Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
www.hr.is
KYNNTU ÞÉR NÁMSFRAMBOÐ Á
HEIMASÍÐU SKÓLANS
Opið fyrir umsóknir
ELÍAS Björn Hall-
dórsson listmálari
andaðist á líknardeild
Landspítalans,
Landakoti, 2. maí sl.,
76 ára að aldri. Hann
fæddist 2. desember
1930 á Snotrunesi í
Borgarfirði eystra,
sonur Halldórs Ár-
mannssonar bónda og
Gróu Björnsdóttur
húsfreyju.
Elías ólst upp á
Borgarfirði eystra.
Hann gekk í Alþýðu-
skólann á Eiðum og
fékkst þar talsvert við að teikna.
Hann stundaði nám við Handíða-
og myndlistarskóla Íslands 1954–
1957 og vann á sumrin við brúar-
smíð víða um land. Elías hélt til
náms við Listaakademíuna í Stutt-
gart og var þar eina önn en fór til
Kaupmannahafnar og fékk inn-
göngu í Konunglega fagurlista-
skólann. Meðal samnemenda hans
þar voru Alfreð Flóki
og Zakharías Heine-
sen.
Elías sneri heim og
vann ýmis störf en
vann að myndlistinni í
frístundum. Auk þess
að mála myndskreytti
hann bók og vann tré-
ristur. Elías flutti til
Sauðárkróks 1963 þar
sem hann vann m.a. í
verksmiðju og var
bæjarverkstjóri en
vann jafnframt að
myndlistinni. Árið
1974 ákvað Elías að
helga sig myndlistinni og sýndi
verk sín bæði á einkasýningum og
samsýningum. Hann bjó í Kópa-
vogi frá 1987 og var þar með
vinnustofu. Elías var heiðurslista-
maður Kópavogs 1994.
Eftirlifandi eiginkona Elíasar er
Ásthildur Í. Sigurðardóttir. Þau
eignuðust þrjá syni sem lifa föður
sinn.
Andlát
Elías B. Halldórsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HÆÐARRÁ yfir Miklubraut féll niður á nyrðri
akbrautina laust fyrir hádegi í gær og lenti á
tveimur bílum. Ráin féll þegar vörubíll með of
hátt reistan krana ók á hana um kl. 11.20 í
gærmorgun. Öllum fjórum akreinum braut-
arinnar til vesturs var lokað vegna óhappsins
og olli það talsverðri umferðarteppu. Ekki
urðu nein slys á fólki en bílarnir tveir skemmd-
ust talsvert samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar.
Brá svona þokkalega
„Ég var bara að keyra þegar eitthvað datt
ofan af himninum í rúðuna hjá mér, fór svo á
húddið og undir bílinn,“ sagði Þórunnbjörg
Sigurðardóttir, eigandi fólksbíls, sem skemmd-
ist talsvert við að fá hæðarrána á sig. Þórunn-
björg var ein á ferð í bílnum. Eftir á að hyggja
sagði hún að sér þætti eins og vörubíllinn, sem
olli óhappinu, hefði verið talsvert langt fyrir
framan hana. En skyldi henni ekki hafa brugð-
ið við óhappið?
„Jú, svona þokkalega. Það flaug í gegnum
huga minn hvað þetta gæti verið og hvaðan það
hefði komið. Þetta var allavega mjög óvænt
uppákoma,“ sagði Þórunnbjörg. Hún sagði að
framrúðan hefði brotnað við óhappið en ekki
splundrast. En meiddist Þórunnbjörg við
óhappið?
„Ef ég hef gert það, þá hef ég ekki áttað mig
á því. Ég man að ég rak hausinn í stýrið, en
mér brá svo mikið að ég spáði ekki í það,“ sagði
Þórunnbjörg.
Hún taldi að bíll sinn væri mikið skemmdur
eftir óhappið. Auk þess að brjóta rúðuna hafi
sláin beyglað vélarhlífina og brettið, skemmt
hjólabúnað að framan og einnig fór vír úr ránni
undir bílinn og reif númeraplötuna að framan
af og eitthvað undan honum. Þórunnbjörg
sagðist hafa getað ekið bílnum að nálægu
vinnusvæði og skilið hann þar eftir. Miklir
skruðningar væru í honum og svo mikill titr-
ingur í stýrinu að bíllinn væri óökufær.
Svo datt hún bara
„Við vorum að keyra þarna og sáum vörubíl-
inn rekast í slána, svo datt hún bara,“ sagði
Guðrún Ósk Pálsdóttir, sem var farþegi í bíl á
Miklubrautinni. Sláin datt fyrir framan bílinn
sem hún sat í, en Sævar Þór Svanlaugsson bíl-
stjóri brást skjótt við og tókst að stöðva bílinn
án þess að lenda á slánni.
Guðrún sagði að þau hefðu ekið fyrir aftan
vörubílinn og séð þegar kraninn á honum rakst
í slána. Hún sagði að sér hefði brugðið mikið
við að sjá slána detta. Sláin lá þvert yfir ak-
brautina og sagði Guðrún að þau hefðu beðið
eftir að lögreglan kæmi. Hún leyfði þeim síðan
að halda för sinni áfram.
