Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 60
60 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
NEXT kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
BLADES OF GLORY kl. 4 - 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára
THE MESSENGERS kl. 8 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ÓTEXTUÐ m/ensku tali kl. 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
SPIDER MAN 3 kl. 3 - 6 - 9 - 12 B.i.10.ára
SPIDER MAN 3 VIP kl. 3 - 6 - 9 - 12
BLADES OF GLORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
SHOOTER kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12.ára
THE GOOD SHEPERD kl. 10:10 B.i.12.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
BECAUSE I SAID SO
BESTA MAMMA Í HEIMI
GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI
Diane Keaton Mandy Moore
ee
H.J
eee
V.J.V. TOPP5.IS
eee
Ó.H.T. RÁS2
eee
S.V. MBL
eee
V.J.V. TOPP5.IS
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
HEIMSFRUMSÝNING
WWW.SAMBIO.IS
FRUMSÝNING» EINNIG FRUMSÝNDAR»
VERTÍÐ kvikmyndahúsanna sem kennd er við
sumarmyndir, hefst með trukki í dag þegar
þriðja myndin um Kóngulóarmanninn verður
frumsýnd. Fyrri myndirnar voru eins og allir
þekkja afar vinsælar og höluðu hvorki meira né
minna en 1,6 milljarða bandaríkjadala inn fyrir
Columbia kvikmyndaverið sem framleiðir mynd-
irnar.
Það er sem fyrr leikarinn Tobey Maguire sem
sveiflar sér milli bygginga íklæddur kóngulóar-
búningnum þrönga. Mikið mæðir á Peter Parker
sem endranær enda erfitt að vera í fullu starfi
sem ljósmyndari og eiga kærustu auk þess að
þurfa reglulega að bjarga heiminum frá óþokk-
um íklæddur búningnum góða.
Eins og þetta séu ekki næg verkefni fyrir Par-
ker þarf hann nú einnig að berjast við hin myrku
öfl sem virðast vera að læsa klónum í hann en
ummerkin má meðal annars sjá í sífellt dökkn-
andi einkennisbúningnum.
Vondu kallarnir
Aðalóþverrinn að þessu sinni nefnist Sandman
en hann býr yfir þeim magnaða eiginleika að
geta breytt sér í hvert það form af sandi sem
honum hugnast. Það er Thomas Haden Church,
sem sötraði rauðvín svo eftirminnilega í Side-
ways, sem fer með hlutverk Sandmannsins.
Þá þarf Kóngulóarmaðurinn einnig að kljást
við samstarfsmann sinn Eddie Brock sem á sér
hliðarsjálf í ofurskúrknum Venom. Með hlutverk
hans fer Topher Grace sem lesendur kannast
trúlega við úr „That 70’s Show“. Venom býr að
nokkru leyti yfir sömu eiginleikum og Spiderm-
an og hvað Marvel-aðdáendur varðar hefur
Venom verið einn vinsælasta andhetja Spiderm-
an-myndasagnanna.
Önnur persóna sem kemur í fyrsta skipti við
sögu í kvikmyndunum er Gwen Stacy sem kom
fyrst fram í myndasögunum árið 1965 en hún
hrífur Peter Parker upp úr skónum og er leikin
af Bryce Dallas Howard.
Spiderman 3 var frumsýnd í Hong Kong þann
15. apríl síðastliðinn og hefur slegið hvert að-
sóknarmetið á fætur öðru í Asíu. Í Singapore,
Filippseyjum, Malasíu og Taílandi seldust fleiri
miðar á myndina en á nokkra aðra mynd, miðað
við fyrsta sólarhringinn í sölu.
Frumsýningin var haldin í Hong Kong öðrum
þræði til viðurkenningar á þessum sístækkandi
markaði kvikmyndaáhorfenda í Asíu.
Þar er sem fyrr Sam Raimi sem leikstýrir.
Svartur og svakalegur Kóngulóarmaðurinn berst við innri og ytri ára í þriðju myndinni um ofurhetjuna sem hefur slegið í gegn víða um heim.
Baráttan við myrku öflin
ERLENDIR DÓMAR
The Hollywood Reporter 80/100
Newsweek 80/100
Premier 63/100
Empire 60/100
Variety 50/100
(skv. Metacritic)
Annarra manna líf
Kvikmyndin sem Græna ljósið
frumsýnir í dag fjallar öðrum þræði
um hið háþróaða eftirlitskerfi sem
var til staðar í Austur-Þýskalandi
fyrir fall múrsins. Þessi þýska kvik-
mynd, sem kallast á frummálinu
Das Leben Der Anderen, hefur vak-
ið athygli alls staðar þar sem hún
hefur verið sýnd og ætti Ísland ekki
að verða þar undanskilið.
Spennudrama
Í upphafi níunda áratugarins eru
Georg Dreyman og eiginkona hans,
leikkonan Christa-Maria Sieland,
mikils metnir listamenn í Austur-
Berlín. Undir yfirborðinu kraumar
þó óánægja þeirra með ríkjandi
skipulag og kúgun kommúnista-
flokksins. Einn daginn fær menn-
ingarráðuneytið sérlegan áhuga á
Christu og sendir Stasi-leyniþjón-
ustumanninn Wiesler út af örkinni
til að kynnast hjónunum betur. Í
stað þess að koma upp um andstöðu
hjónanna við kommúnistaflokkinn
og draga þau fyrir rannsóknar-
nefnd flækist Wiesler inn í heillandi
heim þeirra hjóna og í hönd fer bar-
átta hans um eigin gildi og hollustu
við ríkið. Saga myndarinnar spann-
ar tæpan áratug, allt frá upphafi ní-
unda áratugarins og framyfir fall
múrsins.
Margverðlaunuð
Myndinni hefur hvarvetna verið vel
tekið og hlotið margvísleg verðlaun
á kvikmyndahátíðum. Má þar nefna
Óskarsverðlaun fyrir bestu erlendu
myndina auk annarra stórra verð-
launa í Evrópu. Leikstjórn: Florian
Henckel von Donnersmarck.