Morgunblaðið - 24.11.2007, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2007 55
TÓMAS R. Einarsson kontrabassaleikari
stýrði sjö manna hljómsveit á Domo á mið-
vikudag þegar væntanlegri útgáfu á
RommTommTechno-plötunni var fagnað.
Þar er um að ræða endurhljóðblönd-
unarskífu þar sem tíu skífuþeytarar frá
fimm löndum endurhljóðblanda latínlög
Tómasar R. Einarssonar. Einn þátttakend-
anna er breski tónlistarmaðurinn Mark
Brydon (Moloko) en hann endurhljóðbland-
aði lagið „Jörfagleði“ sem kom út á diskn-
um Romm Tomm Tomm á síðasta ári.
President Bongo úr GusGus stýrði verkefn-
inu. Á myndum má sjá sveit Tómasar R. á
tónleikunum: Kjartan Hákonarson á tromp-
et, Óskar Guðjónsson á tenórsaxófón, Sam-
úel J. Samúelsson á básúnu, Ómar Guð-
jónsson á gítar, Sigtryggur Baldursson á
slagverk og Matthías MD Hemstock á
trommur og slagverk.
RommTommTechno á Domo Snillingar Tómas R. Einarsson og Sig-tryggur Baldursson í góðri sveiflu.
Morgunblaðið/Ómar
Latínsveifla Sammi, Kjartan Hákonarson, Óskar Guðjónsson og Tómas R.
Castro Sammi í Jagúar í góðum kúbönskum fíl-
íng ásamt Ómari Guðjónssyni gítarhetju.