Morgunblaðið - 09.10.2008, Síða 1
F I M M T U D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
276. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
MENNING
MOTION BOYS: MEÐAL
GEGN ÞUNGLYNDI
FJÁRMÁL HEIMILANNA
Bíðum róleg og
sjáum aðeins til
EKVADOR – GALAPAGOS
Náttúra – nýting – menning
Kynning og fræðsla í Salnum í kvöld kl. 20
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!
Leikhúsin
í landinu >> 41
Íslensk stjórnvöld hyggjast semja við
Breta um ábyrgðir á innistæðum á
Icesave-reikningum Landsbankans.
Hagnaður af sölu eigna bankans er-
lendis á að duga að mestu til að
greiða sparifjáreigendum. » 14-15
Semja við Breta um
Icesave-ábyrgðir
Tilraun Seðlabanka Íslands til þess að
festa gengi krónunnar bar ekki þann
árangur sem vonast var eftir, en
stuðningur við gengi krónu var ekki
nægur. Ekki verður reynt að festa
gengið aftur að sinni. » Viðskipti
Ekki gekk vel að festa
gengi krónunnar
Hlutabréfavísitölur í heiminum héldu
víðast áfram að lækka í gær, enn einn
daginn. Kauphöllum í Rússlandi,
Úkraínu, Rúmeníu og Indónesíu var
lokað vegna mikillar lækkunar á
mörkuðum. » Viðskipti
Mikill órói á erlendum
fjármálamörkuðum
Michal Sikorski, ræðismaður Pól-
verja á Íslandi, segir að ekki sé ólík-
legt að allt að helmingur þeirra tíu
þúsund Pólverja sem búsettir eru
hérlendis hverfi af landi brott fljót-
lega. » 12
Búist við að helmingur
Pólverja yfirgefi Ísland
BJÖRGVIN G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra segir stjórnvöld leita leiða
til að koma að minnsta kosti hluta af
peningamarkaðssjóðum bankanna í
það form að fólk tapi ekki því sem það
hefði getað tapað.
„Það eru margar leiðir færar og
það er ekkert gefið fyrirfram um það
að fólk sé að tapa aleigu sinni í þess-
um peningamarkaðssjóðum,“ sagði
Björgvin og áréttaði að ekki væri litið
framhjá hagsmunum neinna við-
skiptavina.
Hann benti þó á að peningamark-
aðssjóðir lytu öðrum lögmálum en
sparifjárreikningar og innistæðu-
tryggingar næðu ekki til þeirra.
Heimilin í landinu eiga um 63 millj-
arða í peningamarkaðssjóðum bank-
anna, en alls eru um 232 milljarðar á
reikningunum. Sjóðirnir hafa verið
lokaðir alla þessa viku og ekki er ljóst
hvenær þeir verða opnaðir á ný.
Milljarðar króna í hættu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bíður Margir óttast um sparnaðinn.
Hluti peningamarkaðssjóða verður hugsanlega bættur
Heimilin eiga um 63 milljarða í peningamarkaðssjóðum
Gáfu sömu ráð | 16
Leita leiða | Viðskipti
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FORSVARSMENN Kaupþings
viðurkenndu sig sigraða seint í
gærkvöld og ákváðu að afhenda
bankann í hendur Fjármálaeftirlit-
inu. Fjármálaeftirlitið og skila-
nefnd á vegum þess taka yfir stjórn
Kaupþings í dag. Vonbrigði Kaup-
þingsmanna eru að vonum gífurleg.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins telja forsvarsmenn
Kaupþings að viðbrögð Breta við
Icesave-reikningunum og um-
ræðum í Bretlandi um að innistæð-
ur á þeim reikningum yrðu ekki
tryggðar af íslenskum stjórnvöld-
um, hafi ráðið úrslitum um að
breska fjármálaeftirlitið réðst gegn
þeim með mjög harkalegum hætti í
gærmorgun og var skömmu síðar
búið að taka yfir og loka
dótturfyrirtæki Kaupþings í Bret-
landi, Singer & Friedlander.
