Morgunblaðið - 24.06.2007, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 51
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími 566 8800 • vidskiptahusid@vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is
Spánn – Mallorka – Mexíkó
Kynning að Skúlagötu 17, sunnudaginn 24. júní, frá kl. 14:00 – 16:00
Mexíkó
Cancun
Mallorka
Manacor
Spánn
Costa Blanca
Jón Sigfús Sigurjónsson Hdl. & Löggiltur FFS
Fullbúnar gæðaeignir frá traustum og þekktum
byggingarfélagi á Spáni, TM Real Estate Group.
Skoðunarferðir sniðnar að þörfum hvers og eins.
Fáið nánari upplýsingar hjá sölumönnum
Viðskiptahússins í dag og á www.vidskiptahusid.is
Vel staðsett 402 fm einbýlishús á 1.500 fm sjávarlóð. Húsið er á tveimur
hæðum og skiptist þannig. Á efri hæð er forstofa, hol, gestasnyrting, þrjú
herbergi, þrjár stofur, eldhús, búr, snyrting og baðherbergi ásamt tvöföld-
um bílskúr. Á jarðhæð er hol, gestasnyrting, fjögur til fimm svefnherbergi,
bátaskýli og stór útgrafin rými, sem nýtast sem frístundaherbergi, þvotta-
hús, baðherbergi og geymslur. Óskað er eftir tilboðum. 6835
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Haukanes - 1500 fm sjávarlóð
Falleg og vel skipulögð 3-4ra her-
bergja 105 fm íbúð í nýlegu lyftuhúsi
ásamt stæði í bílageymslu í húsi fyrir
fyrir 50 ára og eldri. Íbúðin skiptist í
anddyri, tvö svefnherbergi, þvotta-
hús, baðherbergi, eldhús og stóra
stofu. Stórar og skjólgóðar suður-
svalir eru út af stofu. Fallegt útsýni er
úr íbúðinni. Verð 29,5 millj. 6845
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Sóleyjarimi - útsýni - vel staðsett
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Björt og falleg 4ra herb. 99 fm endaíbúð á 4. hæð í góðu fjöl-
býlishúsi. Íbúðin skiptist í saml. stofur, parket, suðaustusvalir
útaf. Eldhús með nýlegri innréttingu úr birki, flísar á gólffi, borð-
krókur Tvö svefnherbergi, parket, innb. fataskápar. Baðher-
bergi, flíslagt að hluta, baðkar, gluggi. Í kjallara fylgir herbergi.
(geymsla). Fallegt útsýni, stutt í grunnskóla og Háskólann.
Göngufæri við miðborgina.
Íbúðin er til sýnis í dag, sunnudag milli kl. 14 og 15
DUNHAGI 13 - OPIÐ HÚS
menntun í skógrækt.
Í þrjú hundruð ár
var skilningur á gildi
fagmenntunar í skóg-
rækt á Íslandi. En í
janúar 2004 auglýsti
stjórn Héraðsskóga
starf framkvæmda-
stjóra. Þeir réðu
rekstrarfræðing til
starfans en höfnuðu
umsóknum tveggja
skógfræðinga. Rökin
voru að fagþekking og
reynsla í skóg-
arfræðum hefði verið
vegin á móti fagþekkingu og
reynslu í rekstri og stjórnun. Enn
auglýsa Héraðs- og Austurlands-
skógar starf framkvæmdastjóra
(http://www.heradsskogar.is).
Hæfniskröfur: 1) háskólamenntun
er æskileg, 2) hæfni til að hafa um-
sjón með rekstri og mannauðs-
stjórnun, 3) reynsla og/eða þekking
á fjármálastjórn og samningagerð,
4) góðir samskiptahæfileikar og 5)
gott vald á íslensku, ensku og einu
Norðurlandamáli. Héraðs- og Aust-
urlandsskógar eru ríkisstofnun í
skógrækt sem veltir 160 milljónum
króna úr ríkissjóði. Samkvæmt
auglýsingu virðist skógfræði-
menntun ekki einu sinni æskileg
fyrir framkvæmdastjórann!
Skógfræði er 3-5 ára háskólanám
og tilgangur skógfræðináms er að
mennta og þjálfa stjórnendur og
skipuleggjendur skógrækt-
arframkvæmda. Skógfræðin snýst
um hönnun, skipulagningu, áætl-
anagerð og stjórnun skógrækt-
arframkvæmda og
rekstur skógrækt-
arfyrirtækja. Skóg-
fræðin er systir verk-
fræðinnar. Myndi
verkfræðingum vera
hafnað við skipulagn-
ingu, hönnun og
stjórnun virkj-
anaframkvæmda eða
vegagerð?
Skógfræðin hefur
eitt mjög mikilvægt
framlag til annarra
greina samfélagsins
en það er löng framtíðarsýn og
fagleg nálgun við sjálfbæra nýt-
ingu náttúruauðlinda. Í nágranna-
löndum okkar austan hafs og vest-
an eru skógfræðingar eftirsóttir til
stjórnunarstarfa á öðrum sviðum,
m.a. í viðskiptum og fjármála-
umsýslu. En hér á landi er óljóst
hvort sóst er eftir skógfræðingum
til að stjórna skógræktarfram-
kvæmdum.
Höfundur er skógfræðingur og sér-
fræðingur á Rannsóknastöð skóg-
ræktar, Mógilsá.
Þorbergur Hjalti
Jónsson
Fréttir á SMS