Morgunblaðið - 24.06.2007, Page 72
SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 175. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 20 °C | Kaldast 12 °C
Hæg breytileg átt
eða hafgola og bjart
veður. Þykknar upp V-
lands síðdegis og dálít-
il súld á annesjum. » 8
ÞETTA HELST»
Olía í íslenskri lögsögu
Össur Skarphéðinsson segir tíma-
bært að kanna hvort alþjóðlegur
áhugi sé á því hjá olíufyrirtækjum að
fjárfesta í virkri leit að olíu með
rannsóknarborunum í íslenskri lög-
sögu. Niðurstöður jarðeðlis-
fræðilegra rannsókna á vegum ís-
lenskra og norskra stjórnvalda
benda til þess að hugsanlegt sé að
Íslendingar muni á næstu árum geta
tekið þátt í olíuvinnslu innan eigin
efnahagslögsögu. »Forsíða
Gerir aðra tilraun
Jöklamærin, orrustuflugvél frá
seinna stríði, lagði á föstudaginn upp
í flugferð til Bretlands. Mun vélin
eiga viðkomu á Íslandi en flugleiðin
er sú sama og vélin reyndi að fljúga
árið 1942 en þá þurfti hún að nauð-
lenda á Grænlandsjökli. Bandarískir
ævintýramenn grófu vélina upp með
hjálp nokkurra Íslendinga en hún lá
á 90 metra dýpi inni í jöklinum. »2
Fleiri bílnúmer
Bílnúmerakerfinu verður breytt
um miðja þessa viku en núverandi
kerfi býður ekki lengur upp á nægi-
lega marga möguleika fyrir þann
fjölda bíla sem er á götunum. Verður
nú þriðja bókstafnum bætt við inn í
númerið sem enn verður þó fimm
stafa. »4
Fræðslustofa um
endurgerð húsa
Minjasafn Reykjavíkur opnar í
dag fræðslustofu um viðgerð og end-
urgerð eldri húsa. Er stofan hugsuð
sem vinnuaðstaða fyrir fólk sem vill
afla sér þekkingar um viðgerðir á
gömlum húsum. Verður þar bóka-
safn og stefnt er að því að þar verði
jafnframt haldin námskeið. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ísland og Brussel
Forystugreinar: Reykjavíkurbréf |
Launamunur karla og kvenna
Ljósvaki: Alvörubíó í Ríkisútvarpið!
UMRÆÐAN»
Nýir stjórnendur hjá Byr
Atvinnu- og raðauglýsingar
Gamlir heilar
Hvaða störf henta skógfræðingum?
Breytum nafni á sjúkdómi
… refsimeðferð skattalagabrota
ATVINNA»
TÓNLIST»
Conor Oberst er hæfi-
leikaríkt undrabarn. »68
Vefsíða vikunnar
hýsir topplista yfir
mestu hálfvitana á
bandaríska þinginu
og besta Batman
sögunnar. »69
VEFSÍÐA»
Hákarla-
spreyið
MYNDLIST»
Þrír listamenn opna sýn-
ingu í Kling og Bang. »65
BÓKMENNTIR»
Eru sögulok Harry Pott-
ers ljós? »67
Hljómsveitin Canni-
bal Corpse heldur
tónleika hér á landi
um næstu helgi en
aldur sveitarinnar er
um 20 ár. »64
Líf í
dauðanum
TÓNLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Þungt haldin eftir umferðarslys
2. Fjöldi fastanúmera uppurinn
3. Hesturinn vanur að vera…
4. Brunnu inni er mæðurnar…
NÚ ER lífvænlegt sumar við Mývatn; mýið það
mesta í sjö ár. Árni Einarsson hjá Náttúrurann-
sóknastöðinni við Mývatn segir að mýsveiflurnar
milli lágmarks og hámarks séu þetta 5-9 ár.
Takturinn í þeim gangi er í vatninu sjálfu, þar
sem lirfurnar éta æti fyrir sig og næstu kynslóð
og éta þá afkvæmi sín út á gaddinn. Þá minnkar
um mýfluguna ár frá ári og þar af leiðandi lirf-
una, sem hefur þegar botninum er náð miklu
meira en nóg að éta og mýflugunum fjölgar á ný.
Þessa mikla mýs nú sér strax stað í fuglalífinu,
beint samhengi er milli mýflugunnar og þess
hvað upp kemst af ungum. Hins vegar gætir góð-
æris í mýinu ekki í veiði strax, þar sem tíma tek-
ur fyrir seiði að komast í veiðanlega stærð. Árni
segir að nú vanti bleikju í vatnið og því eru uppi
þær sérkennilegu aðstæður að mikið er af æti en
enginn fiskur til þess að njóta þess. | 22
Mikið af æti en enginn fiskur
Morgunblaðið/Ómar
Mýstrókar við Mývatn
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
LÖGREGLUVARÐSTJÓRAR víðs
vegar um landið eru samdóma um að
helgin fari vel af stað, þrátt fyrir að
umferð hafi verið þung á föstudaginn
og margt fólk dvelji nú í sveitum
landsins. Straumurinn virðist hafa
verið mestur til Árnessýslu, en að
sögn lögreglu á Selfossi er mjög
margt fólk í umdæminu, bæði á
tjaldsvæðum, í sumarbústöðum og í
helstu þéttbýliskjörnum. Talsvert
var um útköll aðfaranótt laugardags
vegna ölvunar og óspekta. Þrír gistu
fangageymslur á Selfossi. Tveir voru
látnir sofa úr sér óminnishegrann í
kjölfar þess að þeir voru teknir grun-
aðir um að hafa ekið undir áhrifum.
Sá þriðji gaf sig fram við lögreglu
eftir að hafa gerst sekur um rúðu-
brot og önnur minniháttar skemmd-
arverk og óskaði eftir gistingu.
Þá var mikill mannfjöldi í umdæmi
lögreglunnar á Blönduósi. Smábæj-
arleikar fara nú fram í bænum og
segir lögregla að um 700 knatt-
spyrnuiðkendur í 4.-7. flokki karla og
kvenna séu þar saman komnir. Þá
hafa húsbílaeigendur og fleiri ferða-
menn fjölmennt á Hvammstanga þar
sem hátíðin Bjartar nætur fer fram.
Þrátt fyrir fólksflauminn hefur allt
gengið vonum framar í Húnavatns-
sýslum og hraðakstur er með
minnsta móti. Telur varðstjórinn á
Blönduósi að menn séu nú loksins
farnir að sjá að sér vegna mikillar
hækkunar á hraðaksturssektum.
Varðstjóri á Akureyri segir að
helgin hafi farið vel af stað og útköll-
in verið fá. Árleg flughelgi fer nú
fram í bænum við góðar undirtektir.
Landsmenn á ferð og flugi
Margt fólk dvelur í sveitum landsins um helgina enda mikið um að vera víðs veg-
ar um landið Helgin fer vel af stað að sögn lögreglu þrátt fyrir mikla umferð
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blíða Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur á Akureyri í gær, en þar
fer fram árleg flughelgi. Væta þurfti völlinn í morgunsárið vegna þurrks.