Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 22
stjórnmál
22 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
P
étur!“ kallar Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra
kumpánlega út af skrifstof-
unni þegar blaðamaður býst
til að setjast í sófa á gang-
inum. Hann kemur í dyrnar,
líkur sjálfum sér, hýrt yfir
honum og tilhlökkun í fasi
og látbragði. Þannig þekkir þjóðin hann úr
ræðustól á Alþingi, – og af blogginu. Andstæð-
ingar hans úr pólitík kalla það „gassagang“, en
sjálfur lýsir hann sér á blogginu sem gömlum
fressketti sem búinn er að slást við alla kettina í
hverfinu.
Ýmislegt hefur á daga Össurar drifið frá því
hann var síðast yfir ráðuneyti. Þá stýrði hann
umhverfismálum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks, sem starfaði frá 1991 til 1995,
en kom reyndar inn á miðju kjörtímabili. Og það
er ólík upplifun að sitja ríkisstjórnarfundi í
þetta skipti.
Sá strák á aftasta bekk
„Síðast þegar ég varð ráðherra gerðist það
óvænt og með skömmum fyrirvara. Ég var eig-
inlega ekki búinn að jafna mig á tíðindunum
þegar ég settist í ríkisstjórn. Og mér leið eins og
hræddum strák á skólabekk. Þannig vildi til að
það urðu snemma átök í þeirri ríkisstjórn,
bændur flugust á, og mér leið eins og það væru
átök stórvelda og jarðskjálfti. Þær deilur sner-
ust meðal annars um veiðar Íslendinga í Bar-
entshafi, sem voru mjög umdeildar, og sömu-
leiðis um ógleymanlega gengisfellingu, sem
gerð var skömmu eftir að ég settist í ríkisstjórn.
Ég hélt að ákvarðanatakan í slíkum tilvikum
væri afar vísindaleg, en svo var haldinn fundur í
Ráðherrabústaðnum, þar sem hvert stórmennið
af öðru hélt fyrirlestur, og svo rifumst við þess á
milli. Mig minnir að Þorsteinn Pálsson [sjáv-
arútvegsráðherra] hafi viljað 12% gengisfell-
ingu fyrir hönd sjávarútvegsins en Jón Baldvin
[Hannibalsson utanríkisráðherra] vildi helst
enga eða ekki meira en 2%. Síðan var farið bil
beggja og ákveðið að gera 7% gengisfellingu.
Davíð Oddsson sagði seinna frá því að hann
hefði tekið af skarið vegna þess að honum hefði
orðið litið á klukkuna og séð að hún væri að
verða sjö. En þetta þótti vel heppnuð gengisfell-
ing og var síðasta handstýrða gengisfellingin ef
ég man rétt.
En það er mikill munur að setjast í ríkisstjórn
og vera vanur pólitísku volki, orðinn sjóaður í
þeim efnum, þannig að manni bregður hvorki
við sár né bana. Ég gjörþekki líka málaflokkinn,
enda hef ég komið að honum á ýmsan hátt, og
lífsreynslan er svo fjandi verðmæt þegar svona
ber að höndum. Þetta er allt öðruvísi nú en þá,
þó að ég hefði lært til starfans. Það var sagt í
flimtingum að Jón Baldvin hefði litið yfir hóp-
inn, séð strák á aftasta bekk og munað að hann
hafði líffræðimenntun. Nú er þetta allt öðruvísi
og betra.“
– Af hverju betra?
„Á þeim tíma var komið mitt kjörtímabil og
erfiðir tímar í Alþýðuflokknum. Það voru að rísa
úfar innan flokksins og því lyktaði með klofningi
hans. Og þó að mér líkaði prýðisvel í faðmi
íhaldsins var haft á orði að ég hefði verið eins og
kálfur að vori þegar ég komst út. Það hafði
skapast ósamstaða og klofningur meðal forystu-
manna þeirrar ríkisstjórnar, sem ég held raun-
ar að hafi verið ástæðan fyrir slitunum, fremur
en naumur þingmeirihluti.“
– Þú talar um ágreining innan flokksins þá,
en það er líka talað um ágreining innan Sam-
fylkingarinnar. Ef til vill markar upphafið að
þeim ágreiningi það sem Svandís Svavarsdóttir
sagði í viðtali í Morgunblaðinu fyrir nokkru, þ.e.
að þú hefðir flæmt Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur úr ráðhúsinu á sínum tíma með „fá-
heyrðri fléttu“?
„Öll meginatriðin í viðtalinu við Svandísi voru
röng um hvernig þetta gerðist á sínum tíma
Á blogginu geturðu
Morgunblaðið/Frikki
Tilfinningavera „Eins og þeir vita sem hafa unnið með mér í pólitík, þá er ég ákaflega snöggur að rjúka upp, en öldur mínar lægir jafnskjótt.“
Það mun mæða mikið á nýjum
iðnaðarráðherra, Össuri Skarp-
héðinssyni, í ferðalagi kjör-
tímabilsins, enda stóriðjumálin í
farangrinum. Pétur Blöndal tal-
aði við hann um álver og virkj-
anir, en einnig sprotafyrirtæki,
innanflokksátök og hinn ljóð-
ræna streng.