hefja við-
ræður og undirbúning vegna einka-
framkvæmdar,“ bendir hann á. „Það
hefur alltaf legið fyrir að í fyrsta lagi
þyrfti að gera ráð fyrir fjármunum
til að borga tengingar við þjóðvega-
kerfið en jafnframt að ríkið kæmi
með einhverju móti nálægt þessu.“
Forsvarsmenn Greiðrar leiðar
ehf. sem létu gera könnunina fyrir
sig, eru samt vonsviknir með nýsam-
þykkta samgönguáætlun og eru
svartsýnir á að nokkuð verði af verk-
efninu í bráð miðað við óbreytta
samgönguáætlun.
Sturla segir að viðræður sem
hafnar eru milli Vegagerðarinnar og
Greiðrar leiðar hafi átt að leiða aðild
ríkisins að málinu í ljós. „Og Vega-
gerðin hefur gert mér grein fyrir
þeim atriðum sem forsvarsmenn
Greiðrar leiðar hafa sett fram og það
er allt til meðferðar. Það á ekkert að
vera því til fyrirstöðu að viðræður
haldi áfram, þannig að viðbrögð for-
svarsmanna Greiðrar leiðar koma
mjög á óvart og eru algerlega þvert
á vilja ríkisstjórnarinnar og vilja
minn sem samgönguráðherra sem er
sá að koma þessum göngum á og
hefja framkvæmdir sem allra fyrst.“
| 24
Ráðherra vill Vaðla-
heiðargöng sem fyrst
Yfirgnæfandi stuðningur er við jarðgöngin fyrir norðan
Í HNOTSKURN
»Sturla Böðvarsson sam-gönguráðherra vill koma
jarðgöngum undir Vaðlaheiði
á dagskrá og hefja fram-
kvæmdir sem allra fyrst.
»Yfir 90% íbúa Eyjafjarðarog S-Þingeyjarsýslu vilja
Vaðlaheiðargöng en forsvars-
menn Greiðrar leiðar ehf. eru
svartsýnir á að hægt verði að
fara í verkefnið miðað við
óbreytta samgönguáætlun.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða
fangelsi fyrir að ráðast á mann í and-
dyri hótels á Akranesi og skalla hann
í andlitið og ráðast síðan á annan
mann fyrir utan hótelið og sparka
ítrekað í hann liggjandi. Atvikið átti
sér stað í júní á síðasta ári en menn-
irnir, sem fyrir árásunum urðu,
störfuðu báðir sem dyraverðir á hót-
elinu.
Maðurinn sem dóminn hlaut rauf
með brotum sínum nú skilyrði
reynslulausnar sem hann hafði feng-
ið af 5 mánaða eftirstöðvum refsing-
ar samkvæmt eldri dómi.
Maðurinn var dæmdur til að
greiða þeim sem hann sparkaði í
tæpar 260 þúsund krónur í bætur
auk málskostnaðar.
Með dómi sínum staðfesti Hæsti-
réttur dóm Héraðsdóms Vestur-
lands frá 3. október sl.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Ingibjörg Benediktsdóttir,
Hjördís Hákonardóttir og Jón Stein-
ar Gunnlaugsson. Verjandi var
Hilmar Ingimundarson hrl. og sækj-
andi var Sigríður Elsa Kjartansdótt-
ir, saksóknari hjá embætti ríkissak-
sóknara.
Fangelsi
fyrir árás
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
tapar miklu fylgi yfir til Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs í
Suðvesturkjördæmi, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun sem Capacent
Gallup hefur gert fyrir Ríkisútvarp-
ið. Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylking halda sínu fylgi samkvæmt
könnuninni.
Sjálfstæðisflokkur með 5 menn
Könnunin var gerð dagana 25.
apríl til 2. maí og samkvæmt henni
mælist fylgi Sjálfstæðisflokks 41,6%
og fær flokkurinn fimm þingmenn,
fékk fjóra í síðustu kosningum. Fylgi
Samfylkingar mælist 27,7% sem
þýðir 4 þingmenn eins og í síðustu al-
þingiskosningum. Fylgi Vinstri
grænna mælist 14,8% og kemur
flokkurinn einum manni að sam-
kvæmt þeirri niðurstöðu. Fylgi
Framsóknarflokksins í kjördæminu
mælist 6,5% og tapar flokkurinn sín-
um þingmanni.
Fylgi Frjálslynda flokksins
mælist 4,9% og fylgi Íslandshreyf-
ingarinnar 2,5%.
Missir mikið
fylgi til VG
♦♦♦