Morgunblaðið - 30.12.2007, Síða 28
|sunnudagur|30. 12. 2007| mbl.is
Napur fjölmiðlaheimur
U
ng kona ræður sig í
vinnu sem blaðamað-
ur á dagblaði í
Reykjavík. Hún er
ekki fyrr tekin til
starfa en hún fær í hendur það verk-
efni að fjalla um morðmál sem brátt
fer að vinda upp á sig. Um leið er
sjálfur vinnustaður hennar vett-
vangur daglegra átaka sem snerta
fjölda fólks í þjóðlífinu með ágengum
hætti.
Þetta er í stuttu máli meginþráð-
urinn í nýrri íslenskri spennuþátta-
röð fyrir sjónvarp sem frumsýnd
verður á Stöð 2 sunnudaginn 30. des-
ember. Þættirnir nefnast Pressa og
þeim vindur fram á ritstjórn íslensks
dagblaðs sem sver sig í ætt við DV.
Þættirnir eru unnir af Óskari Jón-
assyni og Sigurjóni Kjartanssyni (en
síðan voru ýmsir spennusagnahöf-
undar fengnir til að skrifa hver sinn
þátt). Þættir þessir eru kannski til
marks um nýja tíma í gerð leikins ís-
lensks sjónvarpsefnis. Hugmyndin
að þeim spratt beint upp úr íslensk-
um veruleika, þeir voru þróaðir og
unnir hratt.
Þessir þættir verða til nánast
beint í kjölfar mikillar ólgu í þjóð-
félaginu út af skrifum og stefnu DV
og svonefnds Ísafjarðarmáls. Eru
þau mál beinlínis kveikja að þátt-
unum?
„Já, algerlega,“ segir Óskar Jón-
asson leikstjóri. „Það var beint í kjöl-
far þeirra sem við Sigurjón fengum
hugmyndina að þáttunum. Það
ástand sem skapaðist í kringum DV
er kannski meginkveikjan, hvernig
málið þjappaði ritstjórninni saman
svo hún sneri bökum saman og barð-
ist. Samúð samfélagsins var ekki
með þeim – og það skapaði strax
mjög spennandi átök til að vinna
með.“
Óskar kveðst ekki vilja meina að
höfundar þáttanna taki sérstaka af-
stöðu með eða á móti ritstjórnar-
stefnu viðkomandi blaðs. „Við lítum
bara á þetta sem mjög spennandi
vettvang þar sem ekki er bara verið
að grúska í einu tilteknu glæpamáli
heldur mörgum málum eins og gerist
og gengur á ritstjórn. Þar kemur svo
margt upp og því er þetta kjörinn
vettvangur fyrir þætti þar sem bæði
koma upp einstök mál sem klárast í
einum þætti en svo er líka annað og
umfangsmeira mál sem spannar alla
sex þættina.
Þeir Óskar og Sigurjón fengu leyfi
til að kynna sér starfshætti á rit-
stjórn DV og Óskar segir það hafa
verið mjög lærdómsríkt.
„Aðalhvellurinn út af ritstjórnar-
stefnu DV var í janúar. Við vorum
komnir með þetta verk á koppinn um
mánaðamótin febrúar-mars. Þá var
nýbúið að skipta um ritstjóra og Páll
Baldvin Baldvinsson tekinn við. Við
fengum leyfi til að hangsa inni á rit-
stjórninni, spjalla við blaðamenn og
sitja á fundum. Þá átti DV ekki langt
líf eftir í þáverandi mynd. Samúðin
með blaðinu hafði hrunið eftir svo-
nefnt Ísafjarðarmál og maður fann
hvernig starfsmenn á ritstjórninni
voru svolítið í sjokki eftir að öll þjóð-
in hafði snúist gegn blaðinu. Það var
ekki bara þetta Ísafjarðarmál, það
var daglega einhver skandall á for-
síðu og læti í kringum blaðið. Ástþór
Magnússon kom einn daginn með
körfubíl og tók ljósmyndir inn um
glugga ritstjórnarinnar. Síðan komu
einhverjir Fáfnismenn og ruddu öllu
um koll. Svo bara þegar við vorum á
ritstjórninni kom öskureið kona út af
myndatöku af henni úr laugunum.
Þetta var á versta tíma dagsins, um 6
Blaðamaður Arndís Hrönn Egils-
dóttir: Stína blaðamaður.
Umbrotsmaður Orri Huginn
Ágústsson: Viggó umbrotsmaður.
Símadama María Heba Þorkels-
dóttir: Harpa símadama.
Fréttastjóri Þorsteinn Bachmann:
Gestur fréttastjóri.
Morgunblaðið/Frikki
Rökrænn leikur Óskar Jónasson segir Söru Dögg Ásgeirsdóttur hafa pælt óvenju mikið í rökfræðinni, hvar í ferlinu hún væri stödd.
Ritstjórnin Karakterarnir spruttu úr vettvangskönnun handritshöfunda.
Blaðamaður Stefán Hallur Stef-
ánsson: Stefán blaðamaður.
Stöð 2 frumsýnir nýja ís-
lenska spennuþáttaröð,
Pressu, sem vindur fram
á ritstjórn íslensks dag-
blaðs. Um leið vindur upp
á sig morðmál sem ný-
ráðin blaðakona fær til
umfjöllunar og á sama
tíma þarf hún að ráða
fram úr ýmsum málum í
einkalífinu. Hallgrímur
Helgi Helgason hitti
Söru Dögg Ásgeirs-
dóttur, sem leikur blaða-
konuna, og Óskar Jón-
asson, en hann og
Sigurjón Kjartansson eru
höfundar verksins. Þeir
fengu síðan nokkra
helstu glæpasagnahöf-
unda þjóðarinnar til að
skrifa hver sinn þáttinn.
»Dagurinn á svona ritstjórn byrjar frekar rólega
en svo smáeykst spennan og um kaffileytið er
ritstjórinn orðinn stressaður og farinn að öskra á
menn. Þetta skilar sér held ég allt.
daglegtlíf