Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 12

Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÝ gjaldskrá fyrir Hvalfjarð- argöng tekur gildi á mánu- daginn kemur, 7. maí. Meginbreyt- ingin er sú, samkvæmt til- kynningu frá Speli, að II. gjaldflokki verður skipt í tvennt. Í nýjum II. flokki verða ökutæki 6–8 metrar að lengd og í nýjum III. flokki verða ökutæki 8–12 metrar að lengd. Þetta mun hafa það í för með sér að veggjald svokallaðra pall- bíla, sendibíla og fleiri ökutækja, lækkar um nær helming. Stök ferð mun þannig kosta 1.500 krónur í stað 2.800 króna áður. Nokkur gagnrýni hefur verið á það fyrirkomulag sem ríkti áður, þegar pallbílar báru svokallað vörubílagjald. Á hinn bóginn mun gjald húsbíla hækka, en þeir hafa hingað til farið í gegnum göngin á lægsta gjaldi, þ.e. fólksbíla- gjaldi, þrátt fyrir að vera allt að 7,25 metrar á lengd, segir í frétt Spalar. Um þessar mundir er Spölur að taka í notkun sjálfvirkan lengdar- mælingabúnað, en nýi búnaðurinn er forsenda þess að hægt sé að breyta gjaldskránni. Spölur breytir gjaldskránni Umferð í Hval- fjarðargöngum SKRIFAÐ hefur verið undir samn- ing um Landgræðsluskóga milli Skógræktarfélags Íslands og land- búnaðar- og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Samningurinn lýt- ur að framlögum ríkisins til Land- græðsluskógaverkefnisins og felur í sér plöntukaup, umhirðu, grisjun, og bætt aðgengi að svæðum Land- græðsluskóga. Samningurinn hljóð- ar upp á framlag ríkisins sem nem- ur 35 milljónum króna árlega til ársins 2013. Svæði Landgræðslu- skóga eru í umsjón og á vegum skógræktarfélaganna og eru nú um 130 víðs vegar um land. Með þess- um nýja samningi mun skógrækt- arhreyfingin eflast til muna. Aukn- ir möguleikar verða á því að gera nýmerkur Landgræðsluskóga að- gengilegar almenningi og um leið er lögð áhersla á að skapa góða úti- vistaraðstöðu á svæðum þeirra, segir í fréttatilkynningu. Skógræktarhreyfingin eflist Kampakátir Ráðherrarnir Guðni Ágústsson og Árni M. Mathiesen ásamt Magnúsi Jóhannessyni, formanni Skógræktarfélags Íslands. NÝSKRÁNINGAR bíla í janúar– apríl í ár voru 5787, þ.e. 34,9% sam- dráttur frá fyrra ári. Síðastliðna 12 mánuði, til loka apríl, voru ný- skráningar bíla 20.212 en það er 26,5% samdráttur frá fyrra tólf mánaða tímabili. Færri nýir bílar RITAÐ hefur verið undir samning um byggingu nýs skólahúss fyrir byggingagreinar og mannvirkja- gerð, sem í daglegu tali er kölluð tréiðnadeild, við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Það var Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, menntamálaráðherra sem ritaði undir samkomulagið f.h. ríkisins og Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, fyrir hönd sveitarfélaganna fimm sem standa að skólanum á sunnanverðu Vest- urlandi. Tréiðnahús BAKKAVÖR, Háskólinn í Reykja- vík og Viðskiptaráð Íslands hafa stofnað sjóð sem notaður verður til að verðlauna þá nemendur Há- skólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verk- efnum innan skólans á ári hverju. Þessi verðlaun verða kennd við Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrver- andi rektor skólans, vegna fram- lags hennar til frumkvöðlamennt- unar innan HR. Bakkavör mun leggja fimm milljónir króna í stofnfé sjóðsins. Fyrirkomulag styrkveitinga úr sjóðnum verður með þeim hætti að bestu fimm til sjö viðskiptaáætl- anirnar úr námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækja (sem er skyldunámskeið fyrir laganema, verkfræðinema og viðskipta- fræðinema) á vorönn og sumarönn ár hvert og úr námskeiðinu Rekst- ur, stjórnun og nýsköpun (sem er skyldunámskeið fyrir tækni- fræðinema á haustönn ár hvert) verða sjálfkrafa þátttakendur í verðlaunasamkeppninni, og munu kennarar á námskeiðunum velja þessar fimm til sjö áætlanir og upplýsa nemendur. Einnig verður öllum nemendum HR frjálst að senda inn viðskiptaáætlanir. Sam- keppnin verður kynnt öllum nem- endum í janúar á hverju ári (í apr- íl 2007) og er skilafrestur 1. júní. Með stofnun sjóðsins vill HR halda í heiðri frumkvöðulsstarf Guðfinnu S. Bjarnadóttur innan HR og styðja við frumkvöðulsstarf nemenda. Í fréttatilkynningu segir að Guðfinna hafi komið með nýja sýn inn í íslenskt háskólaumhverfi þegar hún tók við starfi rektors árið 1998. „Það er trú stjórnenda Háskólans í Reykjavík að mann- auðurinn sé mesta auðlind lands- ins, þannig hefur hugsunin verið frá fyrstu tíð. Til stuðnings frum- kvæði og sköpunarkraftinum sem býr í hverjum einstaklingi þá hef- ur nýsköpun verið eitt af að- alsmerkjum skólans.“ Frumkvöðlasjóður stofnaður í HR Morgunblaðið/G.Rúnar Undirskrift Undir samninginn skrifuðu Hildur Árnadóttir, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Bakkavarar Group hf, Halla Tómasdóttir, fram- kvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, og dr. Svafa Grönfeldt, rektor Há- skólans í Reykjavík. Fremst á myndinni er dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir. Stofnaður í nafni Guðfinnu S. Bjarnadóttur „ÞAÐ hefur orðið mjög mikil hug- arfarsbreyting varðandi reykingarn- ar,“ segir Þóroddur Bjarnason, pró- fessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, HA, um þá niðurstöðu nýrrar ESPAD-rannsóknar að 11,1% nemenda í 10. bekk reyki mið- að við 20,8% árið 1995. Evrópska vímuefnarannsóknin er alþjóðleg og nær til 40 landa. Hún er gerð á fjögurra ára fresti. Að henni standa Evrópuráðið og forvarnaráð Evrópusambandsins, ESB. Þórodd- ur er í fimm manna stjórn verkefn- isins. Á Íslandi er um að ræða sam- vinnuverkefni HA og Lýðheilsu- stöðvar í Reykjavík. „Það má áætla að allt að tvöfalt fleiri hafi reykt tíu árum á undan,“ segir Þóroddur og vísar til þess að líklega hafi 30 til 40% ungmenna í þessum aldursflokki reykt árið 1985. Spurður um ástæður segir hann viðhorf til reykinga hafa breyst, þær hafi minnkað hraðar hjá unglingun- um og stefni í það að vera undan- tekningartilvik, eða svipað hlutfall og þeirra sem hafi prófað hass, sem mælist nú 9,4%. Reykingar tengist meira og meira jaðarhópum, það sé alltaf ákveðinn hópur sem prófi allt. Dregur einnig úr drykkjunni Ef marka má rannsóknina, sem byggð er á spurningalista sem lagð- ur hefur verið fram frá árinu 1995, hefur einnig dregið verulega úr áfengisneyslu þessa aldurshóps, 42% segjast nú hafa orðið drukkin um ævina samanborið við 64,2% árið 1995. Ölvun síðustu 30 daga minnkar enn meir, úr 55,8% 1995 í 21,3%. Þóroddur segir, að færri og færri drekki eitthvað en ungmenni, sem það geri, geri meira af því en áður. „Það var meirihluti unglinga sem drakk. Nú er þetta minnihluti. Ég satt að segja bjóst við að sjá hærri tölur. Áfengi er orðið miklu meiri hluti af daglegu lífi,“ segir Þóroddur, sem bendir á að 27,1% hafi þó tekið áfengi heima án vitneskju foreldra. Reykingar ungra minnka Evrópska vímuefnarannsóknin sýnir jákvæða þróun hér (!  !    )     *    $ %+  *,,-& * , .  / - 0   *  1 2   # * , .  / - 0   *  1 ! "   "   %& '( )  * +  )) )) *,,,        )) *,,-  2  !!%    )  3 !!%   % 4 % % 5 )  2 %   # )  MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Siv Frið- leifsdóttur heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra: „Í tilefni af skrifum Staksteina í Morgunblaðinu í gær, 2. maí, þar sem ég er hvött til þess að kynna mér hvernig öldruðu fólki verður við þegar það þarf að „… reiða fram nokkur þúsund krónur í hvert sinn og jafnvel hátt á annan tug þús- unda fyrir viðtal við lækni“, er rétt að benda á eftirfarandi. Sjúkratryggðir elli- og örorkulíf- eyrisþegar eiga rétt á afsláttarkorti frá Tryggingastofnun ríkisins þegar þeir hafa greitt samtals 4.500 krónur á árinu fyrir læknis- og heilsugæslu- þjónustu. Fram til þessa hefur fólk þurft að framvísa reikningum til að fá afsláttarkort TR, en nú er hins vegar unnið að því að koma á rafrænum samskiptum með þessa reikninga frá stofnunum til TR þannig að TR hafi upplýsingar um afsláttarmörk ein- staklinga fyrr en ella. Stefnt er að því að framvegis sendi TR afsláttarkort til sjúkratryggðra þegar rafrænar upplýsingar liggja fyrir um að við- komandi sjúklingur sé kominn yfir af- sláttarmörk stofnunarinnar og munu menn þá ekki þurfa að koma sjálfir með kvittanir fyrir útlögðum kostn- aði. Á næstu vikum verður tekið í notkun nýtt afgreiðslukerfi hjá Land- spítala – háskólasjúkrahúsi sem gerir kleift að fletta upp stöðu sjúklinga hjá TR. Þá munu þeir sem komnir eru yf- ir afsláttarmörk í kerfi TR greiða samkvæmt því, óháð því hvort við- komandi er með afsláttarkort undir höndum eða ekki. Þegar búið verður að koma þessum samskiptum á gagn- vart LSH er gert ráð fyrir að Heilsu- gæsla höfuðborgarsvæðisins tengist kerfi TR með sama hætti og síðan aðrar heilbrigðisstofnanir. Sjálfstætt starfandi sérfræðingum eru nú þegar tengdir kerfi TR.“ Athugasemd vegna Staksteina LÁTINN er á 88. ald- ursári á Heilbrigðis- stofnuninni á Hvamm- stanga Valdimar Lárusson, fyrrverandi aðstoðarlögregluvarð- stjóri í Kópavogi og leikari. Valdimar fæddist 28. janúar 1920 á Efri- Vaðli í Barðastrandar- hreppi og var yngstur 14 systkina. Foreldrar hans voru Lárus Mikael Stefánsson bóndi og Jónína Val- gerður Engilberts- dóttir. Valdimar lauk námi frá Lög- regluskólanum árið 1969 og menntaði sig einnig í leiklist í Þjóðleikhússkólanum og var hann jafnframt í fyrsta útskriftarhópi Leiklistarskóla Ævars R. Kvarans. Lék hann í Iðnó og Þjóðleikhúsinu ásamt því að leika og leikstýra verkum hjá Ríkisútvarpinu og með frjálsum leikhópum. Lögreglustörf Valdimars spönn- uðu á þriðja áratug en hann starfaði hjá lögreglunni í Kópa- vogi frá 1967 til 1990. Valdimar tók lengi virkan þátt í Frímúr- arareglunni og einnig í starfi Alþýðubanda- lagsins og Vinstri grænna í Kópavogi. Þá var hann stuðn- ingsforeldri hjá hug- sjónafélaginu Spes sem byggir og rekur heimili fyrir munað- arlaus börn í þróun- arlöndunum. Eftir Valdimar liggja þrjár ljóðabækur, Rjálað við rím og stuðla 1990, Laust og bundið, 1993 og Tært drýpur vatnið 1997. Eftirlifandi eiginkona Valdimars er Kristrún Jónsdóttir, fædd 29. ágúst 1922 og býr hún hjá einka- dóttur þeirra hjóna, Sigrúnu Björk á Dæli í Vestur-Húnavatnssýslu. Barnabörn Valdimars heitins eru þrjú. Andlát Valdimar Lárusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.