Morgunblaðið - 03.10.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 15
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Selfoss | „Það kemur í ljós en ég
vona að fólk spari eitthvað annað
við sig en framlög til góðgerðar-
mála,“ segir Bjarni Rúnarsson, for-
maður Nemendafélags Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi. Hann
skráði sig í gær til þátttöku í lands-
söfnun Rauða kross Íslands, „Göng-
um til góðs“, að lokinni kynningu
Rauða kross fólks í Fjölbrautaskól-
anum.
Landssöfnunin „Göngum til góðs“
er á morgun, laugardag. Rauði
krossinn hefur verið að kynna söfn-
unina. Nemendur Fjölbrautaskól-
ans tóku vel á móti forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni, þegar
hann heimsótti skólann til að taka
þátt í kynningunni. Ólafar Ragnar
hvatti ungmennin eindregið til að
ganga til góðs á laugardag. Hann
vakti athygli þeirra á sjálfboðaliðs-
starfi og sagði að það gæti komið
þeim til góða síðar, þegar þau
sæktu um að komast í nám eða
störf, að geta getið um slík störf í
ferilsskránni.
Fjölbrautaskólinn bauð upp á
sjálfboðið starf sem hluta af námi
sínu síðasta vetur og fyrirhugað er
að gera það aftur í vetur.
Fyrstir á staðinn
Forsetinn gat einnig um þátt
sjálfboðaliðanna í Rauða kross
deildunum og björgunarsveitunum í
hjálparstarfinu í kjölfar jarðskjálft-
anna á Suðurlandi í sumar. Harpa
Dögg Hafsteinsdóttir, nemandi við
Fjölbrautaskólann, er í björgunar-
sveitinni á Selfossi. Hún kannaðist
við þetta, sagðist hafa verið kölluð
út tveimur mínútum eftir að jarð-
skjálftinn reið yfir. Aðstæður voru
hins vegar þannig að hún gat ekki
farið því það voru nóg verkefni að
kljást við heima.
Öllum landsmönnum gefst kostur
á að taka þátt í söfnuninni á morgun
með því að ganga með bauka í hús
og/eða gefa. Hægt er að skrá sig á
vef RKÍ, raudikrossinn.is. Harpa,
Bjarni Rúnarsson og Bryndís Odds-
dóttir, nemendur skólans, ætla öll
að taka þátt. „Þetta er frábært
framtak og brýnt að koma fólki til
hjálpar,“ segir Bjarni. Bryndís býr í
Skeiða- og Gnúpverjahreppi og hún
ætlar að fara með söfnunarbauk á
milli bæja þar og reyna að fá fleiri
til liðs við sig. „Við reynum að
virkja alla í sveitinni,“ segir hún.
Peningarnir sem koma í baukana
á morgun verða notaðir til að sam-
eina fjölskyldur á átakasvæðum.
Sérstaklega er talað um Kongó í því
sambandi. Þar er um 1,3 milljónir
manna á flótta vegna borgarastyrj-
aldar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Skráning Hægt er að skrá sig í „Göngum til góðs“ á vef Rauða krossins. Bjarni Rúnarsson skráði sig á lista sem
hangir uppi á töflu í skólanum. Bryndís Oddsdóttir og Harpa Dögg Hafsteinsdóttir ætla einnig að vera með.
„Vona að fólk spari annað“
Nemar í Fjölbraut
á Selfossi ætla að
„ganga til góðs“
Í HNOTSKURN
»Göngum til góðs er um-fangsmesta fjáröflun
Rauða kross Íslands. Hún fer
fram annað hvert ár. Allar 50
deildir Rauða krossins taka
þátt í söfnuninni í ár.
»Fjörutíu milljónir söfn-uðust í síðustu söfnun.
Peningarnir voru notaðir til
að kosta verkefni í Malaví, í
þágu barna sem eiga um sárt
að binda vegna alnæmis.
RÚMLEGA 172 þúsund farþegar
fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar
í september sl. en rúmlega 187 þús-
und farþegar í september á síðasta
ári. Fækkunin nemur rúmum
15.000 farþegum eða 3,87%.
Hlutfallslega meiri fækkun er
meðal áfram- og skiptifarþega en
þeirra sem eru á leið til og frá land-
inu.
Frá áramótun nemur fækkun á
heildarfarþegafjölda 3,87% en lítill
samdráttur er þó hjá komu- og
brottfararfarþegum, eða rúmt 1%.
Fækkaði um
15.000 farþega
Reykjanesbær | Karlakór og mörg af
helstu poppgoðum Suðurnesja
halda útgáfutónleika um helgina til
að kynna nýjan hljómdisk sem ber
nafnið „Þú lýgur því“.
Karlakórinn hefur rokkað sig
nokkuð upp því á diskinum er ein-
göngu að finna endurútsett lög eft-
ir þekkta Suðurnesjapoppara sem
jafnframt koma fram með kórnum.
Tónleikarnir verða í Andrews-
leikhúsi á Vallarheiði á laugardag
og sunnudag.
„Þú lýgur því“
Rokk Karlakór Keflavíkur rokkar á
tónleikunum í Andrews-leikhúsinu.
ÞAÐ var nóg að gera hjá strákunum á Bílaþjónustunni á Húsavík í gær eft-
ir að bæjarbúar vöknuðu upp við hálku á götum bæjarins í gærmorgun.
Á dekkjaverkstæðinu tóku starfsmenn hvern bílinn á fætur öðrum og
settu undir hann vetrardekkin. Þar á meðal var eigandinn og fram-
kvæmdastjórinn Ingvar Sveinbjörnsson, sem hér sést við dekkjavinnuna.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vetrardekkin tímabær