Krafðir um greiðslur
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var hringt í Kaupþing í
London fyrir kl. 7 í gærmorgun og
bankinn krafinn um 300 milljóna
punda greiðslu fyrir kl. 9 um morg-
uninn, og jafnframt var honum
greint frá því að innan tíu daga yrði
Kaupþing í Bretlandi að reiða fram
2,3 milljarða punda, sem er jafnhá
upphæð og öll innlán dótturfyrir-
tækisins. Á meðan Kaupþing hafi
verið að reyna að uppfylla þessi
skilyrði og leita lausna fyrir fyrir-
tækið, hafi frétt komið á Sky
fréttastöðinni um að ING hefði yf-
irtekið innlán Singer & Fried-
lander.
Kaupþingsmenn eru sannfærðir
um að Alistair Darling, fjármála-
ráðherra Breta, hafi í máli sínu í
gærmorgun verið að vísa til orða
Davíðs Oddssonar seðlabanka-
stjóra í Kastljósi Sjónvarpsins í
fyrrakvöld, þegar hann greindi frá
því að Íslendingar ætluðu ekki að
borga. „They are not going to pay!“
sagði ráðherrann. Telja þeir að
þessi túlkun fjármálaráðherrans á
orðum seðlabankastjóra, með skír-
skotun til tryggingagreiðslna
vegna Icesave-innlánsreikning-
anna, hafi riðið baggamuninn og
allt traust erlendra lánardrottna
hafi beinlínis gufað upp á auga-
bragði.
Fyrirtækið tekið með valdi
Vonbrigði forsvarsmanna Kaup-
þings eru gífurleg. „Við vorum ekki
í vanskilum, vorum með nægt laust
fé og góða eignastöðu. En fyrir-
tækið var tekið af okkur með valdi í
Bretlandi og við gátum ekkert
gert,“ sagði viðmælandi Morgun-
blaðsins á tólfta tímanum í gær-
kvöld.
Morgunblaðið/Golli
Unnið fyrir gýg Lýður Guðmundsson, einn aðaleigandi Kaupþings, gengur frá bankanum um miðnætti í gær.
Kaupþing játar ósigur
FME tekur yfir
stjórn bankans
EIGN fjögurra lífeyrissjóða í Kaup-
þingi nam tæpum 50 milljörðum
króna, ef miðað er við gengi bréfa
bankans á föstudag, síðasta daginn
sem viðskipti áttu sér stað með
hluti í Kaupþingi. Við þjóðnýtingu á
bankanum má gera ráð fyrir að
þessi eign sé töpuð.
Lífeyrissjóðir Bankastræti áttu
16,1 milljarð, Lífeyrissjóður versl-
unarmanna 15,5 milljarða, Gildi líf-
eyrissjóður átti 14 milljarða og
Stafir Pension Fund átti 3,9 millj-
arða í bankanum.
Tuttugu stærstu hluthafar í
Kaupþingi áttu samtals 76,92% í
bankanum og var verðmæti þessa
hlutar 372,5 milljarðar króna á
föstudag.
Stærsti eigandi bankans, Exista,
átti 24,7% í bankanum og nemur
tap félagsins tæpum 120 millj-
örðum króna. Þá átti Egla Invest,
félag í eigu Ólafs Ólafssonar í Sam-
skipum, 9,88% og tapar því um 48
milljörðum króna. Bróðir emírsins í
Katar, sem nýlega keypti hlut í
bankanum, átti um 5% í Kaupþingi
og nemur fjárhagslegt tap hans
24,3 milljörðum króna.
Þá tapar Gift fjárfestingarfélag,
sem stofnað var um Eignarhalds-
félag Samvinnutrygginga, 12,5
milljörðum króna.
Milljarðar
í súginn
Lífeyrissjóðir tapa
Orð Darlings
riðu baggamuninn