Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 13
edda.is
Guðmundur Páll Ólafsson er fyrir löngu landskunnur
fyrir sínar einstæðu bækur um náttúru Íslands sem hafa
opnað augu landsmanna fyrir þeim verðmætum sem
okkur er trúað fyrir.
„Vatn, mórautt straumvatn, tjörn, tær lækur, grjót,
sandur og eyðimörk, iðandi staraflákar, heiðagæs,
illviðri, blíða, fannfergi, beljandi stormur, blóm-
grónir balar, klettar, jökulhvel, volgrur, kviksyndi
– andstæður, mótsagnir, þversagnir – Þjórsárver!“
Þessi bók fjallar um stríð sem staðið hefur í hálfa öld um
náttúruperluna Þjórsárver og þar hafa tekist á andstæðar
hugmyndir um náttúru Íslands og hlutverk mannsins í henni.
Því er lýst í greinargóðu máli og ægifögrum myndum hvað í
húfi er, og rakin sagan um stöðuga ásælni orkuyfirvalda.
Stríðið um varðveislu þeirra
þjóðargersema stendur enn.
Leiðbeinandi útsöluverð 4.480 kr.