Morgunblaðið - 04.05.2007, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 61
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
BREACH kl. 8 - 10 LEYFÐ
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SPIDER MAN 3 kl. 5 - 8 - 11 B.i. 10 ára
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
Börn sjá meira en
fullorðnir gera sér
grein fyrir!
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
eeee
V.J.V.
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
SPRENG-
HLÆGILEG
MYND FRÁ
BEN STILLER
Fór beint á
toppin í USA
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA
TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFN VEL SAMAN!
ee
J.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
eee
S.V. - MBL
MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
eee
MMJ, Kvikmyndir.com
M A R K W A H L B E R G eeee
SV, MBL
eee
LIB, Topp5.is eeee
S.V.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
WWW.SAMBIO.IS
Hljómsveitin Hjaltalín treður upp í dag kl. 17 í plötuversluninni 12 Tón-
um á Skólavörðustíg. Hjaltalín er tveggja ára gömul sveit sem hefur sótt í
sig veðrið að undanförnu og lauk meðal annars hinni víðfrægu tónleika-
ferð einyrkjanna Lay Low, Péturs Ben og Ólafar Arnalds, Plokkað hring-
inn með Rás 2. Tónlistin sem sveitin spilar er bræðingur margra tónlist-
arstefna, svo sem indí-rokks, 60’s tónlistar og klassíkur.
Hjaltalín í 12 Tónum
Framleiðendur söngleiksins um
Shrek leita nú um allan heim að
leikurum í aðalhlutverkin. Sam
Mendes leikstýrir og verður sýn-
ingin sett upp á Broadway í New
York að ári. Framleiðendurnir vilja
fá fólk til að senda inn myndbönd
með söngprufu í ætt við þau sem er
að finna á YouTube. Samkvæmt
BBC leita framleiðendurnir nú að
karlmönnum á þrítugsaldri til að
fara með hlutverk Shrek og asnans.
Ekkert segir að Íslendingar geti
ekki sent inn upptökur.
Íslenskur
Shrek?
Fatahönnuðurinn Thelma Björk
Jónsdóttir er að gera það gott í hin-
um stóra tískuheimi ef eitthvað er
að marka þá athygli sem hún vekur
með frumlegum hárspöngum sín-
um. Breska Vogue fjallar um
Thelmu og höfuðdjásnin sem hún
hannar, í síðasta mánaðarhefti og
ef fer sem horfir má allt eins gera
ráð fyrir því að tískuafurð Thelmu
verði það sem koma skal á flug-
hálum framabrautum hátískunnar.
Thelma Björk
vekur athygli Lofsamlegir dómar um nýjustuplötu Bjarkar halda áfram að birt-
ast í heimspressunni og svo virðist
sem fátt geti komið í veg fyrir að
Volta fari sigurför um heiminn.
Tónlistarblaðið Uncut spanderar
þremur síðum undir Björk í nýjasta
tölublaði og gefur plötunni fjórar
stjörnur af fimm. Sömu sögu er að
segja um stjörnugjöf Mojo og Atti-
tude bætir um betur og gefur Volta
fullt hús stiga í plötudómi. Björk er
nú stödd á tónleikaferð um Banda-
ríkin en um síðustu helgi lék hún á
tónlistarhátíðinni Coachella.
Sigurförin
heldur áfram
Íslenski dansflokkurinn er enn
staddur í Kína þar sem hann er á
sýningaferð. Samkvæmt ferðabloggi
flokksins (id.blog.is) hafa stjórn-
endur dansflokksins átt viðræður
við nokkra kaupendur danssýninga
og ber þar helst að nefna listahátíð-
ina í Hong Kong sem er talin sú
stærsta í Suður-Asíu. Þá nefnir
færsluhöfundur einnig listahátíðir í
Macau og Sidance í Seúl sem mögu-
lega kaupendur að sýningum dans-
flokksins á næstu misserum.
ÍD eftirsóttur
„ÞAÐ ER mikið af drasli í gangi í ár,
lögin eru illa samin og sumar þjóð-
irnar hafa ekki lagt neitt í þetta að
ráði,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir
um lögin sem taka þátt í Evróvisjón-
söngvakeppninni í ár.
„Mér finnst lögin í ár verri en lög-
in í fyrra ef maður lítur yfir heildina
og þannig gefur það okkar manni
meiri séns því lagið hans Eiríks er
ágætt og hann á þónokkra mögu-
leika á að komast upp úr forkeppn-
inni.“
Sigríður hefur aðeins kynnt sér
lögin og þá sérstaklega þau skandin-
avísku. „Það eru nokkur lög sem eru
sterk, t.d. eiga Danir mjög sterkt lag
í ár, lag sem á eftir að verða mikið
diskóteka- og útvarpslag í sumar.
Annars þykir mér voða erfitt að
segja til um þetta því Austur-
Evrópuþjóðirnar eru með annan
tónlistarsmekk en restin af Evr-
ópu,“ segir Sigríður sem tók sér-
staklega vel eftir þessum mismun-
andi tónlistarsmekk þjóðanna í fyrra
þegar hún fór út með Silvíu Nótt.
Sigríður vonar að Eiríkur falli í
kramið hjá allri Evrópu. „Eiríkur á
eftir að gera þetta eins vel og hægt
er að gera þetta, lagið er líka þræl-
melódískt og ég held að það grípi
töluvert við fyrstu hlustun.“
Verður með Evróvisjónball
Spurð út í hina frægu Evróvisjón-
formúlu segir Sigríður að hún sé
ekki til lengur. „Lordi vann í fyrra
og það sýnir það og sannar að það er
engin formúla til. Íslendingar eiga
að halda áfram að vera með og
kannski komum við eitt árið með lag
sem virkar á alla Evrópu.“
Sigríður ætlar að horfa á for-
keppnina á fimmtudagskvöldið og
skella sér eftir hana á Laddasýn-
inguna á Broadway. „Á laugardeg-
inum sjálfum horfi ég á keppnina og
kosningarnar en síðan ætla ég og
Grétar Örvarsson ásamt hljómsveit
að vera með rosa Evróvisjónball á
skemmtistaðnum Players í Kópa-
vogi. Það koma til okkar góðir gestir
á sviðið, m.a. Selma Björnsdóttir,
Friðrik Ómar, Thelma og Einar
Ágúst, svo það verður hörkustuð,“
segir Sigríður sem vonar að Eiríkur
komist upp úr forkeppninni svo
stemningin á laugardaginn verði
góð.
6 dagar í Söngvakeppni
Lélegri lög en í fyrra
Sæt saman Sigga Beinteins með Lordi á Evróvisjón-söngvakeppninni fyrra.