Aðspurð sagði Guðrún að hún myndi „alveg
örugglega“ hafa varann á sér næst þegar hún
æki undir svona hæðarrá.
Morgunblaðið/Júlíus
Sluppu Guðrún Ósk Pálsdóttir var farþegi í fólksbíl sem slapp naumlega við að lenda á slánni. Óhappið átti sér stað á Miklubraut í gær.
Eitthvað datt af himninum
Óhapp Sláin lenti á bíl Þórunnarbjargar Sigurðardóttur og skemmdi hann og annan bíl.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt rúmlega
fertugan karlmann, Garðar Garðarsson, í
fimm ára fangelsi fyrir ýmis brot og skil-
orðsrof. Með dómi sínum staðfesti Hæsti-
réttur refsingu sem ákærða var dæmd í
Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 13. desem-
ber sl. Ákærði var sakfelldur af ákæru ríkis-
saksóknara fyrir nytjastuld, þjófnað,
skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og
fíkniefnalagabrot.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars
litið til langs sakaferils ákærða, langrar
brotahrinu, einbeitts brotavilja og þess að
hann reyndi eftir fremsta megni að hylja
slóð sína.
Sakaferill ákærða nær aftur til ársins
1982. Auk refsingar var hann sviptur öku-
rétti ævilangt og dæmdur til að greiða sak-
arkostnað upp á rúmar 460 þúsund kr. og
bætur til Olíuverzlunar Íslands að fjárhæð
rúmar 420 þúsund kr. vegna þjófnaðar á
bensínstöð félagsins. Þá voru upptæk gerð
nokkur grömm af fíkniefnum af ýmsum teg-
undum s.s. kókaín, hass og e-töflur.
Málið dæmdu hæstaréttardómararnir
Árni Kolbeinsson, Jón Steinar Gunnlaugs-
son og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Verj-
andi var Hilmar Ingimundarson hrl. og
sækjandi Ragnheiður Harðardóttir vara-
ríkissaksóknari.
5 ára fangelsi
fyrir ýmis brot
ÍSLENSKIR „áhrifavaldar“ treysta ríkis-
stjórninni betur en viðskiptalífinu, fjölmiðl-
um, frjálsum félagasamtökum og trúfélög-
um. Þetta má lesa úr nýrri könnun
Capacent Gallup og AP almannatengsla þar
sem kemur fram að heilbrigðisgeirinn nýtur
mests trausts atvinnugreina.
Með skilgreiningunni „áhrifavaldur“ er
hátt við háskólamenntað fólk á aldrinum 35
– 64 ára sem eru í tekjuhæsta fjórðungnum
og „hafa áhuga á stjórnmála- og viðskipta-
umræðu“ eins og það er orðað í tilkynningu.
Svarendur voru 150 og treysta 54% stjórn-
inni frekar eða mjög mikið, 46% viðskipalíf-
inu, 35% fjölmiðlum, 25% frjálsum félaga-
samtökum og 11% trúfélögum.
Viðhorf til fjölmiðla var einnig kannað.
Flestir töldu útvarpsfréttir frekar eða mjög
áreiðanlegar, eða 75%. Nær sama hlutfall,
eða 74%, nefndi greinar í viðskiptablöðum
annars vegar og skýrslur frá verðbréfa- eða
greiningarfyrirtækjum hins vegar. 66%
töldu sjónvarpsfregnir áreiðanlegar, 42%
dagblöð og aðeins 3% efni á bloggsíðum.
Tortryggni í garð bloggsins sem miðils
kom einnig fram í því að aðeins 4% sögðu
upplýsingar frá bloggurum frekar eða mjög
trúverðugar. Þátttakendur voru jákvæðir í
garð fyrirtækja sem sýna samfélagslega
ábyrgð, alls sögðust 77% líklegast að þeir
mundu kaupa vöru eða þjónustu af fyrir-
tækinu (34%), skipta við það (26%) eða
mæla með því (17%).
Stjórninni
treyst betur
♦♦♦
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
RÚSSNESKUR læknir, Vladimir
Stanovko, sem starfar við heilsu-
gæslustöðina við Kárahnjúka á veg-
um Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands, færði Impregilo
bráðabirgðalista Þorsteins Njáls-
sonar yfirlæknis yfir 180 menn sem
hann taldi hafa orðið fyrir eitrun í
göngum virkjunarinnar. Þetta stað-
festir landlæknir. Þorsteinn hefur
ásakað Impregilo fyrir að láta stela
listanum af skrifborði sínu á heilsu-
gæslunni. Stanovko hefur ekki gilt
lækningaleyfi á Íslandi en starfar
með Þorsteini að heilsugæslu.
Matthías Halldórsson landlæknir
segir ótímabært að ræða frekar at-
hugun embættisins og Vinnueft-
irlits á málavöxtum, enda hafi ekki
öll gögn borist embættinu. Ekki
hafi tekist að ná í Þorstein Njálsson
til að fá ákveðin atriði á hreint og
ekki sé um meiri upplýsingar að
ræða fyrr en það tekst.
Upplýsinga
beðið